Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Sverrir Eins og ormur í Esjunni ESJUDAGUR Hjálparsveitar skáta í Reykjavík var haldinn í þriðja sinn á sunnudag. Hrafnkell Sigtryggsson hjá sveitinni segir daginn hafa heppnast einstaklega vel en hátt í tvö þúsund manns mættu til leiks í blíðskaparveðri. „Tilgangurinn var að hvetja fólk til úti- vistar og þakka höfuðborgarbúum veittan stuðning og góðvild í okkar garð á liðnum árum,“ segir Hrafnkell. „Það var tilkomumik- il sjón að sjá mann við mann í hlíðunum. Hópurinn hlykkjaðist eiginlega upp eins og ormur.“ Áratugir skildu að elsta og yngsta göngugarpinn. Þá gerði blindur maður sér lítið fyrir og gekk alla leið á toppinn auk þess sem nokkrir náðu takmarkinu á hjóli. „Það er ekkert ómögulegt;," segir Hrafnkell. ísland gegn Sameinuðu furstadæmunum Sonur forset- ans mætir á leikinn SHAIKH Abdulah bin Zayed A1 Nahyan, sonur Zaid ibn Sultan an-Nahyan forseta Sameinuðu arabísku furstadæmanna, er staddur hér á landi til að sjá sína menn etja kappi við íslendinga í landsleik í knattspyrnu. Leikur- inn verður háður á Laugardals- vellinum í kvöld. Abdulah bin Zayed, sem á myndinni heilar Eggert Magnús- syni, formanni KSI, er 23 ára gamall og er formaður knatt- spyrnusambands furstadæmanna. Hann kom til landsins með leigu- þotu frá London. Knattspyrna er helsta áhuga- mál bin Zayeds, sem flýgur reglu- Morgunblaðið/Ámi Sæberg lega 6000 km til Þýskalands að sjá uppáhaldslið sín, Bayern Miinchen og Bayer Leverkusen. Sameinuðu arabísku fursta- dæmin á austurhluta Arabíuskaga fengu sjálfstæði frá Bretum árið 1971. íbúar eru um 1,8 miHjónir. Olíu- og gasiðnaður hefur staðið í blóma í ríkinu í liðlega 30 ár. Fjármunirnir hafa ekki síst safn- ast á hendur erfðafurstanna sjö sem ráða ríkjum í landinu. Faðir bin Zayeds er æðstur þeirra. Vegið að frelsi fjöl- miðla úr ólíkum áttum FULLTRÚAR norrænna nefnda IPI (International Press Instit- ute) eru staddir hérlendis og funduðu á Hótel Sögu í gær. IPI var stofnað í New York árið 1950 og er alþjóðleg samtök ritstjóra og stjómenda ljósvakamiðla og fréttastofa í yfir 80 löndum sem hafa það að markmiði að varð- veita frelsi fjölmiðlanna. Forseti samtakanna, Austurríkismaður- inn Johann Fritz, sagði í samtali við Morgunblaðið að vegið væri að frelsi fjölmiðlanna úr ólíkum áttum og við ólíkan vanda væri að etja eftir heimshlutum. Hann segir að samtökin eigi við alveg nýjan vanda að etja sem er til- hneiging yfirþjóðlegra stofnana til að setja reglugerðir um starf- semi fjölmiðla. Fritz sagði að hann vildi fá norrænum nefndum IPI það verk- efni að gefa meiri gaum að þróuninni í Eystrasaltsríkjunum og vera ráðgefandi í ýmsum málum. Fritz sagði að samtökin væru áhrifamikil því félagar innan þeirra, ritstjórar og stjómendur ljósvakamiðla og fréttastofa, gætu átt stóran þátt í því að móta almenningsálitið í heimin- um. Áhrifunum væri þó einvörð- ungu beint í eina átt, þ.e. til varð- veislu frelsis fjölmiðlanna. Hann sagði fjölmiðlafrelsi víðtækt hug- tak og við afar ólík- an vanda að fást eft- ir heimshlutum. „í þriðja heimin- um snýst baráttan ekki aðeins gegn rit- skoðun heldur einn- ig gegn linnulausum árásum og ógnunum í garð blaða- manna. Þar eru dæmi um að blaðamenn séu myrtir eða teknir til fanga fyrir þær