Morgunblaðið - 07.11.1998, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.11.1998, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Rússar treysta á aðstoð Bandaríkjanna og ESB Matarbirgðir þrjóta á næstu vikum Moskvu. Reuters. Demókratar reyna að nýta sér sundrungu repúblikana Washington. Reuters. DEMÖKRATAR í Bandaríkjunum reyndu strax í gær að nýta sér þá sundrungu sem ríkir í Repúblikana- flokknum í kjölfar slakrar frammi- stöðu flokksins í þing- og ríkis- stjórakosningum á þriðjudag. Sögð- ust leiðtogar demókrata á þinginu og Bill Clinton Bandaríkjaforseti stefna á að búið verði að samþykkja löggjöf um heilbrigðisumbætur snemma á næsta ári. Fulltrúar Hvíta hússins kváðust telja að hægt yrði að tryggja stuðn- ing nægilega margra repúblikana, sem þrátt fyrir slaka útkomu í kosn- ingunum halda enn meirihluta í báðum deildum þings, við heilbrigð- isumbæturnar til að þær hljóti sam- þykki í þinginu. Beittu demókratar þeim rökum að þau skilaboð sem kjósendur sendu stjórnmálamönn- um á þriðjudag væru augljós: Að stjórnmálamennirnir beini sjónum sínum að mikilvægum stefnumálum í stað málshöfðunar á hendur Clint- on til embættismissis. Demókratar unnu fimm sæti í fulltrúadeild þingsins í kosningun- um á þriðjudag en á síðasta ári var umbótalöggjöf forsetans í heilbrigð- ismálum einmitt felld á þinginu með fimm atkvæðum. Joe Lockhart, talsmaður Hvíta hússins, sagði það vissulega rétt að það væri repúblik- ana að ákveða hvenær mál eru tekin fyrir þingið, enda væru þeir enn í meirihluta, „en við ætlum að þrýsta mjög á um að þetta mál verði sem fyrst á dagskrá". Er það mat full- trúa Hvíta hússins að þeir þing- menn Repúblikanaflokksins sem ekki sitja í öruggum sætum séu lík- legir til að veita frumvarpinu braut- argengi. ERNESTO Zedillo, forseti Mexíkó, hvatti í fyrrakvöld þjóðar- leiðtoga og alþjóðastofnanir til að sameinast í stuðningi sínum við fómarlömb fellibylsins Mitch. Hvatti hann þjóðir heims til að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að koma neyðarhjálp til Hondúras, Níkaragva, E1 Salvador og Gvatemala, en þau lönd urðu verst úti í flóðum og aurskriðum sem fellibylnum fylgdu. Að minnsta kosti 11.000 manns fórust í honum og allt að 13.000 manns er enn saknað. Astand er víða skelfilegt á hörmungarsvæðunum, þar sem fólk hefur verið matarlaust dögum saman. Beiðni Zedillos var lögð fram í bréfi sem hann ritaði leiðtogum annarra Mið-Ameríkuríkja, Banda- ríkjanna, Kanada, Japan og Evr- ópusambandsríkjanna, svo og til Sameinuðu þjóðanna, Alþjóða- bankans, Samtaka Ameríkuríkja og Ameríska þróunarbankans. Mikið magn hjálpargagna er nú farið að berast til landanna sem verst urðu úti. Hafa Bandaríkja- menn sent aðstoð að verðmæti um 70 milljónir dala, um 4,9 milljarðar ísl. kr. og Frakkar hafa sent liðs- sveitir til að aftengja jarðsprengjur sem vatnsveðrið losaði um og fleytti upp á yfirborðið. Þá er óttast að farsóttir breiðist út á hörmungarsvæðunum. SAMKOMULAG náðist í gær um matvælaaðstoð Bandaríkjanna við Rússland en auk þess eiga rúss- neskir embættismenn í viðræðum við fulltrúa Evrópusambandsins, ESB. Bandaríkjastjórn varar jafn- framt rússnesku stjómina við því að reyna að leysa efnahagsvand- ann með aukinni seðlaprentun en Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi leiðtogi Sovétríkjanna, ber hins vegar lof á efnahagsáætlun Jev- genís Prímakovs forsætisráðherra. Stefnt var að því að ljúka samn- ingum um matvælaaðstoðina á fimmtudag að loknum vikulöngum viðræðum en af því varð ekki vegna ágreinings um