Morgunblaðið - 26.03.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.03.1996, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Mok í netin á Sanda- grunni Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. Netabátarnir Gæfa VE og Góa VE voru að draga bunkuð net af stórþorski er Morgunblaðið renndi við hjá þeim þar sem þeir voru á Sandagrunni, um 8 sjómíl- ur inn af Vestmannaeyjum í gærmorgun. Gæfan var að fá mjög gott í sína trossu en Ólafur Guðjónsson skipstjóri, sem var á rúllunni, sagði að það væri ennþá líflegra hjá Góunni sem væri á vestari trintunum, tæpri hálfri milu vestar. Það stóð heima hjá Ólafi því skipveijar á Góu hrein- lega mokuðu aflanum innfyrir. Netin voru bunkuð af stórþorski og Ægir Hafsteinsson skipsljóri, sem var á rúllunni, sagðist aldrei hafa lent í öðru eins fjöri. Skipveijamir fjórir höfðu ekki undan að greiða úr og stóðu uppundir klof í fiskikösinni sem náði orðið upp að lunningu. Eftir að hafa dregið tvær trossur hélt Góan til hafnar í Eyjum, með 12 tonn, til að landa enda báturinn orðinn fullur af fiski en síðan héldu þeir út á ný og drógu tvær trossur sem þeir áttu eftir á Flúð- unum en mun minna var í þar, um tvö tonn. Ægir Hafsteinsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að hann hefði aldrei lent í öðru eins fiskirii og verið hefur undan- fama daga. Á tíu dögum væm þeir búnir að tvísækja sama dag- inn fjómm sinnum. Hann sagði SAMKEPPNISRÁÐ mun ekki heim- ila þeim aðilum sem standa að Umhverfíssjóði verslunarinnar, þ.e. Kaupmannasamtökum ísiands, Hagkaupi og Samtökum samvinnu- verslana, að hafa samráð um verð- lagningu burðarpoka, en helmingur andvirðis pokanna átti að renna til sjóðsins og þaðan til umhverfís- vemdar. Hefur ráðið úrskurðað að þessum aðilum sé óheirhilt að við- hafa slíkt verðsamráð frá og með 1. júlí nk. Forsaga málsins er sú að Kaup- mannasamtökin slitu á síðasta ári samstarfí sínu við pokasjóð Land- vemdar, en Verðlagsráð hafði á sín- að þeir væru að fiska tonn á móti tonni fyrir aðila á Norður- landi sem fengi fiskinn sendan með bílum norður og þeir hefðu orðið að hægja á sér og fækka um tíma veitt undanþágu til sam- ráðs um verð burðarpoka þar sem helmingur andvirðis þeirra rann til sjóðsins. Jafnframt tilkynntu sam- tökin Samkeppnisráði sl. haust að þau hefðu stofnað Umhverfíssjóð verslunarinnar í samstarfí við Hag- kaup og Samtök samvinnuverslana. Óskaði sjóðurinn eftir því að Sam- keppnisstofnun staðfesti heimild til samráðs um verð á burðarpokum, í samræmi við undanþágu Verðlags- ráðs frá 1989. Landvemd óskaði hins vegar eftir því að þetta verð- samráð yrði úrskurðað ólöglegt. í úrskurði Samkeppnisráðs segir m.a. að á sínum tíma hafi verðsam- um eina trossu á Sandagrunninu fyrir helgi þar sem aflinn var svo mikill að ekki hafðist undan að vinna hann. Ægir sagði að Gæfan hefði ráðið miðast við að pokarnir væru seldir á kostnaðarverði að viðbætt- um virðisaukaskatti. Það hafí því verið verslanirnar sjálfar sem hafí greitt í pokasjóð Landvemdar. Eftir því sem næst verði komist miðist núverandi verðlagning hins vegar við að neytendur beri allan kostnað vegna