Morgunblaðið - 26.03.1996, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 26.03.1996, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ R AÐ AUGL YSINGAR A TVINNUAUGL ÝSINGAR Bakari Vantar bakara strax. Vaktavinna. Upplýsingar í síma 557 1818 (Magnús). Reyklaus vinnustaður. Myllan - Brauð hf. Vélsmiðir - rennismiðir Vanir menn óskast í vinnu strax. Upplýsingar á staðnum. Vélaverkstæði Sigurðar, Skeiðarási 14, Garðabæ, sími 565 8850. Kennarar Kennarar óskast til yfirferðar á samræmdum prófum 1996. Skilyrði er að viðkomandi hafi kennsluréttindi og reynslu af kennslu í stærðfræði, íslensku, dönsku eða ensku í 10. bekk. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Rann- sóknastofnun uppeldis- og menntamála milli kl. 9.00 og 16.00 virka daga til 12. apríl 1996, í síma 551 0560. Forstöðumaður Skólaskrifstofu Fyrir hönd sveitarfélaga í Múlasýslum að Djúpavogshreppi er hér með auglýst staða forstöðumanns Skólaskrifstofu, sem áform- að er að starfrækja á framangreindu svæði. Skólaskrifstofurini er m.a. ætlað að taka við verkefnum, sem sveitarstjórnum ber lögum skv. að leysa af hendi eftir fyrirhugaða yfir- töku sveitarfélaganna á öllum rekstri grunn- skólans á þessu ári. Verkefnin hafa verið skilgreind af nefnd á vegum sveitarfélaganna á Austurlandi og mun formlega verða geng- ið frá stofnsamningi Skólaskrifstofunnar 18. apríl 1996. í fyrirliggjandi drögum að stofnsamningi segir svo í 6. gr.: „Forstöðumaður skal hafa kennslufræði- lega menntun. Hann skal fyrst og fremst sinna faglegri stjórnun Skólaskrifstofunn- ar, ráðgjöf við skólastjórnendur og sveitar- stjórnir, annast áætlanagerð um rekstur stofnunarinnar, fara með fjármál hennar, mannaforræði og annað það sem stjórn felur honum eða nánar verður kveðið á um í ráðningarsamningi eða starfslýsingu hon- um tengdri." Fyrirvari vegna auglýsingar þessarar er þó gerður um að endanlegt samkomulag náist milli málsaðila um yfirtökuna og að áform um stofnun Skólaskrifstofunnar gangi eftir. Umsóknarfrestur er til 20. apríl 1996. Umsóknir sendist skrifstofu Héraðsnefndar Múlasýslna, Skólabraut 10, 755 Stöðvarfirði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veita: Skrifstofa Héraðsnefndar Múlasýslna, Bj. Hafþór Guðmundsson, sími, 475 8966. Form. stjórnar Héraðsnefndar Múlasýslna, Broddi B. Bjarnason, sími, 471 1516. Stöðvarfirði, 23. mars 1996. Héraðsnefnd Múlasýslna. Q‘bpes_ étfGSÆMi. hárstofa, Hátúni 6a, sími 551 6660. Vantar hárgreiðslusvein eða -meistara í hluta- starf frá kl. 9-13, einnig þriðja árs nema. Upplýsingar á staðnum. ^CfPIRÐ^ Hjúkrunarfræðingur með Ijósmæðramenntun eða Ijósmóðir óskast til afleysinga. Um er að ræða afleysingastöðu í eitt ár frá 1.7. ’96 eða eftir nánara samkomulagi, við fæðingarhjálp, umönnun sængurkvenna og nýbura. Einnig mæðravernd og fræðsla. Allar nánari upplýsingar gefur hjúkrunarfor- stjóri í síma 455 4000. Fyrirtæki óskast Leitum að góðu fyrirtæki fyrir traustan kaup- anda. Góðar greiðslur í boði. Ársalir, fasteignasala, símar 533 4200 og 852 0667 Auglýsing frá menntamálaráðuneytinu Styrkir Menntamálaráðuneytið auglýsir lausa til umsókna nokkra styrki frá danska ríkinu, sem ætlaðir eru til skólaheimsókna íslenskra grunn- og framhaldsskólanemenda til Dan- merkur vorið 1996. 1. Styrkir þessir miðast við nemendur í 8.-10. bekk í grunnskóla og nemendur ífram- haldsskóla. 