tollgreiðslur. Rússar vildu tolla aðstoðina sér- staklega en á það vildu Banda- ríkjamenn ekki fallast. Þeir vildu líka, að yfirvöld rússneska lífeyris- kerfisins sæju ein um að dreifa matvælunum en Rússar vilja, að mörg ráðuneyti og stofnanir komi að dreifingunni. Gefa 1,5 millj. tonna Rússneskir embættismenn segj- ast óttast, að matvælabirgðir í landinu verði þrotnar eftir fáar vikur en vonast er til, að ESB muni einnig leggja sitt af mörkum til að koma í veg fyrír það. Kom sendinefnd frá sambandinu til Moskvu í gær til að ræða um það. Þá tilkynnti Keizo Obuchi, forsæt- isráðherra Japans, í gær, að Rúss- Drykkjarvatn er af skornum skammti og ódaunninn víða óbæri- legur. Sagði Amoldo Aleman, for- seti Níkaragva, t.d. að sjómenn segðu vart hægt að vera að veiðum undan ströndum landsins vegna þessa. Sáu þyrluslys „Þetta var óraunverulegt að sjá,“ segir Birgir Viðarsson yfir- tollvörður sem var ásamt konu sinni, Svandísi Jónsdóttur, í Hondúras er fellibylurinn Mitch gekk yfir. Sáu þau hjónin úr fjar- lægð er þyrla borgarstjórans í höf- uðborginni Tegucigualpa, fórst þar skammt frá. Vegna flóðanna sem Mitch olli, seinkaði heimferð hjón- anna um nokkra daga. Birgir og Svandís voru í heim- sókn hjá íslenskum vinum sínum í höfuðborginni og höfðu brugðið sér upp í hæðimar sem borgin stendur í, til að sjá yfir flóðasvæðið. „Eyði- leggingin blasti hvarvetna við, heilu og hálfu stórmarkaðirnir höfðu skolast burt, hundmð bfla lágu eins og hráviði og þeir vora hver ofan á öðrum. Þá hafði vatnið hrifið með sér flestar brýmar í borginni og hreysin, sem fátæk- lingar höfðu reist sér við ána, með. Enginn veit með vissu hversu margir fórast vegna þessa,“ segir Birgir. Þegar þau stóðu á hæðinni og Ágreiningur um toll af hjálpar- gögnum og dreif- ingingartilhögun ar myndu strax fá 56 milljarða af alls 105 milljarða ísl. kr. láni, sem Japansstjórn ætlar að veita þeim. I gær einnig tilkynnt, að náðst hefði samkomulag við vestræna banka um nýja skilmála á skuldum rússneskra viðskiptabanka við þá en af þeim hefur ekkert verið greitt í nokkum tíma. Verða gefn- ar út nýjar skuldaviðurkenningar og skráningin miðuð við ráblur. Komið hefur fram hjá Gennadí Kúlík, aðstoðarforsætisráðherra Rússlands, að Bandaríkjastjórn muni lána Rússum 42 milljarða ísl. kr., sem notaðir verði til kaupa á 1,5 milljónum tonna af matvælum, og gefa þeim aðrar 1,5 milljónir tonna. Rússar fluttu inn þriðjung allra matvæla, sem neytt var í landinu á síðasta ári, en gengishran ráblunnar kemur nú í veg fyrir innflutning að miklu leyti. Bandaríkjastjórn hefur varað rássnesk stjórnvöld við því að reyna að greiða skuldir sínar inn- anlands með aukinni seðlaprentun og undir það hafa aðrar vestrænar horfðu yfir flugu þyrlur hjá, þar á meðal herþyrla sem flutti borgar- stjórann. Hvarf hún á bak við hæð- ardrag og örskömmu síðar sá Birg- ir hvar reykur steig upp. Reyndist það vera eldur sem upp kom er þyrlan fórst. Er Birgir og Svandis hugðust ríkisstjórnir og IMF, Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn, tekið. Er bent á, að það muni aðeins verða til að kynda undir óðaverðbólgu í Rúss- landi. Gorbatsjov vill aukin ríkisafskipti A Vesturlöndum hefur efna- hagsáætlun ríkisstjórnar Jevgenís Prímakovs forsætisráðherra verið gagnrýnd og einkum fyrirætlanir um seðlaprentun og aukin ríkisaf- skipti. Gorbatsjov, fyrrverandi og síðasti leiðtogi Sovétríkjanna, hrósar hins vegar áætluninni og segir, að eins og staðan sé verði að styrkja hlutverk ríkisins. Án þess komist Rússar ekki út úr erfiðleik- unum. Kemur