Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ SVONA, svona, hún skal fá það borgað að hafa laumast til að kíkja í stjórnarskrána, ég breyti henni nú bara. Formaður VMSI um meðferð desemberuppbótar Greiða skal í orlofs- sjúkrasjóð o g BJÖRN Grétar Sveinsson, formað- ur Verkamannasambands Islands, segir að samkvæmt landslögum og kjarasamningum eigi að greiða af desemberuppbót í orlofs- og sjúkra- sjóði. Hann mótmælir harðlega um- mælum Hrafnhildar Stefánsdóttur, lögfræðings VSÍ, í Morgunblaðinu sl. þriðjudag, en þar segir hún að ekki eigi að greiða í sjóðina af des- emberuppbót. Björn Grétar sagði að fram að þessu hefði sums staðar verið greitt af desemberuppbót í orlofs- og sjúkrasjóði, en annars staðar ekki. Verkalýðshreyfingin hefði þrýst á að greitt væri í sjóðina eins og lög og samningar gera ráð fyrir. Hann sagði að verkalýðshreyfingin sætti sig ekki við þetta ósamræmi og myndi fylgja því fast eftir að frá þessu yrði gengið. Björn Grétar sagði fagnaðarefni að farið væri að greiða í lífeyrissjóð af desemberuppbót, en það hefði verið með ýmsum hætti fram að þessu. 3 f •• Gerð undir borðplötu H-82-87, B-60, D-57. Ryðfrítt innra byrði. Ytrahús sinkhúðað (ryðgar ekki). Hægt að lækka efri grind með einu handtaki fjórfalt vatnsöryggiskerfi. Mjög hljóðlát aðeins 47db (re 1 pW). TURBO-þurrkun, þurrkar með heitum blæstri Hægt að stilla start-tíma allt að 12 klst. fram í tímann. Sjálfvirk hurðarbremsa. 12 manna stell. 5 kerfi. Hvað er TURBO þurrkun? í þurrkkerfinu blæs vélin út heitri gufunni sem hituð er upp af hitaelementinu Hin fullkomna þurrkun. Viðurkenning fyrir lyfjarannsóknir Rannsakar vatnssækin efnasambönd UM MIÐJAN nóv- ember sl. var Þor- steini Loftssyni lyfjafræðingi veitt viður- kenning frá American As- sociation of Pharmaceut- ical Scientists (AA.P.S.) í Bandan'kjunum, fyrir frá- bæran árangur á sviði vísinda er varða lyfja- fræði. Þetta eru samtök sem sameina alla þá sem starfa að lyfjarannsókn- um, hvort sem er í há- skólum eða lyfjafyrir- tækjum. Þetta eru um 10 þúsund manna samtök vísindamanna og viður- kenning þeirra er fyrst og fremst veitt fyrir þirt- ar greinar í vísindatíma- ritum auk einkaleyfa og þátttöku í alþjóðlegum ráðstefnum. Viðurkenningu þessa hefur Þorsteinn hlotið fyr- ir störf sín og rannsóknir al- mennt en hvað skyldi hann helst hafa rannsakað á undanfórnum árum? Það sem ber hæst eru rann- sóknir á sýklódextrinum, sem eru sykursambönd sem notuð eru til þess að koma lyfjum inn í líkamann. Þetta eru lítil vatns- sækin efnasambönd sem geta tekið til sín eða bundið fitusækn- ar lyfjasameindir og flutt þær af yfirborði t.d. augans eða annars staðar á líkamanum og inn í lík- amann. Þess má geta að ég hef verið í rannsóknarsamstarfi við prófessor Einar Stefánsson augnlækni þar sem þessi sýkló- dextrin hafa verið notuð til þess að flytja lyf inn í augun sem oft er erfiðleikum bundið. -Hvernig fundu menn þessi sýklódextrin? Þessi efni hafa verið þekkt í yfir hundrað ár. Þau myndast þegar ýmsar bakteríur eru að melta sterkju en það var aldrei hægt að búa þau til í miklu magni og sjaldnast voni þau hrein. Það var ekki fyrr en með