Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1969, Page 54

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1969, Page 54
58 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS veður var stillt og vel stóð á sjávarföllum, verður hinu ekki trúað að knörr hafi verið látinn liggja til langframa í sjálfu sundinu eins og skip Þórólfs á að hafa gjört, ef orð sögunnar eru tekin bókstaf- lega. Hins vegar reyndist Brákarpollur allgott lægi skipum kaup- manna á öldinni sem leið, og flutu þau þar við strengi eða stóðu á botni.1) Pollurinn er heldur grunnur, en það hefði síður átt að baga knörrum fornmanna. Fornsagnahöfundar eru einatt allónákvæmir þegar vikið er að staðháttum. Má og vera að vogurinn hafi eigi enn átt sér nafn, þá er Egla var rituð, og þá þótt eðlilegt að kveða svo að orði um skip sem lá á voginum, að það lægi í Brákarsundi. Þorgerður ambátt hafði viðurnefnið brák, og er að sjá sem hún hafi verið kennd við verkfæri það, sem haft var til að elta í skinn. 1 ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar er þessu tóli lýst svo að það sé skeifulagað, úr viði eða horni.2) í orðabók Björns Hall- dórssonar segir í latnesku þýðingunni að brák sé hringur sem skinn sé dregið í gegnum inn og út (e'ða fram og aftur, — þ. e. recipro- cando). En í danskri skýringu (Rasks) er sagt: to smaa Træklodser fastgjort et par Tommer fra hinanden, paa en perpendicular Stotte, 2y2 Alen fra Jorden, imellem hvilke raa torrede Skind, besmurte med Tran og siden sammenkrympede, trækkes frem og tilbage for derved at beredes. í orðabók Blöndals er og önnur merking: (hluti borðstokks, sem brákað er á) den Del af Rælingen, hvor Fiskesnoren trækkes op og ned paa; snart er Rælingen her forsynet med et Benbeslag paa en Aksel, snart er Benbeslaget fastnaglet til selve Rælingen, snart er brák kun et Indsnit imellem Aaretoldene. Þess er getið hér að brák sé haft um þann hluta færis sem brákað er. Auk þess var brák haft um sjálft verkið, hvort sem var að elta skinn eða að keipa, og enn fremur um strit og um óþarft ómak. Þá er og brák alkunnugt í merkingunni brá eða fituskán á vökva. Ekki skal efað að ambátt sem ætluð voru hin verstu verk, hafi einnig verið látin bráka skinn, ef hún hafði bolmagn til, og Þorgerð- ur er í sögunni sögð hafa verið „mikil fyrir sér, sterk sem karlar“. Viðurnefnið brák er engan veginn ósennilegt og hafa verið til nokkur svipuð: vegghamarr, sleggja, spaði. Aftur á móti gæti virzt ástæða til að vefengja skýringu sögunnar á því hvernig örnefnið Brákar- 1) 1 Islandslýsingu Kr. Kálunds er sagt frá skipalæginu á Brákarpolli og bætt við: i selve sundet er det derimod pá grund af dets smalhed og stærke strom ikke godt at ligge. Bidrag til en hist.-topograf. Beskrivelse af Island I (1877), 377. bls. 2) Vice-Lavmand Eggert Olafsens og Land-Physici Biarne Povelsens Reise igien- nem Island. Soroe 1772, 339. bls.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.