Morgunblaðið - 07.11.1998, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 07.11.1998, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998 71 < BREF TIL BLAÐSINS Hverjir hafa heimild til þess að miðla heilsu- farsupplýsingum? Frá Ólafí Ólafssyni: í FRUMVARPI til laga um gagna- grunn á heilbrigðissviði sem lagt var fyrir Alþingi á 123. löggjaf- arþingi 1998-1999 segir í fyrstu mgr. 7.gr.: „Að fengnu samþykki heilbrigðis- stofnana eða sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna er rekstrar- leyfishafa heimilt að fá upplýsingar, sem unnar eru úr sjúkraskrám, til flutnings í gagnagrunn á heil- brigðissviði. Heilbrigðisstofnanir skulu hafa samráð læknaráðs og faglega stjómendur viðkomandi stofnunar áður en gengið er til samninga við rekstrarleyfishafa.“ Mikilvægt er að skýrt sé hverjir það eru sem veitt geta slíkt samþykki. Lögin um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 fjalla um með- ferð heilsufarsupplýsinga og kveða á um að heilbrigðisstofnanir eða læknir eða annar heilbrigðisstarfs- maður á eigin stofu varðveiti sjúki-askrár (14. gr.). í þeim lögum er einnig fjallað sérstaklega um réttindi sjúklinga í tengslum við að- gang að sjúkraskrám (15. gr.) og formlegt og upplýst samþykki þeirra fyrir þátttöku í vísinda- rannsókn, í hverju hún er fólgin ásamt rétti til að hafna þátttöku eða að hætta þátttöku í slíkri rannsókn (10. gr.). Orðið starfsmaður er ekki skýrt í lögunum um réttindi sjúklinga en önnur gildandi lagaákvæði varpa þó ljósi á hugtakið. Einnig er nauðsyn- legt að skýra nánar hvað átt er við með faglegum stjórnendum. Þar sem fjallað er um heilsufarsgögn eru læknar eina starfsstéttin sem hefur óheftan aðgang að sjúkra- ski-ám sjúklings sem þeir hafa til meðferðar. Til mótvægis við rúma aðgangsheimild hefur ströng þagn- arskylda verið lögð á lækna um þau málefni sem þeir kunna að fá vit- neskju um í starfi sínu, sbr. 15. gr. laga nr. 53/1988. Þagnarskyldan fellur ekki niður við lát sjúklings. Þá er að finna í tölvulögunum, 7. gr. laga nr. 121/1989, almenna heimild fyrir lækna og tannlækna til að fá upplýsingar úr sjúkraskrá sjúklings og jafnvel vandamanna hans séu slíkar upplýsingar nauðsynlegar vegna sjúklings sem þeir hafa til meðferðar. Sambærileg aðgangs- heimild er ekki til staðar íýi’ir aðra heiibrigðisstarfsmenn í gildandi lög- um. I 7. gr. læknalaganna nr. 53/1988 segir að „Læknir getur við störf sín notið aðstoðar annars heilbrigðis- starfsfólks að svo miklu leyti sem slíkt er nauðsynlegt og forsvaran- legt vegna hæfni þess og sérkunnáttu. Starfar það þá á ábyrgð læknis nema að önnur lög bjóði annað.“ Læknir getur þannig miðlað nauðsynlegum upplýsingum til annaiTa heilbrigðisstarfsmanna um sjúkling sem hann hefur til með- ferðar sé það brýnt vegna meðferð- ar sjúklingsins og eðlilegur þáttur í meðferð heilbrigðisstofnana. Rétt er að vara við rýmkum heimilda til miðlunar upplýsinga með því að veita stórum hópi ótil- greindra heilbrigðisstarfsmanna heimild til slíks. Frá persónuvernd- arsjónarmiði er heppilegast að tak- marka slíkar heimildir eins og kost- ur er og þá við lækna þar sem þeir eru ábyrgðarmenn greiningar og meðferðar, sbr. 7. gr. laga nr. 53/1988. I reglugerð um sjúkraskrár nr. 226/1991 kemur fram að það er læknir sem halda skal sjúkraskrá og á sjúkrastofnunum er það yfir- læknir sem ber ábyrgð á að svo sé gert. Læknir skal varðveita sjúkra- skrá á tryggum stað og þess sé gætt að einungis þeir starfsmenn sem nauðsynlega þurfi eigi aðgang að sjúkraskránni. Yfirlæknir á deild eða ódeildarskiptri stofnun ber ábyrgð á vörslu og meðferð sjúkra- skráa á meðan hann dvelur þar. Forstöðumenn bera ábyrgð á skjalavörslu sjúkraskráa. Hverjir eru það þá sem veita öðr- um en viðkomandi sjúklingi aðgang að sjúkraskrá á stofnunum? Þetta atriði er nánar skýrt í 15. gr. reglu- gerðar nr. 226/1991. Þar segir: Nú hefur yfirlæknir og/eða lækn- aráð viðkomandi heilbrigðisstofnun- ar samþykkt rannsókn sem krefst aðgangs að sjúkraski'ám og er þá þeim sem að rannsókn standa heim- ill aðgangur að skrám.“ Lög um réttindi sjúklinga og tölvulögin kveða einnig á um að við slíkar rannsóknir þurfi heimild siðanefnda og tölvunefndar. Af þessu má ljóst vera að það er yfirlæknir á deild á meðan sjúklingur er til meðferðar þar eða yfirlæknir stofnunar og/eða læknaráð sem getur heimilað að- gang að sjúkraskrám til rannsókna eins og áætlunin er að leyfa við gerð miðlægs gagnagrunns. Stjóm heil- brigðisstofnunar hefur ekld heimild til þess. ÓLAFUR ÓLAFSSON, landlæknir. ÚTILÍF raSEjöklE GLÆSIBÆ • S: 581 2922 www.utilif.is Audvitad reynum vid ad setja okkur íspor kvenna Þaö sem skilur okkur að gerir okkur sterkari sem heild. íslendingar eru heild ólíkra einstaklinga, karla og kvenna, með fjölbreytta reynslu og viðhorf. Alþingi íslendinga hefur það höfuð- verkefni að standa vörð um lýðræðið, - rétt og velferð hvers íslendings. Lýðræðið felur í sér jafnrétti - jöfn tækifæri einstaklinga af báðum kynjum, meðal annars til náms, starfa, launa og ábyrgðar. Konur eru helmingur þjóðarinnar. Alþingi íslendinga hefur hingaö til ekki ° náð að endurspegla það hlutfall. | Sjónarmiö beggja kynja hafa ekki náö 5 lýðræðislegu jafnvægi. É ~ Það er þjóðinni í hag að ólíkum ^ sjónarhornum beggja kynja sé gert o jafn hátt undir höfði. * Þess vegna er aukin þátttaka kvenna x í stjórnmálum haguríslensku þjóðarinnar. Ráöherraskipuð nefnd til aö auka hlut kvenna í stjórnmálum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.