líftækninni sem menn gátu ein- angrað og framleitt ensímin sem mynda sýklódextrin úr sterkj- unni og fengið nægt magn af efn- inu til þess að gera tilraunir í lyfjarannsóknum. Eg held að Frakkinn Wiellier hafi fundið upp þessi efni og birti fyrstu greinina um þau árið 1891. Þá vakti þetta enga athygli. Svo voru það ýmsir Þjóðverjar sem unnu að rannsóknum frá alda- mótum og fram að seinni heims- styrjöld sem ákvörð- uðu byggingu efnanna og eiginleika þeirra til þess að binda ýmis efnasambönd. - Hvað gera menn í svona lyfjarannsókn- __________ um? Fyrst finna menn einhverja lyfjasameind sem hefur ákveðna lyfjafræðilega eiginleika. Það er að segja kallar fram ákveðin lyf- hrif í líkamanum - eða ákveðinn lækningamátt. Þetta er þó bara hálfur sigurinn, það er oft mjög erfitt að koma þessu lyfi inn í lík- amann og til þess þarf að beita ýmsum brögðum. TVennt veldur oft erfiðleikum. Annars vegar eru lyf oft mjög fitusækin og leysast því lítt eða ekki upp í vatni og hitt vandamálið er að þau eiga oft í erfiðleikum með að komast í gegnum lífrænar himn- ur. Sýklódextrin getur í mörgum Þorsteinn Loftsson ► Þorsteinn Loftsson er fæddur árið 1950 í Kaup- mannahöfn en ólst upp í Reykjavík. Hann varð stúdent 1970 frá Menntaskólanum í Hamrahlíð og lauk lyíjafræði- prófi frá Lyfjafræðiháskólan- um í Kaupmannahöfn árið 1975. Eftir það fór Þorsteinn til Bandaríkjanna og Iauk þar doktorsprófí árið 1979 frá há- skólanum í Kansas. Hann varð lektor við Háskóla íslands, síðar dósent og loks prófessor árið 1986. Hann hefur hlotið viðkenningu A.A.P.S í Banda- ríkjunum fyrir frábæran árangur á sviði vísinda er varða lyfjafræði. Þorsteinn er kvæntur Hönnu Lilju Guðleifs- dóttur starfsmanni hjá Iðunn- arapóteki og eiga þau tvo syni. „Lýsi er mjög gott, bæði til inntöku og til þess að bera það á húðina„“ tilvikum aukið bæði vatnsleysan- leika fitusækinna lyfja og líka aukið frásog þeirra í gegnum líf- rænar himnur eins og til dæmis hornhimnu augans. - Hefur þú verið í annars kon- ar lyfjarannsóknum? Annað rannsóknarverkefni sem ég hef unnið að er rannsókn- ir á innihaldsefnum lýsis. Þar höfum við bæði verið að rann- saka áhrif fitusýra á frásog lyfja gegnum húð og einnig veiru- bakteríudrepandi eiginleika fitu- sýra sem finnast í lýsi. Eg hef unnið þessar rannsóknir með Jóni Hjaltalín Olafssyni húðsjúk- dómalækni og prófessor Halldóri Þoi-mar. Þessar fitusýrur reynd- ust hafa glettilega mikil veiru- drepandi áhrif auk þess sem þær gáfu frá- sog lyfja í gegnum húð og virðast þær því vera upplagðar til notkunar í ýmis húð- sjúkdómalyf. Lýsið er því mjög gott bæði til inntöku og til þess að bera það á húðina. - Hefur þú unnið að fleiri lyfja- rannsóknum? Já, auk þessara tveggja verk- efna sem nefnd eni þegar, hef ég rannsakað forlyf, þ.e.a.s. efna- sambönd sem breytast fyrst í lyf í líkamanum eftir að þau hafa verið tekin inn. Má þar nefna t.d. forlyf sem umbreytast í lyf í mið- taugakei’fi líkamans. Loks má minnast á að nýlega höfum við hafíð rannsóknir á mjúkum lyfj- um. Við erum að rannsaka ýmsis efnasambönd sem eyðast auð- veldlega í náttúrunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.