Fréttir frá Íslandi - 01.01.1883, Qupperneq 28

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1883, Qupperneq 28
30 BJARGRÆÐISVEGIR. um vér, live margar tunnur par hafa borizt að landi. Eystra var aílinn minni, og skárstur á Eáskrúðsíirði. Sunnlenzka síld- veiðafélagið aflaði lítið, og var sagt, að ágóðinn hefði svarað pví, að hlutareigendur hefði fengið venjulega vöxtu af innlögum sínum. Síldarfélög þessi eru mjög óheppin með skip sín; pau stranda og farast, má segja hópum saman með ári hverju. Snemma sumars strönduðu tvö þeirra, annað á Skagafirði, hitt við Héraðssand, og 4.—6. nóvember strandaði eitt við Látra- strönd við Eyjafjörð, og tvö í Litlu-Breiðuvík í Eeyðariirðp Menn komust allir af, enn skipskrokkarnir og annað er fylgdi, voru seldir við uppboð, og var orð á, að þar hafi verið hægt að fá sumt með bærilegu verði; þannig var alt strandið á Héraðssandi selt fyrir 360 kr. Eggert kaupstjóri Gunnarsson í Eeykjavík gekst fyrir því, að reynt yrði að stofna íslenzkt fiskifélag, þannig að menn legði fé fram saman til þess að kaupa þilskip, og eigendur þeirra gengi síðan í félag um að ábyrgjast skipin innbyrðis. Eékk hann marga menn í fylgi með sér, og sömdu þeir þegar og samþyktu Vóg hins islenzka fiskifélags, Vóg fyrir íslenzkt á- kyrgöarfélag fyrir skip, form fyrir skuldbindingum skipaeig- enda, form fyrir skuldbindingum skipstjóra, form fyrir skuld- bindingum háseta, og form fyrir erindisbréfi handa virðingar- m'ónnum skipanna. Yar máli þessu vel tekið; skrifaði Eggert, og um 60 aðrir, er með honum voru, bréf þingmönnum og hin- um helztu mönnum fandsins, og mæltust til þess, að þing og landsjóður yrði máli þessu hlynnt, og efldi félagið með fjár- lánum gegn öruggu veði fyrst um sinn, þangað til það væri komið á fastan fót. Tilnefndu þeir helzt fjárlán, er næmi allt að 25000 kr., ókeypis kenslu í sjómannafræði, og annað því um líkt. Svöruðu flestir góðu um þetta, en þú bæði undan og ofan á um fjárframlögin. Máli þessu var eigi hreyft á þingi í sumar, og eigi höfum vér neinar fregnir af því síðan. Hið þriðja, sem vér teljum til bjargræðisvega íslands, er verzlunin, því að þó að fæstir landsmanna hafi verzlun að at- vinnuvegi, þá er undir henni komið, hvern arð landsmenn hafa af afurðum sínum til lands og sjávar. fað verður ekki annað

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.