Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Blaðsíða 128
130
ÁEBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
þegar séra Jón Þorleifsson afhendir og séra Jón Loftsson tekur við
(AM 262 4to, bls. 70—72). Þar eru m. a. talin upp iij tiólld en
athugasemdalaust með öllu. 1 Gíslamáldögum, sem eru næsta heimild,
segir svo um Vatnsfjörð: iij twlld med einu steindu (ísl. fornbréfa-
safn XV, Reykjavík 1947—50, bls. 567). Þetta er stuttaralegt eins
og vant er, en þó ekki gagnslaust, því þarna kemur fram að á 16.
öld hafa menn kallað tjöld af þessari gerð steind, og verður nánar
vikið að þessu síðar. Eins og vonlegt er getur máldaginn ekki hve
lengi tjaldið er búið að vera í kirkjunni, en hann mun vera færður
í letur um 1570, og eins og síðar kemur fram má gera ráð fyrir að
tjaldið hafi þá þegar átt hálfrar aldar sögu í kirkjunni.
Til er afhendingarskrá frá 12. júlí 1596 þegar séra Jón Loftsson
afhendir séra Gísla Einarssyni staðinn (AM 262 4to, bls. 61—65)
og er þar talað um iij stofutiolld athugasemdalaust, og mun þetta
trúlega vera einhvers konar villa eða misskilningur. 1 afhendingar-
skrá frá 29. ágúst 1636, þegar séra Gísli Einarsson afhendir séra
Jóni Arasyni staðinn (Ny kgl. Saml. 1847 4to) segir svo: iij kirkiu-
tiolld, eitt steindt, hin tvó meir af elli og kominn under slit. Hér er þá
gamla kirkjutjaldið enn kallað „steint“ og af ýmsum orðum, sem
látin eru falla, má sjá að hinn gamli messu- og kirkjuskrúði Vatns-
fjarðarkirkju er mjög farinn að ganga úr sér.
Brynjólfur biskup Sveinsson vísiterar Vatnsfjarðarkirkju sum-
arið 1639 og lætur færa í bók sína það sem næst kemst að vera lýsing
kirkjutjaldsins: tvó tiólld, annad fornt og fangalijted en annad
bærelegt, þridia vænt, þrickt a liereft med lijkneske postulanna og
S Þorlaks (Bps. A II 6, bls. 14). Ástæða er til að vera meistara
Brynjólfi þakklátur fyrir þessi orð, því að þau taka af tvímæli um
að átt er við tjald það sem hér er til umræðu. Það sem áður var
kallað steint kallar hann nú þrykkt.
Þórður biskup Þorláksson kemst svo að orði í sinni visitasíu frá
2. sept. 1675: Til eru tvo tiolld framm i kirkiunni, annad med likn-
eskiumm postulanna (Bps. A II, bls. 43). Þarna kemur greinilega
fram að aðeins eru tvö tjöld eftir og annað þeirra er postulatjaldið;
enn fremur til viðbótar við ummæli Brynjólfs að tjöldin tvö eru
frammi í kirkjunni. I vísitasíu Jóns biskups Vídalíns frá 15. ágúst
1700 er enn bætt um með svofelldum ummælum: Tiólld gómul um-
hverfis kyrkiuna nema sunnann framm i körnum og framm yfer pre-
dikunarstöl, maladur dukur yfer kvennsæte (Bps. A II 14). Jón
biskup Árnason kemst svo að orði í vísitasiu sinni 18. ágúst 1725: