Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Blaðsíða 43
SÁMSSTADIR í ÞJÓRSÁRDAL
47
2. mynd. Úr Lbs. 578, 4to. Teikning Brynj-
úlfs Jónssonar af Sámsstöðum 1862.
S?* £- ? -< A ?'■* >-'2- -i- <*■ '
Mx I.
prentuð var í Árbók hins íslenzka fornleifafélags 1885. Það er
þriðja og hin sígilda gerð Þjórsárdalslýsinga Brynjúlfs.30
Aðeins tvær af lýsingum Brynjúlfs á Sámsstöðum eru því til: í
Lbs. 578, 4to og Árbók 1885. 1 Lbs. 578, 4to segir svo: „Sámstaðir
hafa staðið undir suður horni Skeljafells og snúið suður og hefir
þar verið fallegt og góður bær, þar sést vel til rústar bæði heima á
bænum og fjós og hlaða litlu austar, líka sést votta fyrir grjóttún-
garði og hefir túnið ekki verið mjög stórt og engja mýri niður
frá.“31 Hér er ennfremur teikning af bæjar- og útihúsum á bl. 14v
(2. mynd).
Það er athyglisvert að í ritgerð Brynjúlfs frá 1880 er ekki getið
grjóttúngarðs í grennd við Sámsstaði. Ekki er þar heldur talið að
hlaða við f jós sé greinileg. Þar er hins vegar lýst hústóft austan við
bæjarrústina sem Brynjúlfur telur ef til vill vera eftir útibúr. Þá
tóft vantar alveg á teikninguna frá 1862.
Þcgar borin er saman ritgerð Brynjúlfs frá 1880 og teikning sú af
Sámsstöðum sem fylgir henni kemur í ljós að upplýsingum í textan-
um um mál rústanna á Sámsstöðum og hlutföllum teikningarinnar
ber alls ekki saman. Til gamans má bera saman teikningu Brynjúlfs
(I) og teikningu sem gerð er eftir málum textans (II), (3. mynd).
Sýnir þetta að eitthvað hefur skolast til, og líklegast er að rannsókn
á staðnum hafi ekki verið nákvæm.
2. Kr. Kalund og Þjórsárdalsför hans.
Kr. Iválund var á ferð hér á landi sumarið 1873 til þsss að viða að
sér staðsögulegum fróðleik. Hinn 15. júlí 1873 ferðaðist Kálund um
Þjórsárdal, og var Brynjúlfur Jónsson fylgdarmaður hans.32
30 í Þjó3skjalasafni, Árnessýsluskjölum, Gnúpverjahreppi, 3. Bréfasafni 1843—
69, er varðveittur „Uppdráttur Eystra hreppsafrjettar“ eftir Brynjúlf. Eru
þar bæjarrústir í Þjórsárdal merktar með krossum en uppdrátturinn er lúinn
og því ekki mjög læsilegur.
31 Lbs. 578, 4to., bl. 12v og 13r.
32 Lbs. 3748, 8vo. Fjórða hefti, bl. 33r.