Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 54
i£4 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 HESTAR MORGUNBLAÐIÐ GÍNA frá Auðsholtshjáleign er enn einn gullmolinn úr ræktun Gunn- ars Arnarssonar, sem situr hryssuna. MorgunblaðiðA^aldimar Kristinsson ÓSKAR frá Litladal kemur vel undan vetri hjá Sigurbirni Bárðarsyni og hefur nú betur í viðureigninni við Hrafn frá Garðabæ. Héraðssýning> í Kjalarnesþingi Góð útkoma en _ fáar stjörnur HEILDARÚTKOMA héraðssýning- ar kynbótahrossa í Víðidal var að sögn Víkings Gunnarssonar for- manns dómnefndar í ríflega góðu meðallagi en lítið um atkvæðamikla skörunga. Þá komu heldur færri hross til dóms en verið hefur undan- farin ár. Þeir sem hæst fetuðu sig upp dómskalann voru stóðhestamir Óskar frá Litladal og Hrafn frá Garðabæ sem báðir eru fimm vetra. Þetta mun í þriðja skipti sem þeir koma fram saman á sýningu og hafði Óskar nú betur í fyrsta skipti. Hefur verið skemmtileg stígandi í þessum hesti hjá Sigurbimi Bárðarsyni og þótt hann sé nú heldur lægri fyrir ■%<köpulag en í fyrra þá er hann að bæta sig í hæfileikum. Skeiðið er að koma í rólegheitum en skeiðhryssan Ósk frá Litladal er sem kunnugt er alsystir hans og bíða menn með önd- ina hálsinum eftir afkastavekurð í litla bróður. En styrkur Óskars ligg- ur ekki síst í því hversu jafn hann er í öllum atriðum og það sem gerir hann kannski öðmm betri er að hann fær gott fyrir öll atriði byggingar, líka fætur! Hrafn er efni í skrefamikinn gæð- ing, en dómnefndarformaðurinn var eitthvað að hnýta í grófleika brokks- ins og sagði eitthvað á þá leið að það væri aðeins fyrir atvinnumenn að sitja svona hest svo vel færi. Hrafn ^jfær einnig gott fyrir byggingu þótt örlítið sé hálsinn þykkur eins og á mörgum Orraafkvæmum. Hér er sannarlega á ferðinni mjög álitlegur kynbótahestur og sorglegt að hann skuli vera á leiðinni vestur um haf. Þar mun hann væntanlega gera sitt gagn í ræktun íslenskra hesta en það er mikilvægt að menn geri sér grein fyrir því að mikilvægt er að ræktuð séu góð íslensk hross víðar en á ís- landi. Það er bót í máli að til er al- bróðir Hrafns sem kemur væntan- lega fram á næsta ári. Baldvin Ari kom með efnilegan fjögurra vetra hest undan Óði og Kviku frá Brún, Ósloga frá Rauða- læk, og þykir efnilegur töltari. Fór hann vel hjá Baldvini Ara og er góð vísbending um að Óður gefí mjög sterkt tölt. Að síðustu er vert að minnast á frammistöðu hrossanna frá Auðsholtshjáleigu þar sem Gunn- ar Arnarsson og Kristbjörg Evinds- dóttir stunda hrossarækt af kappi. Þama voru þau með hryssur í fremstu röð og skemmst er að minn- ast frammistöðu stóðhestsins Garps á stóðhestastöðinni í vor. Ekki þarf glöggan mann til að sjá að þau hjón eru á réttri leið í hrossaræktinni þar sem Orri er aðalhesturinn og Hektor frá Akureyri skilar þeim einnig góð- um gripum, sem sjá má í dómsniður- stöðum hér á hestasíðunni. Valdimar Kristinsson I M W ' 'ÍM w - 5 jf ■ JR ■ M |W 1 lii MorgunblaðiðA^aldimar Kristinsson ORMIJR frá Dallandi lengst til hægri er um margt undraskepna, fótaburður og fas með miklum ágætum. Gott dæmi um góða uppbyggingu gæðings hjá Atla Guðmundssyni sem hér hampar verðlaunum ásamt keppi- nautum í A-flokki. Gæðingakeppni Fáks Ormurinn hinn öruggi sigurvegari í A-flokki Þrjú gæðingamót voru haldin um helgina á höfuðborgarsvæðinu auk héraðssýningar kynbótahrossa og sjón- varpskappreiða Fáks. Það var því í mörg hornin að líta hjá Valdimar Kristinssyni sem kíkti á alla þessa viðburði hestamanna. FÁKUR heldur uppteknum hætti og gengur fram fyrir skjöldu og galopn- ar mót sitt fyrir hestamönnum úr öðrum félögum. Eru margir þeirrar skoðunar að opna beri öll mót eftir að áhugamannaflokkarnir komu til sögunnar. Keppni A-flokks gæðinga hjá Fáki var ekki mjög spennandi hvað keppn- ina varðar en eigi að síður gaman að sjá svo marga góða hesta sem þar komu fram. Ormur frá Dallandi sem Atli Guðmundsson sat sigraði eins og reiknað var með og hafði nokkra yfir- burði. Það er fyrst og fremst óvenju mikill fótaburður sem piýðir þennan hest og hátt fær hann fyrir fegurð í reið. Sömuleiðis er bæði brokk og tölt tilkomumikið en skeiðið síðra þótt gott sé. Þá kom Steingrímur Sigurðsson fram með ungan og efni- legan hest, Þyt frá Kálfhóli, sem þaut beint í 8,70 í sinni frumraun í gæð- ingakeppni, en hann er undan Kveik frá Miðsitju. Vignir Jónasson kom HM-kandídat sínum, Klakki frá Búlandi, í þriðja sætið með góðum skeiðsprettum í úrslitum. í B-flokki urðu úrslit frekar óvænt ÞYTUR frá Kálfhóli vakti verðskuldaða athygli, aðeins sex vetra flýg- ur hann í háar einkunnir hjá góðum knapa, Steingrími Sigurðssyni. VERÐLAUNAHAFAR í B-flokki hjá Andvara, Siguroddur og Hvatning sem sigruðu, Guðmundur og Grettir, Jón og Glitnir og Arni og Bersir. þegar Sigurbjöm Bárðarson reið Djákna frá Dunhaga til sigurs. Djákni hefur komið víða við og staðið sig með sóma en aldrei komist á toppinn í harðri keppni en alltaf ver- ið við hann. Nú sneri Sigurbjörn blaðinu við eftir að hafa verið í öðru sæti eftir forkeppni en það eru ár og Nú er tækifærid, ekki missa af þessul véR é ótrúlegu verði! Vinnuhesturinn • 15“ skjár • 266 Mhz Intel Pentium II Klamath • 32 MB innra minni • 6,4 GB Fujitsu diskur • 8 MB Matrox Productiva skjákort • 36 x Creative geisladrif • 64 bita Soundblaster hljóðkort • 80 W Creative hátalarar • 33,6 KB mótald • 2ja mánaða internetáskrift • Lyklaborð og Microsoft mús • Windows 98 uppsett og á CD BT • Skeifunni 11 • Rvk • S: 550 4444 • BT • Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • S: 550 4020
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.