framlagsins í Umhverfíssjóð- inn, auk þess sem sumar verslanir kunni að hagnast á sölu pokanna. í úrskurði Samkeppnisráðs segir að ekki verði séð að slík undanþága til Umhverfissjóðs myndi efla sam- keppni á matvörumarkaðnum auk þess sem slíkt samstarf skapi ákveð- inn samstarfsvettvang þeirra aðila verið með netin á svipuðum slóð- um og þeir undanfarið og hefðu þeir líka verið að fá mikinn afla en í gær var Gæfan með 14 tonn, allt boltaþorsk. sem hafí yfírburðastöðu á markaðn- um. Reynsla erlendra aðila þyki sína að slíkt samstarf skapi hættu á frek- ara samráði. „Óumdeilt ér að fjársöfnun til verndar umhverfínu varðar al- mannaheill. Hafa ber hins vegar í huga að verðsamkeppni er grund- völlur samkeppnisréttarins og til að veita undanþágur frá henni þarf rík- ar ástæður ... Samkeppnisráð telur að ekki hafí verið sýnt fram á að samráð um verð á burðarpokum sé nauðsynlegt til að ná þeim markmið- um um umhverfisvernd sem liggja til grundvallar stofnun Umhverfís- sjóðs verslunarinnar." Brotist inní sjö íbúðir BROTIST var inn í sjö íbúðar- hús' í Reykjavík um helgina. Lögregla handtók aðfaranótt sunnudagsins sex unglinga á 16. ári sem brotist, höfðu inn í tvö einbýlishús í Seláshverfi. Spor unglinganna voru rakin frá Seláshverfí og yfir Elliða- árdal að húsi í Fellahverfí. Þar voru handteknir sex unglingar, fæddir 1980. Talið er að þeir hafi brotist inn í mannlaust hús í Selás- hverfí aðfaranótt laugardags og aftur aðfaranótt sunnudags. Eftir fyrra innbrotið var lítils saknað en aðfaranótt sunnu- dags var m.a. stolið hljómflutn- ingstækjum, áfengi og skart- gripum. Þá var brotist inn í hús í Grafarvogi og m.a. stolið byss- um. Maður var handtekinn grunaður um það innbrot. Einn- ig var brotist inn í tvö íbúðar- hús í Breiðholti og í mannlausa íbúð í Vesturbæ. Hallgrímskirkja Fulltá tónleikum FULLT var í Hallgrímskirkju á sunnudag þar sem haldnir voru tónleikar á vegum Mótettukórs og Listvinafélags kirkjunnar. Flutt voru þijú tónverk, Óttu- söngvar á vori eftir Jón Nordal og tvær sögufrægar mótettur eftir Thomas Tallis og Gregorio Allegri. Flytjendur voru Mót- ettukór Hallgrímskirkju, Sverr- ir Guðjónsson og Þóra Einars- dóttir. Stjórnandi var Hörður Áskelsson og sagði hann í sam- tali við Morgunblaðið að gestir hafí verið á milli 600-700. „Kirkjan var þéttsetin og geysi- lega góð stemmning. Það er óhætt að segja að við bjugg- umst ekki við þessum góðu undirtektum þótt við hefðum vonast eftir þeim.“ Hörður sagði að þessi góða aðsókn hefði ýtt undir hugmynd- ir um að endurtaka þessa tón- leika um næstu helgi enda hafí margir þurft frá að hverfa á sunnudag. „Auk þess höfum við lagt mjög mikla vinnu í æfingar á þessum verkum, sérstaklega á verki Tallis sem er 40 radda verk, skrifað fyrir átta fímm radda kóra. Það væri mjög dýr- mætt fyrir okkur að fá að flytja það verk aftur nú því það líður örugglega langur tími uns það verður æft upp aftur.