Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 72
72 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Rokktónleikar í Loftkastalanum UPPSKERUHÁTÍÐ íslenskra rokkara verður laugardagskvöldið 19. desember í Loftkastalanum. Þar ætla sex hljómsveitir að spila efni af nýjum plötum. Hljómsveitimar era Botnleðja sem kynnir efni af plötunni Magnyl, Bellatrix kynnir plötuna „g“, Unun kynnir plötuna Otta, Súrefni kynnir plötuna „Wide Noise“, 200.000 nagl- bítar kynna plötu sína Neondýrin og Magga Stína kynnir sína plötu, „An album“. Auk þessara framvarðarsveita í íslenska rokkinu munu Hallgrím- ur Helgason og Mikael Torfason lesa úr nýjum bókum. Tónleikarnir, sem hafa yfír- skriftina Gefðu mér rokk í skóinn, hefjast kl. 21 og standa fram eftir nóttu. Miðaverð er 1.200 kr., en einnig eru miðar seldir í forsölu í Japis-búðunum og í Loftkastalan- um, og þar kosta þeir 1.000 krónur. N ýkomnir toppar undir jakka, silfur- og gullofnir. Verð kr. 2.900. Stærðir M—XXL Eddufelli 2, sími 557 1730 Opið í dagfrá kl. 10-22 og sunnudag frá kl. 13-16 Innilegar þakkir til allra okkar góðu vina og vandamanna, er glöddu okkur með blómum, gjöfum og heillaóskaskeytum á 80 ára afmæli okkar. Sérstakar þakkir til barna okkar, tengda- bama og barnabarna, sem glöddu okkur á svo margvíslegan hátt á þessum tímamótum. Guð blessi ykkur öll^ Asta og Sveinbjörn, Hraunprýði, Hellissandi. RAYM0ND WEIL Dömu- og herraúr úr eðalstáli, kúpt gler, verð kr. 49.900 Fáanleg með 18 karata gullhúð. Garðar Ólafsson úrsmiður, Lækjartorgi, s. 551 0081 í DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Aðstoð í Keflavík ÉG frétti að það væri enga aðstoð að fá í Keflavík fyrir fátækar mæðui-, enginn staður sem þær gætu leit- að til. Engin mæðrastyrks- nefnd eða Hjálpai'stofnun kirkjunnar, Rauði krossinn eða svoleiðis. Er einhver sem veit hvar hægt er að fá svona aðstoð í Keflavík? Móðir. Þakkir til Arnars ÞAD er ekki seinna vænna að þakka Arnari Jónssyni fyrir frábæran flutning á Sjálfstæðu fólki. Þessu stórkostlega ritverki Hall- dórs Laxness. Ég vona og veit raunar að landsmenn hafa ekki látið lesturinn fram hjá sér fara. Þessi frábæra saga Bjarts, með hans fólk í baksýn, náði hjarta hvers sem hlustaði, en oft ofbauð manni sjálf- birgingsháttur og eigin- hagsmunir Bjarts gagn- vart öllu sem hann hafði samskipti við, en er það ekki vöm lítilmagnans sem ekki vill viðurkenna, ekki einu sinni fyrir sjálfum sér, að hann er smár. Flutningur Arnars var ein- stakur og verðugt að eiga hann á „bandi“ þar sem komandi kynslóðh- geta lært söguna zum Bjart. Um tíma var ég ekki heima og þótt ég hafí lesið Sjálfstætt fólk fyrir löngu var mitt fyrsta verk eftir að heim var komið að taka bókina og lesa það sem ég hafði misst úr í flutningi Arnai-s. En ég varð svolítið hissa. Ég náði ekki sam- bandi við Bjart og hans fólk með mínum lestri í einrúmi. Slíkur var flutn- ingur Amars, hann lyfti sögunni í hæna veldi. Þakka þér fyrir Arnar. Kona Þakkir fyrir göngu- stíga í Kópavogi ÞÓRHALLA hafði sam- band við Velvakanda og langaði að koma á fram- færi þakklæti til forráða- manna Kópavogsbæjar fyrir yndislega upplýsta göngustíga í bænum og ekki síður þakklæti fyrir hvað hugsað er vel um göngustígana, bæði eru þeir mokaðir og borinn sandur á þá. Um jólasveina ÉG hafði gaman af því að heyra Olínu Þorvarðar- dóttur tala um jólasveina, fjölda þeirra og nöfn, í dægurmálaþætti Rásar 2 í vikunni. Um helgina sat ég með félaga mínum, Skagfírðingi, og ræddum við málin. Kom að því að fá að vita hvað sá fjórtándi og sá fímmtándi hétu, ef þeir væru ef til vill mennskir. Þar er ég er svoddan jólasveinn stund- um sagði ég, að hann héti Sveinn ki. Félagi minn sagði að bragði hinn fímmtánda heita Sauða- krókur. Féllumst vér báð- ir á þessi nöfn. Sveinn Guðmundsson. Þakkir fyrir gott lagaval ERNA hafði samband við