Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR PRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 11 skaðabótalögin hafa í för með sér að slysatjón hækka um 38% og það þýðir að nauðsynlegt er að hækka iðgjöldin um 25% af þeirri einu ástæðu. Það er líka ljóst, eins og fram hefur komið í ársskýrslu Tryggingamiðstöðvarinnar undan- farin tvö ár, að bílatryggingar hafa verið reknar með miklu tapi. Ið- gjöldin voru lækkuð fyrir þremur árum óháð tryggingalegum for- sendum. Það hefur því ýmislegt hjálpast að við að gera þessa grein ranglega verðsetta. Þessi breyting á skaðabótalögunum 1. maí gerir svo að verkum að knýjandi er að hækka iðgjöldin vegna þess að lögin hafa veruleg áhrif,“ sagði Gunnar. Vátryggingafélög ákveða allt að 40% iðgjaldshækkanir vegna bifreiðatrygginga 8.000-11.000 kr. hækkan- ir á einkabfl í millistærð FORSVARSME NN tryggingafélag- anna benda á að nýju skaðabótalög- in, sem öðluðust gildi 1. maí sl., hafi í för með sér aukinn tjónakostnað fyr- ir félögin og segja iðgjaldshækkanir því óhjákvæmilegar. 35-40% hækkanir hjá Sjóvá-Almennum Gjaldskrárhækkanir vegna bif- reiðatrygginga hækka á morgun, 2. júní, hjá Sjóvá-AImennum Trygg- ingum hf. um 35-40%, að sögn Ein- ars Sveinssonar, _ framkvæmda- stjóra félagsins. I krónum talið nemur hækkunin hjá flestum bif- reiðaeigendum frá 9.000-11.000 kr. vegna trygginga algengustu einka- bíla yf millistærð. „Ástæðan fyrir þessu eru þær breytingar sem áttu sér stað með breytingu skaðabótalaga frá 1. maí síðastliðnum samkvæmt ákvörðun Alþingis. Þær hækka fyrirsjáanlega okkar tjónakostnað og okkur er því nauðugur einn kostur að bregðast við með því að laga iðgjöldin að breyttum forsendum,“ sagði Einar. Hann sagði að þegar bótagrund- vellinum væri breytt með svo rót- tækum hætti eins og raun er á væri óhjákvæmilegt að bregðast við með þessum hætti. „Lögboðnum öku- tækjatryggingum er ætlað að borga skaðabætur þannig að það er beint samspil þama á milli,“ sagði Einar. Hann sagði einnig að úr því að talið hefði verið rétt að hækka skaðabætur væri eina úrræðið, annað en að hækka iðgjöldin, að fækka tjónum í umferðinni. „Það er sér- verkefni út af fyrir sig. Fjöldi tjóna sem ungir ökumenn lenda í er einnig mikið áhyggjuefni. Það þarf að skoða það alveg sérstaklega Stóru vátryggingafélögin hækka iðgjöld bifreiðatrygginga nú frá og með mánaða- mótum og eru hækkanirnar á bilinu 35-40% af algengustu tegundum einkabíla, sem jafngildir um 8-11 þúsund kr. hækkun fyrir einkabíla af millistærð, skv. upplýs- ingum forsvarsmanna félaganna. Fram- kvæmdastjóri Neytendasamtakanna gagn- rýnir hækkanirnar harðlega og fram- kvæmdastjóri FIB lýsir furðu sinni á þeim. hvort hægt er að gera þar breyting- ar á. Löggjafinn ætti að hugleiða hvort tilefni er orðið til að hækka lágmarksaldur til að fá ökuréttindi úr 17 í 18 ár. Það er þó ekki rétt að ráðast í slíkt nema að vel athuguðu máli,“ sagði Einar. 36-38% hækkanir hjá VÍS Tryggingaiðgjöld algengustu bif- reiðaflokka af millistærð hækka um 36-38% í hæsta bónusflokki hjá Vá- tryggingafélagi fslands hf. Frá og með sama tíma hækkar hæsti bónus úr 70% í 75% og færast allir í hæsta bónusflokki sjálf- krafa í 75% bónus. „Við gerum tilsvarandi breyt- ingar á iðgjaldaskránni. Við gerum þetta í þeim tilgangi að meiri munur verði á þeim sem engum tjónum hafa valdið í langan tíma og hinna sem hafa valdið tjónum. Það eykst því bilið á milli þeirra sem voru t.d. með 50% Forstjóri TM telur þörf á 25% hækkun vegna skaða- bótalaganna og þeirra sem voru með hæsta bón- usinn og fara í 75%,“ sagði Axel Gíslason, forstjóri VÍS. Hækkunin tekur gildi frá og með deginum í dag fyrir nýjar trygging- ar og kemur svo smám saman til framkvæmda hjá föstum viðskipta- vinum á gjalddögum við endumýjun trygginganna á komandi mánuðum. Hækkunin verður því ekki öll komin til framkvæmda hjá öllum fyrr en að ári liðnu, að sögn Axels. Að hans sögn þýðir þessi hækkun að trygg- ingaiðgjöld hjá flestum munu hækka á bilinu 8.000 til 11.000 kr. „Þetta er afleiðing þess að Alþingi hefur ákveðið að auka skuli bótarétt þeirra sem slasast í umferðinni og annarra þeirra sem fá bætur sam- kvæmt skaðabótalögum vegna lík- amstjóna. Okkur er falið að fram- kvæma þessa breytingu," sagði Axel. Hann benti á að hækkun bóta væri veruleg og sú hækkun yrði ekki sótt annað en með því að hækka iðgjöld þeirra sem tryggðir eru. Axel benti á að skaðabótalögin hefðu í fór með sér verulegar breyt- ingar á