Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Page 41

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Page 41
RÓÐUKROSSINN í FANNARDAL 47 norðfirðingum sem þá voru ofar moldu en hafa nú safnast til feðra sinna.72 Gef ég þá Bjarna Þórðarsyni orðið: „Ekki langt fyrir innan Haga, sem áður hefur verið getið í þáttum þessum,73 en undir svokölluðum Bakkabökkum er lítil en falleg skeifumynduð vík eða vogur milli tveggja kletta og er fjara fyrir botni víkurinnar. Fjara þessi nefnist Krossfjara og er sagt að þaðan hafi sjór verið stundaður fyrr á öldum og er það trúlegt því lending er þar án efa miklu betri en víða annars staðar þar sem útræði hefur verið. Ekki hef ég heyrt þess getið að nafn væri á voginum ....74 Ein mótsögn er í þessari sögu [þ. e. sögu dr. Björns Bjarnasonar um Fannardalskrossinn]. Tröllskessan er látin segja að krossinn (er látin segja fiskur því að sjálfsagt hafa heiðnar vættir ekki mátt taka sér í munn krossnafnið) hafi rekið í fjarðarbotn, en fjarri fer því að Krossfjara sé í fjarðarbotni. Þetta örnefni gæti því verið dregið af öðru, t. d. fiskiskálum, á sama hátt og Krossskálavík sem drepið var á í síðasta blaði.75 f pápískum sið var líka, sem alkunn- ugt er, mjög mikið um að krossar voru reistir á víðavangi, einkum þar sem einhverjar hættur leyndust. Munu mörg krossnöfn dregin af þess háttar helgitáknum. Kunnastir þessara krossa voru krossinn í Njarðvíkurskriðum, sem enn er haldið við, og krossinn í Kaldaðar- nesi. Hugsanlegt er að örnefnið Krossfjara sé dregið af slíkum krossi sem reistur hefur verið þar á bökkunum eða í fjörunni. Rétt er að geta þess að sumir telja að skessan hafi átt að segja: „Fiskur er rekinn í fjarðarkjaft og er það sennilegra ef þjóð- sagan á í raun og veru við Krossfjöru. En hvað sem þessum tilgátum líður getur meginuppistaða sög- unnar verið sönn því þessi kross var til og er til og ekkert líklegra en að hann hafi rekið af sjó. Kross þessi var, sem í sögunni segir, geymdur í Fannardal. Enginn veit aldur hans, en víst er að hann er mjög gamall. Mér hefur sagt Þorbergur Guðmundsson, sem fæddur er og uppalinn í Fannardal 72 Austurland, 7. árg., 7. tbl. 15. febrúar 1957, bls. 2. Aðalfyrirsögn er Ör- nefni í Neskaupstað, en undirfyrirsögn A. Krossfjara. Allar neðan'málsgrein- ar eru gerðar af liöfundi þessarar ritgerðar (B. V.). 73 Austurland, 7. árg., 5. tbl., 1. febrúar 1957, bls. 2. 74 Hér tekur Bjarni upp sögu dr. Björns Bjarnasonar um Fannardalskrossinn og hefur fyrir henni dálítinrí formála, en því er hvorutveggja sleppt hér. 73 Austurland, 7. árg., 6. tbl., 8. febrúar 1957, bls. 2: Ömefni í Neskaupstað, 3. Guðrúnarsteinn í Krossskálavík.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.