það fram í viðtali við hann í blaðinu Nezavisímaja Gazeta. Sjálfur beitti Gorbatsjov sér fyrir auknu frjálsræði í efna- hagslífinu í stjórnartíð sinni en hann segir, að þá hafi atburðarásin tekið fram fyrir hendurnar á hon- um og öðrum og leitt að lokum til hruns Sovétríkjanna. Gorbatsjov segist ekki vilja sjá kommúnismann aftur og minnir á, að jafnaðarmenn séu nú komnir til valda víða í Vestur-Evrópu og þeir leggi áherslu á „félagslegan mark- aðsbúskap“. Segist hann telja, að Prímakov yrði góður forseti í Rússlandi með Júrí Lúzhov, borg- arstjóra í Moskvu, sér við hlið sem forsætisráðherra. halda heim á leið var allt á öðram endanum í hverfinu þar sem flóðið hafði hrifið með sér hluta úr fang- elsi þar, orðið mörgum fóngum að bana en einnig orðið þess valdandi að fjöldi þeiraa slapp út. Vora her- menn og lögregla um allt hverfi á höttunum eftir fóngum. Anwar ófrægður ÁSAKANIR um að Anwar Ibra- him, fyrrverandi aðstoðarfor- sætisráðhen-a Malasíu, hafi gerst sekur um kynferðis- misferli era rangar, og að því er virðist liður í ófræg- ingarherferð á hendui- hon- um, sam- kvæmt vitnis- burði aðalvitn- is ákæruvalds- ins í gær, á fimmta degi réttarhaldanna yfir Anwar. Mohamed Said Awang, fráfarandi yftrmaður sérdeilda lögreglunnar, las upp úr skýrslu sinni til Mahathirs Mohamads, forsætisráðherra Malasíu, þar sem fram kemur að ásakanir um að Anwar hafi gerst sekur um samkynhneigð og framhjáhald séu tilhæfulausar og „vísvitandi upplognar“. Engin sátt í stríðinu um jökulinn STJÓRNVÖLD í Pakistan hafa hafnað tillögu Indverja um vopnahlé á Siachen-jökli en þar hafa hermenn ríkjanna átt í linnulitlum skærum síðastliðin 14 ár. Hafa þau kostað nokkur hundrað manns lífið og hundruð milljóna ísl. kr. Pakistanar segja, að tillaga Indverja hafi aðeins falið í sér vopnahlé en ekki gert ráð fyrir, að reynt yrði að leysa deiluna í raun eins og þó hefði verið samið um 1989. Siachen- jökull er í Kasmír, sem ríkin hafa lengi deilt um, en Indverjar ráða nú tveimur þriðjungum héraðsins en Pakistanar einum. Þai’ hefur verið dregin ákveðin markalína en hún nær þó ekki til jökulsins, sem bæði ríkin vilja ráða. Þar er mikið veðravíti og jökullinn erfiður yfirferðar. Þeir, sem þar hafa látið lífið, hafa flesth' orðið úti eða fallið í jökul- sprangui’. Hundruð þúsunda á vergangi AÐ minnsta kosti 630.000 óbreyttir borgarar hafa flosnað upp frá heimilum sínum í Norð- vestur-Rúanda vegna átaka þar. Kom það fram hjá talsmanni Sa- meinuðu þjóðanna í landinu. Eiga hútúmenn, sem stóðu fyrir þjóðannorðinu á tútsum, í stríði við stjórnarherinn og njóta í því stuðnings ýmissa ættbræðra sinna í Rúanda. Um 400.000 manns hafast nú við í bráða- birgðabúðum og era aðstæður þar hörmulegai- og fara versn- andi. Meiri áhugi á NATO-aðild DREGIÐ hefur úr andstöðu Finna við aðild að Atlantshafs- bandalaginu, NATO, samkvæmt nýiri skoðanakönnun. Nú eru 32% kjósenda hlynnt henni, sex prósentustigum fleiri en í júlí, en 48% andvíg í stað 56% í sumar. Era konur andvígari aðildinni en karlar en hægrimenn hlynntari henni en stuðningsmenn ann- arra flokka. Finnar vora hlut- lausir á dögum kalda stríðsins og þótt þeir séu það enn, þá hafa þeir orðið margvíslegt samstarf við NATO-ríkin í hennálum. Hörmungarástandið í Mið-Ameríku Skorað á þjóðir heims að aðstoða Mexíkóborg. Reuters. Reuters IBUAR borgarinnar La Ceiba í Hondúras feta sig eftir bráðabirgða- brú. Vatnselgurinn í landinu skolaði ótölulegum fjölda brúa á haf út. Anwar Ibrahim
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.