bótafjárhæðum, sem gætu þó verið mjög breytilegar eftir einstök- um tilvikum. Nefndi hann þrjú dæmi því til stuðnings um upphæð bóta fyrir og eftir breytinguna á lögunum. Ef um er að ræða 18 ára ungmenni sem ekld hefur verið á vinnumarkaði og metið er til 20% varanlegrar ör- orku hefðu bætur skv. eldri lögum numið 1.225.800 kr. en verða skv. nýju lögunum 4.971.969 kr., sem er 296% hækkun, skv. útreikningum VÍS. I öðru dæmi um 30 ára einstak- ling með tvær millj. kr. í árslaun hefði viðkomandi fengið fyrir breyt- ingu 3.800.000 kr. í bætur vegnar 20% varanlegrar örorku en eftir breytinguna fengi hann nú 5.125.200 kr., sem jafngildi 35% hækkun bóta. Sjötugur einstaklingur sem hætt hefur störfum hefði engai’ bætur fengið fyrir 20% varanlega örorku skv. eldri reglum en fengi nú 319.870 kr., skv. upplýsingum Axels. Hluti hækkunar vegna tap- rekstrar og launaþróunar Breytingar verða gerðar á ið- gjöldum bifreiðatrygginga hjá Tryggingamiðstöðinni í dag eða á allra næstu dögum, að sögn Gunn- ars Felixsonar, forstjóra TM. Um verður að ræða nálægt 10.000 kr. hækkun iðgjalds fyrir algengustu fjölskyldubíla. Gunnar segir að um það bil tveir þriðju hlutar hækkunar- innar stafi af þeim breyt- ingum sem gerðar voru á skaðabótalögunum í vor. „Hluti hækkunarinnar er líka vegna tap- rekstrar í greininni og launaþróun- ar í landinu," sagði Gunnar. „Okkar útreikningar sýna að nýju „Virðist vera sameiginleg ákvörðun tryggingafé- laganna“ Fjármálaeftirlitið kalli eftir skýringum Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig- enda, segist undrast mikla iðgjalda- hækkun tryggingafélaganna, ekki síst fyrir þá sök að nánast sé um sömu hækkanir að ræða og á sama tíma hjá þremur stærstu félögun- um. FIB hefur verið í samstarfi um vátryggingar fyrir félagsmenn sjna hjá Lloyd’s. Runólfur sagði að FÍB- Tryggingar myndu ekki hækka ið- gjöld sín nú um mánaðamótin. Talið væri að einhverra hækkana sé þörf til að mæta hækkun skaðabóta- stuðla vegna lagabreytingarinnar en þær breytingar væru langt í frá jafn miklar og þær hækkanir sem tryggingafélögin hafa ákveðið. „Það er mat manna í vátryggingaheimin- um að mjög erfitt sé að meta hversu mikil hækkunarþörfin er og það muni að einhverju leyti koma í ljós á næstu árum,“ sagði hann. „Við lítum á það sem hlutverk okkar í þessari neytendabaráttu að geta leitað að besta verði á hverjum tíma. Það sýnir sig að það þarf að- hald á markaðinum. Þetta ber keim af því að menn séu með samráð að einhverju leyti því hækkanirnar hjá tryggingafélögunum koma allar fram núna 1. júní. Það sýnir enn frekai' þörfina á samkeppni og að annar valkostur sé til á markaðin- um,“ sagði Runólfur. „Við teljum eðlilegt að Fjármála- eftirlitið kalli eftir skýringum frá fé- lögunum," sagði hann og benti m.a. á að nú væra um 17 milljarðar í bótasjóðum tryggingafélaganna vegna ábyrgðartryggingar öku- tækja. Þetta væru sjóðir sem bif- reiðaeigéndur hefðu myndað hjá fé- lögunum. „Þeir ættu að njóta þess. Auðvitað er þarna að einhverju leyti líka um óuppgert tjón að ræða en þarna er um gríðarlega fjármuni að ræða. Fjármagnstekjur félaganna eru miklar og öll hafa þau verið að skila dágóðum hagnaði á undanliðn- um árum,“ sagði hann. Upplýsingar verði lagðar á borðið fyrir almenning Jóhannes Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Neytendasamtak- anna, gagmýnir iðgjaldahækkanir Tryggingafélaganna harðlega. „Maður verður orðlaus þegar maður heyrir svona tölur. Það eru sem bet- ur fer að lágmarki tíu ár frá því að svona prósentutölur hafa heyrst,“ sagði Jóhannes og bætti við að þörf væri á að þar til bær yfirvöld tækju þessar hækkanir og forsendur þeirra til skoðunar og upplýsingam- ar verði lagðar á borðið fyrir al- menning. „Mig óar við hækkun af þessu tagi á sama tíma og menn tala um að verðbólga sé að fara af stað í landinu," sagði Jóhannes. „Okkar krafa hlýtur að vera sú, að þetta verði skoðað mjög vand- lega. Ég minni á að hér er um að ræða fákeppnismarkað. Þetta virð- ist vera sameiginleg ákvörðun tryggingafélaganna. Mér finnst að bæði hækkunin og hvernig staðið er að henni af hálfu trygginga- félaganna geri að verkum að það verður að fara yfir þetta mál. Menn eru _______ þarna að stimpla inn mjög háa tölu. Þarna er um að ræða fákeppnismarkað og á fákeppnismarkaði geta menn leyft sér ýmislegt. Ég veit ekki betur en að rekstur tryggingafélaga sé bæri- legur í dag,“ sagði Jóhannes.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.