Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Loftárásir á írak ræddar á Alþingi Utanríkisráðherra / • segir arasirnar óhj ákvæmilegar HALLDÓR Ásgrímsson utanrík- isráðhen-a varði loftárásir Banda- ríkjamanna og Breta á írak í ut- andagskrái'umræðu á Alþingi í gær. Kvaðst hann að sjálfsögðu harma að til þeirra hefði komið en sagði ljóst að þær hefðu verið óumflýjanlegar miðað við það hvemig Saddam Hussein, forseti Iraks, hefði „þverskallast við að hlíta ályktunum Sameinuðu þjóð- anna (SÞ) og margbrotið loforð um að eyða sínum gereyðingar- vopnum.“ Steingrímur J. Sigfús- son, þingflokki óháðra, var máls- hefjandi umræðunnar um loft- árásirnar á Irak. Hann mótmælti ái-ásunum, fyi-ir hönd þingflokks óháðra, og tók undir orð Kofi Ann- ans, framkvæmdastjóra SÞ, um að þetta væri dapur sólarhringur í sögu SÞ. Steingrímur sagði það m.a. aug- ljóst að tímasetning árásanna tæki mið af „heimatilbúnum vandræð- um Bandaríkjaforseta“. I þær væri „rokið til að fá frestað þeirri atkvæðagreiðslu sem fyrir dyrum stæði um að lögsækja Bandaríkja- forseta fyrir embættisafglöp". Fleiri þingmenn stjórnarand- stöðu tóku í sama streng og Stein- grímur og eins og hann hvöttu þeir íslensk stjómvöld til þess að fara fram á að þessum árásum yrði hætt nú þegar og að þær yrðu ræddar í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Stjómarþingmenn, þar á meðal formaður utanríkismála- nefndar Alþingis, vörðu hins veg- ar aðgerðir Bandaríkjamanna og Breta og sögðu að einungis væri við Saddam Hussein að sakast. Steingrímur sagði að vel mætti vera að þessar árásir, án undan- gengis samþyktós Öryggisráðs SÞ, væru upphaf þess sem koma skyldi, því frá Bandaríkjunum hefðu nýlega borist þær fregnir að þar væm komnar á fiot hugmynd- ir Bandaríkjamanna um að útfæra starfssvið og hlutverk Atlants- hafsbandalagsins þannig að það tæki til alls heimsins og að það gæti hafíð einhliða árásir án und- angengins samþykkis SÞ. Þá sagði Steingrímur að þessar árás- ir bættust ofaná þær hörmungar og þjáningar sem almenningur í Irak hefði liðið vegna átta ára við- skiptabanns í kjölfar Persaflóa- stríðsins. Saddam Hussein ber ábyrgðina Halldór Asgrímsson utanríkis- ráðherra kvaðst þeirrar skoðunar, og það sama ætti við um íslensku rítósstjómina, að það hefði ekki verið komist hjá því að grípa til umræddra loftárása. „Það er væn- legra til árangurs en að sitja hjá því það eru ekki Vesturlönd sem bera ábyrgð á dauða þessa fólks sem háttvirtur þingmaður nefndi, heldur er það Saddam Hussein." Aðspm-ður sagði Halldór að það hefði ekki verið haft samband við íslensku ríkisstjómina og henni kynntai- aðgerðirnar áður en þær hófust en sagði að í gærmorgun, þ.e. á fimmtudagsmorgun, hefði fulltrái bandaríska sendiráðsins gengið á sinn fund og gert grein fyrir ástæðum þessara aðgerða. „Að því er varðar löglega hlið þessa máls má segja að þar verði að vitna til ályktunar Öryggisráðs SÞ númer 687 um vopnahlésskil- málana eftir Persaflóastríðið og í ályktun 678. Þar eru þeim ríkjum sem tóku þátt í aðgerðunum vegna Kuweit heimilar allar nauð- synlegar aðgerðir til þess að koma í framkvæmd ályktunum SÞ. A þessari túlkun er byggt og þrátt fyrir að aðrar þjóðir eins og Kína og Rússland hafi aðrar skoðanir er ég þeirrar skoðunar að þessi hlið málsins sé í lagi, þó að auðvit- að megi deila um það.