2. Umsókn skal fylgja ítarleg lýsing á ferð- inni og tilgangi hennar. Þeir skólar, sem þegar hafa umtalsverð bréfaskipti/tengsl við danska skóla, skulu að öllu jöfnu hafa for- gang við styrkveitingu. Skólaheimsóknina skal undirbúa í nánu samráði við skólann, sem heimsóttur er, og skal skrifleg staðfest- ing frá danska skólanum um fyrri tengsl milli skólanna og samvinnu um skipulagningu heimsóknarinnar fylgja umsókninni. Einnig skal tilgreina hvort sótt er um styrk til ann- arra aðila og þá til hverra. Gert skal ráð fyr- ir að nemendahópurinn dvelji a.m.k. átta daga í skólum eða fræðsluumdæmum sem hópurinn heimsækir. 3. Styrkurinn skal alla jafna miðaður við fasta upphæð á nemenda að hámarki 6 þúsund krónur. Við styrkveitingu skal miðað við 30 nemendur að hámarki í hverjum skóla. Að námsferð lokinni ber bæði styrkþegum og stjórn þess skóla, sem heimsóttur er, að skila skriflegri skýrslu um ferðina. Mennta- málaráðuneytið ákveður skilatíma skýrslu. Umsóknir um styrki skulu hafa borist menntamáiaráðuneytinu fyrir 15. apríl 1996. Nánari upplýsingar fást hjá mennta- málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Auglysing frá menntamálaráðuneytinu Styrkir til sumarnámskeiða f dönskum lýðháskólum fyrir íslenska dönskukennara. Sumarið 1996 veitir danska ríkið 10 íslensk- um dönskukennurum styrk til sumarnám- skeiða í dönskum lýðháskólum. Gert er ráð fyrir a.m.k. tveggja vikna löngu námskeiði. Styrkir þessir eru fyrst og fremst ætlaðir íslenskum dönskukennurum sem lokið hafa BA prófi í dönsku, BEd prófi með dönsku sem valgrein eða hafa sambærilega faglega menntun í dönsku. Styrkþegar þurfa sjálfir að afla sér skólavist- ar í dönskum lýðháskólum. Hver styrkur er að upphæð 3.000 danskar kónur og er ætlaður til að greiða námskeiðs- kostnað. Umsókn skulu fylgja upplýsingar um fyrra nám og störf umsækjenda. Jafnframt skal gerð grein fyrir fyrirhuguðu námskeiði. Skila skal stuttri skýrslu um námskeiðið til menntamálaráðuneytisins strax að því loknu. Umsóknir um styrki fyrir sumarið 1996 skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhóls- götu 4,150 Reykjavík, fyrir 12. apríl 1996. FUNDIR - MANNFAGNAÐUR Fundarboð Aðalfundur Mjólkurbús Flóamanna verður haldinn í Gunnarshólma, Landeyjum, þriðju- daginn 2. apríl 1996. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Fundurinn hefst kl. 13.30. Fulltrúar mæti kl. 12.00. Selfossi, 25. mars 1996. Stjórn Mjólkurbús Flóamanna. Aðalfundur Aðalfundur Meitilsins hf. verður haldinn í Duggunni í Þorlákshöfn þann 2. apríl 1996 kl. 15.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykkt- um félagsins. 2. Önnur mál, löglega uppborin. Dagskrá og reiknigar liggja frammi á skrif- stofu félagsins hluthöfum til afhendingar viku fyrir aðalfund. Fundargögn verða einnig afhent á fundar- stað. Stjórn Meitilsins hf. Framtíðarsýn fyrir Reykjavík Opin ráðstefna sjálfstæðismanna í Reykjavík um málefni borgarinnar. Er stef na R-listans að leiða Reykvíkinga í ógöngur? Nú er kjörtímabil R-listans nœrri hálfnaö og tími til að staldra við og leita svara við því hvert stefni undir stjórn R-listans. Hvaða áhrif hefur stefna R-listans á hag fjölskyldna í Reykjavík? Hvaða áhrif hefur stefna R-listans á atvinnulífið? Lægri skattar, minni skuldir og betri þjónusta fyrir Reykvíkinga Hvernig getum við aukið ráðstöfunartekjur fjölskyldunnar með því að lækka skatta og minnka skuldir? Dregnar verða upp meginlínur í stefnu sjálfstæðismanna um mark- vissa lækkun skatta og skulda borgarinnar fram á næstu öld og sýnt verður fram á hvað stefna sjálfstæðismanna þýðir fyrir fjárhag heimilanna. Ráðstefnan verður haldin á Scandic Hótel Loftleiðum miðvikudag- inn 27. mars kl. 17.30-21.15. Barnagæsla verður á staðnum. Allir velkomnir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.