Velvakanda og vildi hún koma á framfæri þakklæti sínu og kveðju til Lenu Kolbrúnar Eddudóttur, í morgunþætti ríkisútvarps- ins, fyrir einstaklega gott lagaval, fjölbreytta og létta tónlist. Góð þjónusta ÁNÆGÐUR viðskiptavin- ur hafði samband við Vel- vakanda og vildi þakka fyrir góða þjónustu sem hann fékk í Skífunni á Laugavegi. Ungur maður var þar við afgreiðslu og gaf hann sér góðan tíma til að aðstoða hann og hafði góða þekkingu á því sem hann var að gera. Segist hann hafa gengið mjög ánægður út úr versl- uninni. Tapað/fundið Giftingarhringur týndist KARLMANNS giftingar- hringur, 14 karata, týndist, trúlega í Bankasti’æti sl. föstudag. Inn í hringnum stendur Lillian. Skilvís finnandi hafi samband í síma 568 2972. Bækur f óskiluni ÞRJÁR bækur fundust sl. fostudag í Fífuhvammi. Þær lágu á götunni og gætu hafa dottið úr bíl. Þeir sem kannast við að hafa týnt þeim hafi sam- band í síma 554 0586. Silfurlitað mynda- albúm týndist SILFURLITAÐ mynda- albúm týndist við Álfheima 26 í lok september. Þeir sem kannast við albúmið hafi samband í síma 565 6732. Dýrahald Kettlingur fæst gefins NÍU VIKNA gullfalleg- ur kassavanur kettlingur fæst gefíns. Upplýsingar í síma 564 6116. í Hljóniskálagarði. Morgunblaðið/Ásdís. Búðu hana undir drauminn Glæsilegur undir- og náttfatnaður er örugg og auðveld leið að hjarta konunnar í lífi þínu. V\l// cS«' Mundu giatakcrtin! 1. HÆÐ • SIMI 553 7355 Víkverji skrifar... HART var deOt um gagnagrunns- frumvarpið á Alþingi, bæði inni- hald þess og vinnubrögð stjórnar- liða. Milli annarrar og þriðju um- ræðu rifust þau Siv Friðleifsdóttir, talsmaður meirihlutans í heilbrigðis- nefnd, og Össur Skarphéðinsson, talsmaður minnihlutans, harkalega um vinnubrögð við afgreiðslu máls- ins. Víkverji fylgdist spenntur með í sjónvai’pi og fannst eins og stemmn- ingin í þingsalnum hlyti að vera góð. Þau brýndu raustina og Össur var ekki að spara handahreyfingarnar til að leggja áherslu á mál sitt. Svo vildi til að bekkur vinkonu Víkverja, sem er 10 ára, var staddur í miðbænum á kaffihúsarölti þennan morgun og hópurinn kom við í Al- þingishúsinu. Fannst bömunum skemmtilegt að koma þarna, og sagði vinkonan að maður og kona hefðu komið til skiptis í ræðustólinn og bæði verið reið. En henni þótti skrýtið, að auk þessara tveggja, hefði mátt telja þá á fingrum ann- arrar handar sem sátu í salnum! Hún spurði þegar heim kom hvort þingmennirnir þyrftu ekki að vera í vinnunni. XXX yÍKVERJI las í gærmorgun á svokallaðri Team Talk síðu enska knattspyrnufélagsins Liver- pool á Netinu - síðu sem tengist reyndar félaginu ekki formlega - að næstu daga yrði líklega skrifað und- ir samning við mjög efnilegan varn- armann, stjörnu framtíðarinnar, eins og það var orðað. Sá heitir Endredre Sigurdsson í fréttinni og er sagður leika með liðinu Reykja- vik. Greint er frá því að Gerard Houllier, knattspyrnustjóra Liver- pool, þyki mikið til drengsins koma og mikils megi vænta af honum í framtíðinni. Endredre þessi mun vera Indriði Sigurðsson, KR-ingurinn bráð- efnilegi. Eða skyldi hann vera á mála hjá Fram? Víkverji gat ekki annað en brosað út í annað á dögunum, þegar Framarar ákváðu að nefna hlutafélag sitt Fótboltafélag Reykja- víkur - Fram. Þeim fannst fáránlegt þegar KR-ingar mölduðu í móinn og bentu á að líkur væru á að félögun- um yrði ruglað saman á erlendri grundu. Knattspyrnufélag Reykja- víkur og Fótboltafélag Reykjavíkm- yrðu mjög líklega bæði kölluð FC Reykjavík í enskumælandi löndum. Þetta fannst Frömurum harla ólík- legt, en nú virðist Víkverja sem þeg- ar hafi komið í Ijós að KR-ingar hafi haft lög að mæla. Þegai- greinin um Endredre á Team Talk síðunni er lesin er ógemingur fyrir útlendinga að átta sig á því hvort leikmaðurinn kemur úr KR eða Fram, FC Reykja- vik eða FC Reykjavik.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.