“ Halldór vísaði því einnig á bug að farið hefði verið út í þessar loft- árásir vegna vandræða Banda- ríkjaforseta. „Eg held að það sé alveg ljóst að Bandaríkjaforseti er ekki í betri stöðu í sínum málum eftir þessar aðgerðir. Það eru ekki líkur til annars en að þingmenn sem hafa lýst því yfir að þeir muni greiða atkvæði með þeim tillögum sem eru uppi á Bandaríkjaþingi í sambandi við aðgerðii- gegn for- setanum muni verða enn ákveðn- ari í að halda við það til þess að sýna fram á það að þessar aðgerð- ir hafi ekki haft áhrif á þá. Þannig að ég held að það sé mjög erfitt að rökstyðja það og halda því fram að til dæmis Bretar hefðu verið þessu sammála og allir þeir sem eiga sæti í þjóðai’öryggisráði Bandaríkjanna," sagði hann. Tómas Ingi Olrich, formaður ut- anríkismálanefndai' Alþingis, sagði eins og utanríkisráðherra að það væri dapurlegt að til þessara aðgerða hefði þurft að grípa. Þær hefðu hins vegar verið óhjákvæmi- legar og tímasetningin hefði ekk- ert með vandræði Clintons heima fyrir að gera. „Hluti af atburðarás málsins hefur í mörgum tilfellum verið ákveðin af Saddam Hussein og utanríkisráðherra Iraks,“ sagði hann m.a. Lögin um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði samþykkt Læknar hvattir til að virða niðurstöðuna STJORNARFRUMVARPIÐ um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðis- sviði var afgreitt sem lög frá Alþingi í gær með mitóum meirihluta at- kvæða, 37 gegn 20, einn stjórnar- þingmaður, Einar Oddur Kristjáns- son, var á móti. Stjórnarandstæðing- ar sökuðu ríkisstjómina um gerræði í málinu, helsti hagsmunaaðilinn hefði beitt miklum þrýstingi og því var spáð að átökum væri hvergi nærri lokið. Sturla Böðvarsson, Sjálfstæðis- floktó, sagði mikilvægt að ná nú sátt- um um niðurstöðuna og læknar yrðu að hlíta landslögum í þessu sem öðru. FrávísunartiIIaga felld Fyrst vai' rædd frávísunartillaga allra fjögurra stjórnarandstöðu- flokka. Þingmenn gerðu margir grein fyrir atkvæði sínu og vöruðu sumir andstæðingar frumvarpsins við því að lögfesting þess myndi leiða til átaka og tjóns í heilbrigðiskerfinu en stuðningsmenn sögðu vel hafa verið staðið að meðferð þess. Gerðai' hefðu verið breytingar á frumvai-pinu, með- al annars að tillögum tölvunefndai', sem væru allar til bóta. Sólveig Pét- ursdóttir, þingmaður Sjálfstæðis- flokks, sagði að búið væri að ræða frumvarpið í alls 54 tóukkustundir og liðlega 60 þingmenn hefðu tekið til máls, það væri því fjarstæða að segja að það hefði ekki fengið nægilega umfjöllun. Bryndís Hlöðversdóttir, Alþýðu- bandalagi, sagði meðal annars að hagsmunum fjöldans væri kastað fyrir róða en fáeinir útvaldir fengju sínu framgengt hjá ríkisstjórninni. „Einkaréttur á einu mest vaxandi sviði atvinnulífsins, líftækniiðnaðar- ins, er brjálæði og það er andstætt heilbrigðum viðskiptaháttum. Per- sónuvernd íslendinga er ógnað hast- arlega með þessu máli auk þess sem ríkisstjórnin hefur beitt minnihlut- ann í heilbrigðis- og trygginganefnd valdníðslu og komið í veg fyrir lýð- ræðisleg vinnubrögð í nefndinni.