Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1969, Side 30

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1969, Side 30
34 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS voru hús lögð niður eða flutt um set eftir því hvar beit var talin bezt á hverjum tíma eða aðrar aðstæður kröfðu. Ekki veit ég hver hús voru einkum notuð í tíð þeirra bæjarhúsa á Núpsstað, sem nú hefir verið lýst, en hér skulu talin þau hús, sem nú eru í notkun, og verður ann- arra eldri getið eftir því sem tilefni gefast. Sjá uppdrátt á 10. mynd. I. Syðstahesthús. Vegurinn heim að Núpsstað liggur upp með tún- inu að vestan, beygir síðan inn um túnhlið og þaðan áfram til norð- austurs, unz hann kemur í stuttar traðir, sem liggja beint austur að bænum. Andspænis túnhliðinu var áður hesthús, svipað III hér á eftir, en því hefir verið breytt í bílgeymslu og sést þar nú enginn forn umbúnaður annar en hláðnir veggir úr grjóti og torfi. II. Stórahesthús. Nokkru ofar og austar er annað hesthús. Það er gamalt, og hefir ekki verið notað sem peningshús nú alllengi. Ekki var því lokað með hurð, heldur með slagbrandi um þverar dyr, og var endum hans stungið í sérstakar raufar í hleðslunni. Þessar rauf- ar sjást þó ekki lengur. Ekki var þar annar dyraumbúnaður, og nú er hús þetta aðeins notað sem geymsla fyrir ýmislegt gamalt dót. Húsið snýr frá austri til vesturs og eru dyrnar á syðri langvegg nær vesturenda. Það er 6 m 1. og 1,75 m br. Suðurveggur er mjög þykkur, svo að dyragangurinn í gegnum hann er 2,25 m 1., en aðeins 70 sm víður, hæð dyra er nú 140 sm. I húsinu er mæniás, og liggja endar hans á gaflhlöðum. Vestan dyra er biti um þvert hús og liggur á tveimur stoðum. Á honum miðjum er dvergur, sem ber mæniásinn. Auk þess er annar dvergur á bitanum nær dyravegg og ber vestur- enda langbands, sem nær aðeins austur á næsta bita, sem er skammt austan dyra. Endar þess bita liggja úti á veggjapöllum, en ekki á stoðum. I austurenda hússins er ekki biti, en í hans stað er þar lág sperra, er stendur á veggjapöllum. Hún er styrkt í toppinn með klampa, en á miðri sperrunni eða á sperrutoppnum liggur trébútur og ber hann mæniásinn. Reft er af mæniás út á veggi og er hella á röftunum undir torfþaki. Undir röftunum norðanmegin í vestur- enda er þó langband, sem liggur frá gaflhlaði austur á móts við vest- asta bita, og hvílir endi þess þar á eins konar dverg á bitanum (sést ekki á 12. mynd). I báðum endum hússins eru hlaðnir grjótbálkar und- ir stalla, en jötustokkarnir eru horfnir. Yfir dyraganginum liggja tré og á þeim eins konar mæniás, og síðan eru lagðir raftar á þennan umbúnáð og þar yfir helluþak með lágu risi. Gólf hússins er flórað með hellu. (Sjá 11., 12. og 13. mynd.) III. Efstahesthús. Skammt norður frá húsi II er enn hesthús. Bæði hesthúsin snúa eins, en þetta stendur uppi við vesturenda traðanna.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.