sakir einar að stunda rannsóknarblaða- mennsku," sagði Fritz. Undanfarið hafa áherslur í starfí IPI þó verið að breytast og meiri gaumur verið gefínn að nýfrjálsum lýðræðisríkjum Aust- ur-Evrópu. Um leið hafa risið upp ný vandamál í grónum lýðræðis- ríkjum sem lúta að tilhneigingu yfírþjóðlegra stofnana eins og ESB til að setja reglugerðir um starfsemi fjölmiðlanna. „Samræmt og staðlað" „Nýju lýðræðisríkin hafa átt í erfíðleikum með að henda reiður á hvaða hlutverki fjölmiðlar eiga að gegna í nútímalegu lýðræðis- þjóðfélagi,“ segir Fritz. Hann segir að blaðamenn í Austur-Evr- ópu hafí vanist því undir stjórn kommúnista á stríðstímum og í kalda stríðinu að vinna upp úr fréttatilkynningum frá upplýs- ingadeildum heijanna. Þeir hefðu ekki átt kost á því að greina frá atburð- um af vettvangi þeirra. Nú séu breyttir tímar og blaðamenn í Austur- Evrópu óski þess nú að læra af reynslu stríðsfréttaritari af Vesturlöndum sem hafi verið á átaka- svæðum. Fritz segir að á undanförnum tveim- ur árum hafí kraftar IPI beinst í æ ríkari mæli að þeim vanda sem steðji að fjöl- miðlum í grónum Iýðræðisríkjum, því sem hann nefnir „afar flóknar laga- og reglugerðasetningar“ af hálfu þjóðþinga en þó einkum yfirþjóðlegra stofnana. Þetta sé mikil áskorun fyrir samtökin því það sé þrautin þyngri að fylgjast með slíkri reglugerðasetningu því hún fari fram innan fjölmargra nefnda á vegum yfírþjóðlegra stofnana. „Slíkar stofnanir setja lög og reglugerðir um fjölmiðlana og reyna með því að setja hömlur á starfsemi þeirra. Evrópuráðið hefur t.a.m. reynt að „samræma og staðla" fjölmiðla um alla Evr- ópu en slík orðanotkun er ávallt yfírskin fyrir reglugerðasetn- ingu. Evrópuráðið lagði fram siðareglur fyrir blaðamenn sem voru slíkt bull að það kallaði á hávær mótmæli frá samtökum eins og t.d. IPI. Þegar tillagan var lögð fram í Strassborg að viðstöddum hagsmunaaðilum var hún felld af öllum þeim fjórtán samtökum sem hagsmuna áttu að gæta,“ segir Fritz. FRETTIR Johann Fritz forseti IPI Tilhneiging yfírþjóðlegra stofnana til að setja flóknar reglur um starf fjölmiðla í grónum lýð- ræðisrílgum felur í sér áskorun Johann Fritz. Ungir sjálfstæðismenn hafa gert „svarthvítan lista“ yfir ríkisfyrirtæki og stofnanir Sinfónían fram úr íjárlögnm síðan ’86 Ur ársreikningum Ríkisútvarpsins 1986-93 (í milljónum kr. á verðlagi 1994) Hagnaður/tap iHfy Tekjur af afnotagjöldum 1.595Í 1.571,3 -374,8 m.kr. Tap ársins 1986 miíast viS afkomu án aðflutningsgjalda skv. 32. gnein útvarpslaga. Aukafjárveiting ríklssjóðs á árinu 1988,17 m.kr. á verðlagi þess árs, er itmi i hagnaði ársins. 931,4 '86 '87 '88 '89 '90 '91 '92 '93 SAMBAND ungra sjálfstæðis- manna afhenti Friðrik Sophussyni fjármálaráðherra í gær plagg, sem ungir sjálfstæðismenn vilja kalla „svarthvíta listann". Á honum eru annars vegar ríkisfyrirtæki og -stofnanir, sem hafa staðið sig vel og sparað í rekstri, og hins vegar fyrirtæki og stofnanir, sem SUS telur hafa staðið sig illa. Meðal fyrirtækjanna, sem ungir sjálf- stæðismenn setja á „svarta list- ann“ er Sinfóníuhljómsveit ís- lands, en frá árinu 1986 hefur kostnaður við hljómsveitina alltaf verið umfram heimildir í fjárlög- um. Á „hvíta listanum“ eru sýslu- mannsembættið í Kópavogi, en þar hefur tekizt að minnka kostnað um 10-15% að raungildi á seinustu fímm árum, Vita- og hafnamála- stofnun, þar sem svipaður sparn- aður hefur náðst, Menntaskólinn í Reykjavík, þar sem kostnaður hefur minnkað lítilsháttar á sama tíma og kostnaður við aðra fram- haldsskóla hefur hækkað, Skatt- stjórinn á Reykjanesi og Fangels- ismálastofnun, en þar hefur kostn- aður haldizt innan fjárheimilda Alþingis og starfsmannafjöldi staðið í stað, þrátt fyrir fjölgun fanga og dóma um fangelsisvist, segja ungir sjálfstæðismenn. 