“ Ögmundur Jónasson, þingflokki óháðra, sagði stjórnarandstöðuna hafa lagt fram lausn á málinu sem fæli í sér að gagnagrunnar yrðu dreifðir og mannréttindi yrðu virt en það væri ekki gert í frumvarpi stjómarinnar. Því bæri að hafna því. Svavar Gestsson, Alþýðubanda- lagi, sagði ólíðandi hvemig málið hefði verið meðhöndlað í heilbrigðis- og trygginganefnd og fullyrti að yfir- vofandi væm stórfelld málaferli vegna laganna ef þau yrðu samþykkt. Bætt hefði verið við frumvai'pið mik- ilvægum þáttum milli annarrar og þriðju umræðu, erfða- og ættfræði- þáttum. „Þessi siðlausu og gerræðis- legu vinnubrögð era fráleit," sagði þingmaðurinn. „Það er niðurlæging Styrjaldarárin á Suðurlandi Umsvif í 40 herstöðvum. Hernaðarflugið frá Kaldaðarnesi og hlutur þess í orrustunni um Atlantshaf. Sagt er frá sambúð hersins og héraðs- búa, skemmtunum og slysförum, árflóði og endalokum herstöðvarinnar í Kaldaðamesi. „Hér er sagan sögð bæði eins og hún horfði við íslendingum og einnig eins og hermennirnir sjálfir sáu hana. Hér er um einstœða bók og einkar verðmœta að i rœða. “ Sigurjón Björnsson, í ritdómi í Mbl. 26. nóv. 1998. Einn stjórnarþing- maður andvígur frumvarpinu -i lí-ý ALÞINGI fyrir þingræðið að afgreiða málið eins og það lítur út núna.“ Tillagan um frávísun var felld með 37 atkvæðum gegn 20. Breytingatil- lögur meirihluta heilbrigðisnefndar við framvarpið vora samþykktar með mitóum meirihluta. Síðan var gengið til atkvæða um sjálft frumvarpið, var það gert með nafnakalli og enn gerðu margir grein fyrir atkvæði sínu. Steingrímur Sig- fússon, þingflokki óháðra, sagði mál- ið augljóslega ekki tilbúið til af- greiðslu og gilti þá einu hve sterkt menn kysu að taka til orða, frá því að tala um minniháttai' mál yfir í stór- felldan álitshnektó fyrir þjóðina og „alþjóðlegan skandal11. Sýnd hefði verið sérstök og óvenjuleg harka og ofbeldi af hálfu ríkisstjómarinnai' og um væri að ræða sérstakt gæluverk- efni hennar. Eitt stærsta mál þjóðarinnar Sturla Böðvai’sson, Sjálfstæðis- flokki, sagði framvarpið forsvaran- legt miðað við þær aðstæður sem Is- lensk erfðagreining hefði fært þing- mönnum í hendur. „Nú þegar niðui'- staða er fengin skiptir öllu máli að ná sáttum við lækna og aðra vísinda- menn sem verða að virða þá niður- stöðu sem af lögum leiðir.“ Tómas Ingi Olrich, Sjálfstæðisflokki, sagði að verið væri að Ijúka afgreiðslu á einu stærsta máli þjóðarinnar. „Það er bjai'gfóst trá mín að með þessu máli sé verið að leggja hornstein að miklum fi'amfóram á sviði heilbrigðis- þjónustu og vísinda og því segi ég já.“ Valgerður Sverrisdóttir, Fram- sóknarflokki, sagði máhð byggt á djörfum hugmyndum en hún sæi ekki þær hættur sem andstæðingar hefðu haft mörg orð um. „Persónu- vernd er tryggð, aðgengi vísinda- manna almennt að upplýsingum inn- an heilbrigðiskerfisins verður betra. Sérleyfið er umdeilanlegasti hluti frumvarpsins en réttlætanlegt vegna þess kostnaðar og þeirrar þjónustu sem verðandi sérleyfishafi mun veita stjórnvöldum." Ögmundur Jónasson, þingflokki óháðra, rifjaði upp andmæli sem borist hefðu víða að, frá innlendum og erlendum aðilum, hann sagðist vilja óska forsætisráðherra til ham- ingju með Framsóknarflokkinn. Fal- leg ól um hálsinn dygði til að gleðja flokkinn. Ásta R. Jóhannesdóttir, þingflokki jafnaðarmanna, sagði mál- ið ekki vera fullunnið og ríkisstjórnin hefði sýnt yfirgang, hún bæri fulla ábyrgð á niðurstöðunni. Guðný Guð- björnsdóttir, Samtökum um kvenna- lista, sagði málið í upphafi hafa haft á sér áru framsækni á sviði þekkingar- sköpunar og