Morgunblaðið - 26.03.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 26.03.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNIIUGAR ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996 39 JÓHANN SVEINBJÖRNSSON + Jóhann Grímur Sveinbjörnsson var fæddur á Snorra Laugardal 13. apríl 1912. Hann lést á Ljósheimum, Sel- fossi, 19. mars síð- astliðinn. Foreldr- ar hans voru Sveinbjörn Eyjólfs- son bóndi, f. 1. apríl 1880, d. 12. ágfúst 1933 og Guðrún Eyjólfs- dóttir, f. 1. maí 1886, d. 8. október 1943. Jóhann var 4. í röð 10 systk- ina en 3 þeirra létust í frumbernsku. Þau sem lifðu eru: Sigríð- ur, f. 12. júní 1908, Eyjólfur, f. 12. sept- ember 1909, d. 19. ágúst 1966, Ragn- heiður, f. 17. júlí 1916, Njáll, f. 20. október 1917, Tryggvi, f. 4. sept- ember 1921, d. 15. febrúar 1993, og Margrét, f. 29. maí 1931. Jóhann kvæntist 23. mai 1945 Sigríði Karlsdóttur, f. 18. mars 1926, d. 2. janúar 1961. Foreldrar hennar voru Karl Karlsson og Guðrún Ólafsdóttir, bæði úr Reykjavík. Börn þeirra eru: Sveinbjörn, f. 20. október 1944, maki Guðfinna Sigurðardóttir, f. 24. nóvember 1953 og eiga þau 4 börn. Guðrún, f. 8. febr- úar 1946 og á hún 3 syni. Ólaf- ur Gestur, f. 31. ágúst 1948, og á hann 4 börn, þar af eitt látið. Sigríður Halla, f. 7. jan- úar 1950, maki Friðgeir Frið- geirsson, f. 8. september 1947. Eyjólfur, f. 16. september 1953, maki Margrét Hákonar- dóttir, f. 22. nóvember 1955, þau eiga 3 börn. Karl, f. 25. apríl 1958, maki Elsa B. Björnsdóttir, f. 19. september 1960, eiga þau 2 syni. Jóhann verður jarðsunginn frá Selfosskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30, en jarðsett verður í Miðdals- kirkjugarði. Mig langar að minnast afa míns, Jóhanns Sveinbjörnssonar, en hann lést 19. þ.m. Mínar fyrstu bernskuminningar tengjast afa á Snorrastöðum, því segja má, að ég hafí alist upp hjá honum til sjö ára aldurs. Afi veikt- ist alvarlega þegar ég var tveggja ára og var óvinnufær nokkur ár eftir það og þar sem ég var eina barnabarn hans fékk ég óskipta athygli hans. Milli okkar mynduð- ust einstök tengsl, sem aldrei bar skugga á. Afi hafði einstaklega góða lund og aldrei sá ég hann skipta skapi. Hann las fyrir mig og sagði mér sögur bæði af æsku- árum sínum og eins ævintýri. Al- veg var sama hvað bjátaði á, alltaf gat ég leitað til afa því hann var fasti punkturinn í lífinu. Eftir að ég fékk bílpróf fórum við nokkrum sinnum saman norður á Strandir að heimsækja Sigríði systur hans og eru þessar ferðir mér ðgleymanlegar. Eftir því sem árin líða fínn ég betur og betur hve vel ég bý að samverunni við hann í uppvexti mínum. Afi fór ekki varhluta af erfíðleik- um í lífinu og segja kunnugir að hann hafi aldrei orðið samur eftir að missa ömmu frá sex börnum. Einnig tók hann afar nærri sér þegar Sigurður sonarsonur hans lést af slysförum mörgum árum síðar. Eg vitjaði afa daginn áður en hann lést og sást þá að hverju stefndi. Þennan dag hefði amma orðið sjötug. Eg hugsaði með mér að amma myndi bíða með veisluna eftir honum, enda ekki óvön því á búskaparárum þeirra, þegar úti- verkin urðu tímafrekari en til stóð. Víst er að vel hefur amma tekið á móti honum eftir þrjátíu og fimm ára bið. Á yngri árum var afi hestamað- ur og átti góða hesta. Þótt hann stundaði ekki hestamennsku síðari hluta ævi sinnar hafði hann gaman af að umgangast hesta og hafði ótrúlega glöggt auga fyrir gangi og lundarfari þeirra. Því langar Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík • Sfmi 553 1099 Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrír öll tílefni. mig að kveðja afa með innilegu þakklæti fyrir allar okkar sam- verustundir með eftirfarandi erindi úr kvæði Ólafs Jóhanns Sigurðs- sonar: Loks þegar hlíð fær hrím á kinn hneggjar þú á mig, fákur minn. Stíg ég á bak og brott ég held, beint inn í sólarlagsins eld. Jóhann Snorri Bjarnason. t Ástkser eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir og afi, BJARNI S. GUÐJÓNSSON, Stigahlíð 8, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju miðvikudaginn 27. mars kl. 13.30. Ásta Þórarinsdóttir, Ásgeir Bjarnason, Ragnheiður Gunnarsdóttir, Ásta Lilja, Elin Marta og Bjarni Gunnar. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIGERÐUR SIGMUNDSDÓTTIR, Birkiteig 4, Keflavík, sem lést í Sjúkrahúsi Suðurnesja laugardaginn 23. mars, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 29. mars kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélag íslands eða Sjúkra- hús Suðurnesja. Þorbjörg Hermannsdóttir, Teitur Ó. Albertsson, Karl S. Hermannsson, Margrét Lilja Valdimarsdóttir, Eiríkur Hermannsson, Oddný G. Harðardóttir, Guðmundur E. Hermannsson, Sveindís Valdimarsdóftir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR GUÐLEIFSSON, Mánagötu 11, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 28. mars kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakk- aðir, en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Keflavíkurkirkju og Sjúkrahús Suðurnesja. Björg Sigurðardóttir, Sigrún Ragnarsdóttir, Ágúst H. Bjarnason, Sveinbjörn Jónsson, afa- og langafabörn. t Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, SIGRÍÐUR M. JÓHANNESDÓTTIR, áðurtil heimilis í Álftröð 5, Kópavogi, lést 22. mars sl. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 29. mars kl. 13.30. Fyrir hönd ástvina hennar: Sverrir Jónsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Jóhannes G. Jónsson, Sigrún Sigurðardóttir, Jóna E. Jónsdóttir, Önundur Jónsson, Gróa Stefánsdóttir, Guðrún H. Jónsdóttir, Baldvin J. Erlingsson, Sigrún Sigurðardóttir, Halldóra Jónsdóttir, Edvard Sverrisson, Kristín Jónsdóttir, Jón S. Ólason. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vináttu við and- lát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, LÁRU GUÐMUNDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á Dalbraut 27 fyrir frábæra umönnun. Gylfi Jónsson, Guðrún Bergsveinsdóttir, Ólafur Rafn Jónsson, Danielle Somers, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum samúð og vinarþel okkur sýnt, vegna andláts sonar okkar, bróður og mágs, ÞORSTEINS ÁGÚSTS BRAGASONAR á Vatnsleysu. Halla Bjarnadóttir, Bragi Þorsteinsson, Ragnheiður Bragadóttir, Eymundur Sigurðsson, Inga Birna Bragadóttir, Kristrún Bragadóttir. t Alúðarþakkir sendum við þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför móður okkar, tengdamóð- ur, ömmu og langömmu, GUÐMUNDU LILJU INGIBJARGAR ÞORSTEINSDÓTTUR, Hátúni 12, Reykjavík. Júlíana Sóley Gunnarsdóttir, Friðrik Már Bergsveinsson, Guðmundur Össur Gunnarsson, Jón Halldór Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna fráfalls HELGU VALDIMARSDÓTTUR, Hraunbæ 103, Reykjavík. Sérstakar þakkir eru færðar hjartadeild Landspítalans. Elías Valgeirsson, Magdalena S. Elíasdóttir, Theódór S. Marinósson, Sigurður Rúnar Elíasson, Edda Sveinbjörnsdóttir, Valdimar Elíasson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför ástkærrar móður okkar, tengamóður, ömmu og langömmu, FANNEYJARG. MAGNÚSDÓTTUR, Fossheiði 48, Selfossi. Jóhanna Guðjónsdóttir, Bjarni Olesen, Guðlaug Guðjónsdóttir, Þór Valdimarsson, Magnús I. Guðjónsson, Ásdís Styrmisdóttir, Birgitta Guðjónsdóttir, Hafsteinn Jakobsson, barnabörn og langömmubarn. Alúðarþakkir færum við þeim, er sýndu okkur samúð og vinsemd við andlát og útför JÓHÖNNU ÞÓRÐARDÓTTUR, Bólstaðarhlíð 66, Reykjavik. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks deild- ar 11E á Landspítalanum og heima- hlynnináar Krabbameinsfélagsins. Aðalbjörg Ragna Hjartardóttir, Ari Kristinn Jónsson, Aðalbjörg T ryggvadóttir, Jóhanna Kristín Ólafsdóttir, Óli Hjörtur Ólafsson, Atli Freyr Arason, Svava Þórðardóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.