58% hækkun framlaga til sinfóníunnar Á „svarta listanum" eru hins vegar þær stofnanir, sem ungir sjálfstæðismenn teija að hafí stað- ið sig illa í fjármálum og farið fram úr áætlun ár eftir ár. Þeir segja útgjöld sýslumannsembætt- isins á Akranesi hafa aukizt um fímmtung á undanfömum fímm árum og á síðasta ári hafí kostnað- ur við embættið numið rúmlega fjórðungi umfram það sem heim- ildir Alþingis kváðu á um. Raun- hækkun á framlögum ríkisins til Sinfóníuhljómsveitár íslands er 58% frá árinu 1986. Þá var fram- lag til hljómsveitarinnar 64 millj- ónir króna á núgildandi verðlagi, en er nú 101 milljón króna. Kostn- aður skattgreiðenda við hvem tón- leikagest sinfóníunnar er 5.662 krónur og skiptast opinber fram- lög milli ríkisins, Reykjavíkurborg- ar, Menningarsjóðs útvarpsstöðva og Seltjamamessbæjar. Ungir sjálfstæðismenn segja rekstrarkostnað við Húsnæðis- stofnun hafa verið 309 milljónir á núvirði árið 1987, en hann sé nú 504 milljónir eða 40% hærri. Þeir gagnrýna Verkmenntaskólann á Akureyri fyrir að hafa sífellt farið fram úr fjárheimildum. Útgjöld skólans hafí aukizt um rúmlega þriðjung að raungildi undanfarin fímm ár. Hallarekstur og skatta- hækkun hjá RÚV Loks gagnrýnir SUS Ríkisút- varpið, sem ungir sjálfstæðis- menn segja fjármagnað með ígildi skatta; afnotagjöldum. Stofnunin hafi ekki notið sama aðhalds og aðrar stofnanir ríkis- ins, þar sem stór hluti tekna hennar sé óháður sveiflum í efna- hagslífinu. Frá árinu 1986 hafi hækkun afnotagjalda numið 69% að raunvirði. Samt sem áður hafi tapið á stofnuninni á þessum tíma verið 364 milljónir króna. Ungir sjálfstæðismenn segja RÚV kosta meira í rekstri en Háskóli íslands og víða megi spara hjá fyrirtækinu. Þannig furða þeir sig á því að svæðisút- varpið á Akureyri, sem útvarpi 1-2 klukkustundir á dag, hafi 10,5 stöðugildi. en Bylgjan, sem sé stærsta einkastöðin, hafi sjö stöðugildi að frátaldri fréttastofu Bylgjunnar og Stöðvar 2. Tap og umframkostnaður á samdráttartímum „Við viljum leggja okkar lóð á vogarskálarnar að berjast við fjárlagahallann,“ sagði Guðlaug- ur Þór Þórðarson, formaður SUS, í samtali við Morgunblaðið. „Við fögnum þeim árangri, sem ríkis- \ stjórnin hefur náð með því að i lækka ríkisútgjöld að núvirði um 7%. Við höfum ekki séð aðrar rík- isstjórnir ná slíkum árangri í seinni tíð. Okkur finnst að ekki hafí verið nógu mikið gert af því að umbuna starfsfólki og stjórn- endum fyrirtækja og stofnana, sem standa sig vel, en á sama , hátt hljótum við að spyija hvernig standi á því að fyrirtæki í ríkis- ' geiranum séu rekin með tapi ár eftir ár eða fari fram úr fjárlög- ; um. Þetta er að gerast á sama tíma og bæði heimili og fyrirtæki hafa þurft að draga saman seglin í efnahagslægðinni.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.