Morgunblaðið - 18.12.1998, Side 18

Morgunblaðið - 18.12.1998, Side 18
18 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Samtök verslunarinnar um frumvarp til laga um Utflutningsráð —> I öllum atriðum and- víg frumvarpinu SAMTÖK verslunarinnar eru í öll- um atriðum andvíg frumvarpi til laga um Utflutningsráð Islands. I bréfí sem samtökin hafa sent efna- hags- og viðskiptanefnd Alþingis kemur fram að þau telji að frum- varpið muni ekki tryggja fulla sátt um starfsemi Utflutningsráðs til framtíðar og samtökin lýsi sig því í öllum atriðum andvíg frumvarpinu. „Samtök verslunarinnar - FIS tóku þátt í starfi nefndar um endur- skoðun laga um Útflutningsráð Is- lands síðastliðið haust. I þeirri nefnd náðist allvíðtæk samstaða, þó svo að fulltrúi iðnaðarins hafí skilað sérá- liti. Niðurstaða meirihlutans var ákveðin málamiðlun sem fulltrúi okkar samtaka taldi tilraunarinnar virði. Með því frumvarpi sem fyrir liggur er engu líkara en nú eigi að færa í lög tillögur minnihlutans. Petta er þeim mun torskildara þeg- ar haft er í huga að af þeim fjölda manna frá atvinnurekendasamtök- unum sem komu á fund nefndarinn- ar voru sárafáir þessarar sömu skoðunar," segir í bréfinu. Breyt.ingar á markaðsgjaldi óviðunandi I frumvarpinu er gert ráð fyrir að markaðsgjald skuli vera lagt á gjald- stofn til greiðslu tryggingargjalds. I greinargerð með frumvarpinu kem- ur fram að lagt er til að framlag til Útflutningsráðs verði ekki bundið við 0,15% af veltu fyi-irtækja eins og nú er heldur renni 0,05% af trygg- ingagjaldsstofni til ráðsins. Gert er ráð fyrir að þetta leiði til um 20 millj- ón króna hærri tekna ráðsins en af markaðsgjaldi samkvæmt lögum. Þessu mótmæla Samtök verslun- arinnar í bréfinu til efnahags- og viðskiptanefndar. „Samtökin telja það með öllu óviðunandi að áfram skuli gert ráð fyrir sérstakri skatt- lagningu til Útflutningsráðs og lýsa yfír efasemdum um réttmæti slíkrar skattheimtu. Samtökin draga stór- lega í efa þá útreikninga um hlut- fallslegar greiðslur verslunar í breyttri skattheimtu sem fram koma í athugasemdum með frum- varpinu. Samkvæmt tölum sem sam- tökin hafa undir höndum og fengnar voru frá embætti ríkisskattstjóra er verslunin í landinu að greiða 31% af innheimtu á tryggingargjaldi á gjaldaárinu 1997. Þar er ATVR og fríhöfnin meðtalin en önnur ríkisfyr- irtæki er þar ekki að fmna. Þrátt fyrir að samtökin hafi óskað eftir út- reikningum í frumvarpinu frá fjár- málaráðupeytinu hafa þeir ekki fengist. A meðan er ekki hægt að leggja trúnað á þessar upplýsingar. Að áliti Samtakanna greiðir verslun- in því enn mest af þessari skatt- heimtu. Þessu vilja samtökin mót- mæla og ítreka fyrri skoðun að greiðslur til ÚI komi af fjárlögum," segir ennfremur í bréfi frá Samtök- um verslunarinnar. óem mur urinn foe PHILIPS 29PT8304 er eitt m| fullkomnasta sjónvarps- tæki sem þessi viðurkenndi 8 framleiðandi hefur boðið upp á. Tækið býður upp á flökt-og titringsfría mynd sem er skarpari, skýrari og hreinni en í flestum sjónvarpstækjum. Einnig frábæran hljóm og einfaldar og aðgengilegar stillingar á mynd og hljóði. Fáðu þér alvöru sjónvarpstæki fyrir jólin og njóttu jóladagskrárinnar til fulls. Philips toppcjœði « jófatiÉhoði • 100hz - Digital Scan • Ci^stal Clear III tækni með scavem • Nicam Stereo með 70W magnara • „Smart Control" takkar á fjarstýringu • Sjálfvirk innsetning stöðva • Barnalæsing og fleira og fleira Aðeins: Ef þú kaupir fyrir 7.000 krónur eða meira, fer nafn þitt í lukkupott þar sem dregið er í hverri viku um Heimilistæki hf 100.000 krónur SÆTÚNI 8 SlMI 569 15 OO http.