Morgunblaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Keikó lyktar af frelsinu: Okkur Halla langar líka til að fá að leiða Keikó einn hring, mr. Jeff. Mikil- vægt að vökva BERGLIND Kristín Bjarnadóttir hjá Gróðrarstöðinni Borg í Hvera- gerði vökvar flauelisblómin sem hún segir heldur of snemmt að setja út í garða strax. Rétti tíminn sé hins vegar kominn fyrir stjúpur, morg- unfrúr og silfurkamb, svo dæmi séu tekin. Morgunblaðið/Ami Sæberg Heimaskrifstofanfrá H SAUDER Teg. 3776 lokaðnr. Hæð 185,2 cm. Breidd 105,4 cm. Dýpt 52,4 cm. Það þarf ekki mikið pláss fyrir heimaskrífstofuna frá SAUDER. Frábær lausn fyrir þá sem vilja vinna heima við fyrsta flokks aðstæður. Til í fleiri útfærslum og htum. Húsgagnahöllin gefur möguleikunum rými. W HUSGAGNAHOLLIN BíJdshóíði - HO Reykjavík Sími 5!ö 8000 Tvö leiðarþing í Reykjavík Leiðsögn trúar o g vísinda inn í nýja tíma TIL imdirbúnings þátttöku íslend- inga í alþjóðlegri ráðstefiiu um trú og vísindi undir yfirskriftinni „Faith in the Future" verða haldin leiðarþing í Reykjavík tvö miðviiaidagskvöld, hið fyrra annað kvöld og hið síðara 14. júní. Fundirnir verða haldnir í Reykjavík- urakademíunni á Hring- braut 121 og hefjast klukk- an 20:00 bæði kvöldin. Framsögumenn eru fimm hvort kvöld. Einn þeirra sem tala fyrra kvöldið er Halldór Þorgeirsson for- maður stjórnar Framtíðar- stofnunar. En hvert skyldi vera innihald hans fyrir- lesturs? „Ég fjalla um spumingar eins og; Er boðskapur allra trúar- bragða í kjama sínum eins? Er trú grundvöllur ti-úar á framtíðina? Geta trúarbrögðin veitt leiðsögn í stefnumörkun þjóðfélagsins? Loks fjalla ég um skynsemi og rök- hyggju í trú og vísindum.11 - Þetta eru stórar spurningar - hefur þú komist að einhverjum nið- urstöðum? „Já, ég reyni að færa rök fyrir þeirri niðurstöðu minni að boð- skapur allra trúarbragða sé í kjama sínum einn og hinn sami. Það sem einkum aðgreinir trúar- brögðin er hið ytra form og helgi- siðir. Trúarbrögðin eiga sér öll sameiginlegan uppmna, það er að- eins einn Guð og markmið trúar- bragðanna er það saman. Ég tel að skynsemi og rökhyggja séu mikil- væg bæði í vísindum og í trúariðk- un. Vísindi og trúarbrögð em bæði mikilvægar uppsprettur þekking- ar og leiðsagnar. Örar framfarir í vísindum hafa vakið nýjar spum- ingar um samspO vísinda og trúar, sem er mjög mikilvægt að hug- leiða. En það em ekki einungis vís- indin sem hafa þróast, trúarbrögð- in em í stöðugri endumýjun og framþróun. Það er mikilvægt að fylgjast með því sem þar er að ger- ast.“ - Hverjir fleiri tala á fundinum í kvöld? „Vilhjálmur Lúðvíksson, fram- kvæmdastjóri Rannsóknarráðs ís- lands, fjallar um alþjóðlega um- ræðu um samspil trúar og vísinda og um tengsl siðferðilegra og trúarlegra viðhorfa við umræðum um stefnumörkun í vísindum og tækni á alþjóðavettvangi. Séra Gunnar Kristjánsson ræðir um trú og vísindi - takmarkanir og mögu- leika, og um gmndvöll gildismats og lífsviðhorfa. Hann varpar fram þeirri spumingu hvort boðskapur