“ Samkeppnisráð hafnar undanþágubeiðni Umhverfissjóðs verslunarinnar Samráð um verð á burðarpokum óheimilt Hrafnkell A. Jónsson, formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Austurlandskjördæmi Afsögn til að mótmæla vinnumarkaðsfrumvarpi HRAFNKELL A. Jónsson, formað- ur verkalýsðfélagsins Árvakurs á Eskifirði og miðstjómarmaður í ASÍ, hefur sagt sig frá formennsku í kjördæmisráði Sjálfstæðisflokks- ins á Austurlandi og þar með frá setu í miðstjórn Sjálfstæðisflokks- ins. „Ég á ekki í ágreiningi við stjórn kjördæmisráðsins en er ósátt- ur við framgöngu forystu flokksins í vinnumarkaðsmálum, sérstaklega frumvarp til laga um stéttarfélög og vinnudeilur. Þar er gengið miklu lengra en áður í opinberum afskipt- um af málefnum stéttarfélaganna," sagði Hrafnkell í samtali við Morg- unblaðið í gær. Hrafnkell sagðist ekki vera að segja sig úr Sjálfstæðisflokknum. „Sjálfstæðisflokkurinn hefur í ára- tugi gagnrýnt ríkisrekin stéttarfé- lög í kommúnistaríkjum og það er nákvæmlega sú leið sem verið er að fara með þessu frumvarpi." Hrafnkell kvaðst fyrst og fremst óánægður með heimild frumvarps- ins til að láta stofna vinnustaðafé- lög. „Það er grundvallaratriði. Þar er beinlínis verið að hafa íhlutun í skipulagsmál hreyfingarinnar.“ Hann sagði þau auknu áhrif ríkis- sáttasemjara, sem frumvarpið gerði ráð fyrir, kapítula út af fyrir sig. Með því væru sáttasemjara fengin geysimikil völd til að stýra málum í ákveðinn farveg. „Með því er ver- ið að taka stóran hluta valds aðila vinnumarkaðarins og færa það ráð- herraskipuðum embættismanni,“ sagði Hrafnkell. „Að flokka það undir aukið lýðræði að gera kröfu um a.m.k. 33,34% félagsmanna þurfí til að fella sáttatillögu er bara rugl.“ Hann sagði að í gildandi lögum jafnt og í frumvarpinu væru gerðar litlar og óljósar kröfur til ríkissátta- semjara um hæfí og óhlutdrægni. „Eg vona svo sannarlega að for- ysta Sjálfstæðisflokksins rifji upp það sem hefur verið kjörorð flokks- ins um áratuga skeið: Stétt með stétt. Ég tel að það hafí skort á það undanfarið, sérstaklega síðustu mánuði, að það væri samráð við launþega í Sjálfstæðisflokknum. Sem fulltrúi hagsmunasamtaka kann ég að hafa aðra sýn á hlutina en stjórnmálaforingi sem þarf að líta yfir allt svið samfélagsins en ég get ekki sætt mig við að sá hluti flokksins sem ég tel mig standa fyrir sé alveg sniðgenginn. Ég vona að menn átti sig á því að það skipt- ir Sjálfstæðisflokkinn máli að eiga ítök í verkalýðshreyfingunni." Hrafnkell sagðist aldrei hafa rætt þessi mál innan flokksins eða við forystu hans eða aðra verkalýðs- leiðtoga innan flokksins enda hefði málið aldrei komið til umræðu á vettvangi flokksins. Hrafnkell sagði að sér væri ekki kunnugt um að verkalýðsráð Sjálf- stæðisflokksins hefði fjallað um vinnumarkaðsmálin í ljósi frumvarpa ríkisstjómarinnar. Nýlega hefði flokksforystan hins vegar boðað til funda til að undirbúa Alþýðusam- bandsþing. „Þeir telja greinilega að það sem við eigum að vera upptekin við sé að tryggja einhver áhrif Sjálf- stæðisflokksins í forystu Alþýðu- sambandsins. Ef flokksforystan tel- ur sig að öðru leyti ekki þurfa við okkur að tala er það tilgangslaus fyrirhöfn að vera að reyna að hafa áhrif á það hvemig miðstjóm ASÍ væntanlega verður skipuð," sagði Hrafnkell A. Jónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.