//www.ht.l s umboðsmenn um land allt <s> 4S> Útgerðarfélögin Gunnvör og Hraðfrystihúsið Grundvöllur fyrir samein- ingu kannaður STJÓRNARMENN tveggja stærstu útgerðarfélaga á Vest- fjörðum, Hraðfrystihússins hf. í Hnífsdal og Gunnvarar hf. á Isa- firði, hafa samþykkt að ganga til viðræðna með hugsanlega sam- einingu félaganna í huga. í frétta- tilkynningu kemur fram að kanna eigi ítarlega hagkvæmni þess að sameina fyrirtækin og dótturfé- lög þeirra í eitt félag. Ötgerðarfé- lögin reka hvort um sig 3 skip auk þess sem Hraðfrystihúsið gerir út 2 leiguskip til rækju- veiða. Einar Valur Kristjánsson, stjómarformaður Hraðfrysti- hússins, vildi lítið tjá sig um málið í samtali við Morgunblaðið í gær, enda viðræðumar stutt á veg komnar. Hann sagði að líkt og hjá öðrum atvinnurekendum, þá sé markmiðið að styrkja og bæta rekstur félagsins. „Ef menn sjá einhverjar leiðir til að mæta þeim markmiðum, þá eru þær að sjálf- sögðu kannaðar.“ Magnús Reynir Guðmundsson, stjórnarformaður Gunnvarar og íshúsfélagsins, tók í sama streng og sagði ótímabært að spá ein- hverju um útkomu viðræðanna sem væra nýhafnar. Hafa áður rætt samstarf Vitað er að stjórnir fyrirtækj- anna hafa áður kannað grandvöll fyrir sameiningu, án árangurs. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins standa stórir hluthafar í félögunum fyrir þeim viðræðum sem nú eiga sér stað og eru vonir bundnar við að hægt verði að ganga frá sameiningu í kringum næstu áramót. Starfsemi fyrirtækjanna teng- ist þegar að nokkru leyti. Hrað- fi-ystihúsið hf. rekur frystihús í Hnífsdal og rækjuverksmiðju í Súðavík. Fyrirtækið á einnig helminginn í Mjölvinnslunni hf. I Hnífsdal á móti íshúsfélagi Is- firðinga, sem er dótturfélag Gunnvarar. Þá á Gunnvör 17,38% hlut í Hraðfrystihúsinu í gegnum dótturfélag sitt Tog ehf. Bæði eru félögin einnig hluthafar í Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna. Pantar TWA 75 Airbus A318 og A320? London. Reuters. BANDARÍSKA flugfélagið Trans World Airlines mun væntanlega panta 75 þotur af gerðunum Airbus A318 og A320 og tryggja sér kaup- rétt á 75 til viðbótar samkvæmt heimild í flugvélaiðnaðinum. Bandaríska blaðið Scattle Times sagði í frétt á vefsíðu að TWA væri þess albúið að panta 50 Boeing 717 að verðmæti um 1,4 milljarðar doll- ara. Einnig væri búizt við að félagið ti-yggði sér kauprétt á 50 Boeing 717 í viðbót, þannig að verðmæti pöntunarinnar í heild gæti numið um 2,8 milljörðum dollara. Blaðið sagði hins vegar að félagið kynni að panta fleiri 100 sæta flug- vélar frá keppinautinum Airbus. Að þess sögn nemur andvirði 75 fastra pantana á Airbus um 2,5 milljörðum dollara og kaupréttur á 75 í viðbót mundi tvöfalda andvirðið. Ef félagið stendur við pöntunina verður TWA fyrsta flugfélagið sem pantar A318 og þar með mun evr- ópska flugiðnaðarsamsteypan geta hleypt hinni nýju 100 sæta þotu sinni af stokkunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.