allra trúarbragða sé eins í kjama sínum og hvort kristni og kristin siðfræði sé sérstök. Magnús D. Baldursson, aðstoðarmaður há- skólarektors, ræðir um hvort vís- indi og heimspeki séu nægileg til að skapa viðmið um ______________ innihald, gildismat og fótfestu í lífinu. Spyr hvað gefi lífinu gildi og hvort tímabært sé að leita nýrra andlegra verðmæta og þá hverra. Ástríður Stefánsdóttir læknir fjallar um trú og ——- vísindi - takmarkanir og möguleika. Hún ræðir einnig um hvort alþjóðleg samúð og sam- hyggja sé raunhæf og hvort við getum lagt eitthvað af mörkum. Ævar Kjartansson stjómar um- ræðum eftir erindin. -Hvað viltu segja um hina al- Halldór Þorgeirsson ► Halldór Þorgeirsson fæddist 1956 á ísaflrði. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum á ísafirði og prófi í líffræði frá Há- skóla ísiands 1981 og doktors- prófi í plöntulífeðlisfræði frá rík- isháskólanum í Utah árið 1988. Hann var sviðstjóri umhverfís- rannsókna hjá Rannsóknastofn- un landbúnaðarins þar til hann fór til starfa hjá umhverfisráðu- neytinu 1998, en þar er hann skrifstofustjóri á skrifstofu sjálf- bærrar þróunar og alþjóðamála. Hann er formaður stjómar Framtíðarstofnunar, sem er fé- lag áhugamanna sem stendur fyrir umræðu um framtíðar- málefni. Halldór er kvæntur Heiðu Stcinsson kennslustjóra fatlaðra við Menntaskólann við Hamrahlíð og eiga þau tvö börn. Boðskapur allra trúar- bragða er í kjarna sínum einn og hinn sami þjóðlegu ráðstefnu, sem fundimir tveireru undirbúningur að? „Þetta er alþjóðleg ráðstefna sem haldin verður í Reykjavík og hefst 5. júlí en lokadagurinn verður á Þingvöllum 8. júlí. Ráðstefnan fjallar um trúarbrögð og vísindi og framlag þeirra til að móta farsæla framtíð. Að ráðstefnunni standa Þjóðkirkjan, Framtíðarstofnun, Heimskirkjuráðið og Vísindafélag Bandaríkjanna. Meðal gesta verð- ur José Ramos Horta.“ - Hvað verður svo fjallað um á undirbúningsfundinum lð.júní? „Megininntak umræðunnar 14. júní verður lífsviðhorf íslendinga og trú og vísindi í íslensku sam- hengi. Kristrún Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Reykjavíkur- akademíunnar, talar hvort tóm- hyggja fari vaxandi og sé orðin eðlilegt ástand. Bjami Armanns- son, forstjóri Íslandsbanka/FBA hf., ræðir um markaðsvæðingu, haghyggju, verðbréf og alþjóða- væðingu, viðskáptasiðferði og hvort þörf sé fyrir endumýjaðan siðferð- isgrann. Sigríður Halldórsdóttir prófessor við Háskólann á Akur- eyri fjallar um kosti og lesti íslend- inga og greinir frá niðurstöðu leiðaþings á Akureyri. Hörður Bergmann, fyrrv. kennari, íjallar um umhverfissiðfræði, hvers vegna okkur beri að vernda umhverfið, um siðferðilegan grunn náttúruvemdar og hvort sjálfbær þróun sé fullnægjandi gmnnur að farsælli hugmyndafræði og framtíðarsýn. Hjálmar Jónsson alþingismaður ræðir siðferðilegan grunn stjóm- málaákvarðana og þversagnir stjómmála. Að lokum verða um- ræður, sem Einar Karl Haraldsson stjómar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.