Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 13 FRÉTTIR Raforkubændur stofna samtök Verður samið við RARIK? RAFORKUBÆNDUR hafa hafið undirbúning að stofnun landssam- taka og kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá þeim að Rafmagnsveitur ríkisins hafi sýnt því áhuga að kaupa hluta umframorku, sem þeir framleiða, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. I tilkynningunni kemur fram að hagkvæmni smávirkjana hafi vaxið á undanförnum árum og möguleikar skapast á raforkuframleiðslu um- fram eigin not eigenda, sem hafi í för með sér að bændur hafi aukna tekjumöguleika á bújörðum sínum. Að undirbúningi stofnunar sam- takanna standa Þórarinn Hrafn- kelsson, Hallgeirsstöðum Norður- Héraði, og Olafur Eggertsson, Þor- valdseyri, Austur-Eyjafjallahreppi. Stofnfundur samtakanna verður í Reykjavík á föstudag. Morgunblaðið/Arnaldur Skokk- að við Ægi- síðuna ÞAÐ hefur viðrað vel fyrir skokkara undanfarna daga. Skokkarinn, sem hér sést, lét sig ekki muna um að fara út i stuttbuxum þegar hann lagði í hann eftir Ægisíðunni á slíkum hraða að hann vart festist á filmu Ijósmyndarans. Reykjavíkurapótek Innréttingarnar teknar niður HÚSAFRIÐUNARNEFND hefur heimilað nýjum eiganda Reykjavík- urapóteks að taka niður innrétting- arnar í apótekinu, en þær eru friðað- ar, og koma þeim fyrir í geymslu. Að sögn Karls Steingrímssonar, framkvæmdastjóra Eignarhaldsfé- lagsins Kirkjuhvols ehf., eiganda hússins, verða innréttingarnar flutt- ar tímabundið í geymslu. „Húsafrið- unamefnd hefur heimilað flutning- inn og verða allar framkvæmdir í samráði við nefndina," sagði hann. Enn hefur ekki verið ákveðið hvaða rekstur verður í húsnæðinu. „Það er aðallega afgreiðsluborðið sem hefur staðið í vegi fyrir því að hægt sé að nýta húsnæðið baka til, en þar eru myndarlegir salir sem fá þá að njóta sín,“ sagði Karl. •BJÖRN Zoega varði doktorsritgerð við Háskólann í Gautaborg 11. des- ember sl. Heiti ritgerðarinnar er „Cervical discect- omy and fusion with or without plate fíxation. A randomized clin- ical and radio- graphic study on outcome and cost utility." Aðalleiðbein- andi Bjöms var Bengt Lind dósent og aðstoðarleiðbeinandi Johan Karr- holm, prófessor. Andmælandi við doktorsvömina var prófessor Steven Garfin, forseti Norður-amerísku hryggjarsamtakanna (North Americ- an Spine Society) en dómnefndina skipuðu Bjöm Strömquist, dósent í Lundi, Sven Ekholm, prófessor og Anders Nordwall, dósent, sem báðir starfa við Háskólann í Gautaborg. Ritgerðin fjallar um meðferð á brjósklosi í hálsi með tvenns konar skurðaðgerðum. Arangur skurðað- gerðanna var síðan metinn á mismun- andi hátt, m.a. með klíniskri skoðun og sérstakri röntgenskoðun. Reynt var að finna þá þætti sem höfðu hag- felldust heildaráhrif á árangur með- ferðarinnar. Einnig var rannsökuð og metin hagkvæmni mismunandi að- gerða og mat lagt á árangur með til- liti til kostnaðar (cost utility). Ein meginniðurstaða rannsóknar- innar er sú að skurðaðgerðir bæta h'tt og ekki andlega og líkamlega hðan þeirra sem hlotið hafa brjósklos við hálshnykk. Hins vegar reynist unnt að bæta hðan brjósklossjúklinga verulega með skurðaðgerðum og mið- að við kostnað við slíkar aðgerðir er sá bati sem þá næst einn sá besti sem unnt er að stuðla að með læknisfræði- legum aðgerðum og meðferð. Bjöm Zoéga er fæddur í Reykjavík 1964. Foreldrar hans eru Guðrún Bjömsdóttir og Jón Zoéga, hæsta- réttarlögmaður. Bjöm lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykja- vík 1984 og embættisprófi í læknis- fræði frá Háskóla íslands 1990. Bjöm starfar nú sem yfirlæknir hryggjar- skurðdeildar bæklunardeildar Sa- hlgrenska sjúkrahússins í Gautaborg. Hann er kvæntur Hörpu Áraadóttur myndlistarmanni. Þau eiga tvo syni, Áraa Berg og Jón Gunnar. ■ Hvort sem leið þín liggur á Austurvöll eða Austurland; upp á hálendið eða upp í Breiðholt er Honda CR-Vrétti ferðafélaginn. Honda CR- V er vel búinn og sprækur sportjeppi á mjög hagstæðu verði og sameinar bestu kostijeppa og borgarbíls. . - betri bíll Vatnagörðum 24 ■ Sími 520 1W0 ■ www.honda.is Akranes: Bílversf.. $tmi 437 19BS. Akurayri: Höldur hf., sími 4613000. Egihstaðir: Bíia- og búvélasalan hf.. stmi 4712011. Keflavík: BG Bllakringlan ehf. simi4211200. Vestmannaeyíar: Bílaverkstæðið Bragginn, sími481 1S3S.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.