Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1969, Page 10
14
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
VI. KAFLI
Almenn ákvæði.
44. gr.
Hver sá, er fyrir fétjóni verður vegna framkvæmdar á ákvæðum
II. eða IV. kafía laga þessara, á rétt til ska'ðabóta úr ríkissjóði. Hafi
hann orðið fyrir slíku fétjóni vegna framkvæmda á friðunarákvörð-
un sveitarstjómar skv. IV. kafla laganna, á hann hins vegar rétt til
skaðabóta úr hlutaðeigandi sveitarsjóði. Ef samkomulag næst ekki um
bætur, skulu þær ákveðnar eftir reglum laga um eignarnám.
45. gi\
Ekki ber að greiða stimpilgjöld eða þinglýsingargjöld af skjölum,
sem út eru gefin vegna framkvæmdar á lögum þessum.
46. gr.
Brot gegn ákvæðum 11.—14. gr., 1. málsgr. 17. gr., 19. gr., 21. gr.,
29. gr., 30. gr., 33. gr., 4. málsgr. 35. gr. og 36. gr. varða sektum til
ríkissjóðs, nema þyngri refsing liggi við broti samkvæmt 177. gr. al-
mennra hegningarlaga, nr. 19 12. febrúar 1940.
47. gr.
Ráðherra getur með reglugerð sett nánari ákvæði um framkvæmd
laganna í heild eða einstakra kafla þeirra.
48. gr.
Með lögum þessum eru úr gildi numin lög nr. 40 16. nóv. 1907, um
verndun fornmenja, og lög nr. 8 12. febr. 1947, um viðhald fornra
mannvirkja og um byggðasöfn.
49. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Lög þessi eru hér prentuð eftir A-deild Stjórnartíðinda 1969.