Morgunblaðið - 24.08.1999, Blaðsíða 1
VÍNNINGSTÖLOR
LAOGARÐAGINN
<*>
1999
í ÞRIÐJUDAGUR 24. AGUST
BLAD
FRJALSIÞROTTIR / HM I SEVILLA
Vala og
Þórey farnar
VALA Flosadóttir og Þórey Edda Elísdótt-
ir stangarstökkvarar héldu frá Sevilla í
gær ásamt þjálfaranum Stanislav Szczyrba,
til Svíþjóðar. Vala sagðist ekki reikna með
að keppa á mörgum mótum það sem eftir
væri keppnistímabilsins, enda fá mót eftir
og stangarstökk yfirleitt ekki á meðal
keppnisgreina, eins og á Gullmótum Al-
þjóða fijálsíþróttasambandsins.
Hér á myndinni eru Þórey Edda og Vala
vonsviknar eftir að þær voru úr leik.
S'V
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
KNATTSPYRNA / 22 MANNA EVRÓPUHÓPUR
Einn frá Islandi
ENGINN leikmaður á íslandi, fyrir utan Birki Kristinsson, mark-
vörð úr Eyjum, kemst í 22 manna hóp sem Guðjón Þórðarson
landsliðsþjálfari valdi í landsleikina við Andorra og Úkraínu á
Laugardalsvelli 4. og 8. september næstkomandi þrátt fyrir að í
hópinn hafi verið bætt fjórum leikmönnum. í hópinn bættust
Ólafur Gottskálksson, sem hefur staðið sig ágætlega með Hi-
bernian í Skotlandi, Jóhann B. Guðmundsson hjá Watford, Eiður
Smári Guðjohnsen hjá Bolton og Arnar Þór Viðarsson hjá
Lokeren.
Guðjón segir ástæðuna fyrir við-
bótinni að margir leikmenn séu á
„gráu svæði“ varðandi meiðsli og
þar sem flestir leikmennirnir séu
að leika með liðum sínum um helg-
ina verði hann að hafa vaðið fyrir
neðan sig. Til dæmis séu Auðun
Helgason, Pétur Marteinsson,
Rúnar Kristinsson, Þórður Guð-
jónsson og Eyjólfur Sverrisson
meiddir í dag en telja sjálfir að þeir
verði búnir að ná sér fyrir slaginn
gegn Andorra. Hinsvegar er talið
að Arnar Gunnlaugsson og Sverrir
Sverrisson verði ekki tilbúnir.
„Nú er komið að því - okkur hef-
ur gengið vel í keppninni og þetta
eru líklega einir mikilvægustu leik-
ir íslenska landsliðsins í knatt-
spymu,“ sagði Eggert Magnússon,
formaður KSÍ, á blaðamannafund-
inum um leikina.
Að sögn Guðjóns má ekki gleyma
mikilvægi leiksins við Andorra, slíkt
gæti haft slæmar afleiðingar fyrir
framhaldið á móti Úkraínu og ekki
síst ferðina til Frakklands. „Við
verðum að hafa í huga að Frakkar
unnu Andorra með einu marki skor-
uðu þremur mínútum fyrir leiks-
lok,“ sagði Guðjón. „Því verðum við
fyrst að taka leikinn við Andorra
fyrir og síðan huga að Úkraínu."
Eftirtaldir leikmenn skipa lands-
liðshópinn. Aftast er fjöldi leikja.
Markverðir:
Birkir Kristinsson, ÍBV...........62
Ámi Gautur Arason, Rosenborg..........4
Ólafur Gottskálksson, Hibernian ......9
Aðrir leikmenn:
Rúnar Kristinsson, Lilleström .......77
Sigurður Jónsson, Dundee Utd.........63
Eyjólfur Sverrisson, Hertha Berlín ... .51
Pórður Guðjónsson, Genk..............32
Helgi Sigurðsson, Panathinaikos .....28
Lárus Orri Sigurðsson, Stoke City....28
Ríkharður Daðason, Viking............25
Hermann Hreiðarsson, Brentford ......24
Brynjar Björn Gunnarsson, Örgryte .. .18
Helgi Kolviðsson, Mainz .............16
Steinar Adolfsson, Kongsvinger ......14
Auðun Helgason, Viking...............11
Pétur Marteinsson, Stabæk ...........11
Tryggvi Guðmundsson, Tromsö..........11
Bjarni Guðjónsson, Genk...............6
Heiðar Helguson, Lilleström ..........4
Jóhann B. Guðmundsson, Watford........3
Eiður Smári Guðjohnsen, Bolton .......1
Arnar Þór Viðarsson, Lokeren..........1
HELGI SIGURÐSSON TÓK GRIKKLAND MEÐ ÁHLAUPI / B2
_
1 8 (17 ú|8
Jókertölur vikunnar
8 3 0 9 2
Vinningar Fjöldi vinninga Upphæö á mann
5 tölur 1 1.000.000
4 síðustu 0 100.000
3 síðustu 10 10.000
2 sfðustu 114 1.000
Vlnningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæö
1. 6 af 6 3 31.402.050
2. 5 af 6+bönus 0 1.549.440
3. 5 af 6 7 49.720
4. 4 af 6 241 2.290
3. 3 af 6+ bökus 584 400
Upplýsingar;
1. vinningur í Lottó 5/38 verður
þrefaldur næst.
Bónusvinningarnir voru seldir í
Svarta svaninum, Laugavegi 118
í Reykjavík og Esso við Lækjar-
götu 46 í Hafnarfirði.
JÓKER - Miðinn sem gaf 1. vinn-
ing í Jóker var seldur í Olís við
Langatanga 1, Mosfellsbæ.
VÍKINGALOTTÓ - í Víkingalottóinu
voru 3 vinningshafar með 1.
vinning. Tveir voru frá Danmörku
og einn frá Finnlandi.
Upplýsingar í síma:
568-1511
í Textavarp:
l 281, 283 og 284
í þágu öryrkja, urtgmenna og íþrótta