heilbrigðisþjónustu þrátt fyrh' galla. Nú væri ljóst að gallamir væra enn þá mitóir og jafn- vel meiri en á upphafsreit, m.a. einkaleyfið, ófullnægjandi aðgangur vísindamanna, samkeyrsla upplýs- inga um heilsufar, ættfræði og erfðir með „tilheyrandi ógnun við persónu- vemd og siðareglur“. Kristín Ástgeirsdótth', þingflokki óháðra, sagði að hugmynd af þessu tagi myndi ekki fá hljómgrann ann- ars staðar í heiminum og taldi óvíst að gagnagrunnurinn yrði nothæfui' vegna andstöðu margra lækna. „Er- lendir vísindamenn eiga ekki orð yfir það hve gáleysislega íslensk stjórn- völd ganga um hinn viðkvæma heim erfðavísindanna.“ Hún sagði Alþingi myndu hafa skömm og skaða af mál- inu. Ekki Ijóst hvað eigi að selja Sighvatur Björgvinsson, þingflokki jafnaðarmanna, sagðist hafa verið já- kvæður gagnvart hugmyndinni um miðlægan gi-unn og hann hefði jafn- vel talið koma til greina að slaka á ströngustu ákvæðum um persónu- vernd í þágu framfara í heilbrigðis- málum, ekki síst í þágu hagsmuna þeirra sem veittu upplýsingamar. En framvarpið væri ámælisvert. „I fyi-sta lagi hefur ekki fengist svar við spumingunni um hvað eigi að selja sem sé svo verðmætt að fjár- festar séu reiðubúnir að leggja fram 20 þúsund milljónir króna.“ Einnig ætti að gera erfðafræðilegar upplýs- ingar aðgengilegar og úthlutun einkaleyfis stæðist ekki fjölþjóðlega sáttmála sem hefðu lagagildi. Þær Sigríður Anna Þórðai'dótth', Sjálfstæðisflokki, og Siv Friðleifs- dóttir, Framsóknarflokki, sögðu að um framfai-amál væri að ræða og mæltu með samþykkt. Sólveig Pét- ursdóttir andmælti því að framvarp- inu hefði verið gerbreytt milli ann- arrai' og þriðju umræðu. Þingmenn gætu ekki notað þær breytingar sem afsökun fyrir að snúast gegn frum- varpinu. Að umræðum loknum var gengið til atkvæða og voru þá áhorfendapall- ar þéttsetnir. Atkvæði féllu þannig að 37 vora samþykkh', 20 andvígir en sex þingmenn, þau Gísli S. Einars- son, þingflokki jafnaðarmanna, Hjálmar Jónsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, Lára M. Ragnarsdótth', þingmaður Sjálfstæðisflokks, Ólafui' Órn Hai'aldsson, þingmaðui' Fram- sóknarflokks, Svanfríður Jónasdótt- ir, þingflokki jafnaðarmanna, og Rannveig Guðmundsdóttir, þing- flokki jafnaðarmanna, voru fjarstödd. Einar Oddur Kristjánsson, Sjálf- stæðisflokki, vai' eini stjórnai'þing- maðurinn sem var andvígur. Níu frumvörp afgreidd á Alþingi Leiklistarfrumvarp orðið að lögum Árnesútgáfan, Selfossi - Sími 482 1567 AUK frumvarps til laga um gagna- grann á heilbrigðissviði vora átta frumvörp afgreidd sem lög frá Al- þingi í gær. Þar á meðal er frumvarp til laga um söfnunarsjóð lífeyrisrétt- inda og framvaip til laga um emb- ættiskostnað sóknarpresta. Auk þess mætti nefna frumvarp um leiklistar- lög, en það gerir m.a. ráð fyrh' að ákvæði um Þjóðleikhús verði gerð einfaldari og skýrari. Samkvæmt frumvarpinu sem nú er orðið að lög- um er m.a. gert ráð fyrir þeim mögu- leika að þjóðleikhússtjóri sitji lengur en tvö ráðningartímabil en einnig hafa leiklistarstofnanir eins og Leik- félag Akureyrar, Leikfélag Reykja- víkur og Islenski dansflokkurinn ekki stoð í lögum eins og áður. Alþingi Dagskrá Dagskrá Alþingis liefst kl. 10.30 í dag. Gert er ráð fyrir því að þá verði tekið fyrir frumvarp til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.