Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Blaðsíða 173
SKÝRSLA UM ÞJÓDMINJASAFNIÐ 1975
175
geirssyni í Litlabæ í Vestmannaeyjum. Var hann settur í geymslu á
Bessastöðum þar sem hann bíður viðgerðar ásamt tveimur bátum frá
Breiðafirði sem getið var í síðustu skýrslu.
Eimskipafélag Islands gaf safninu forkunnargott líkan af gamla
Gullfossi, sem Sigurður Jónsson líkanasmiður hafði gert, og gefur
það ekki eftir bestu erlendum skipalíkönum. Þá lánaði Handels- og
Sofartsmuseet pá Kronborg safninu líkan af Lauru, skipi Sameinaða
gufuskipafélagsins, sem gekk út hingað á síðustu áratugum síðustu
aldar og í upphafi þessarar og strandaði við Skagaströnd 1910. Var
báðum þessum líkönum komið fyrir til sýnis í sjóminjadeild safnsins.
HúsafriðunarnefncL.
Húsafriðunarnefnd hélt 7 fundi á árinu en skipað hafði verið í
nefndina að nýju og eru í henni: Þór Magnússon formaður, Hannes
Kr. Davíðsson, Hörður Ágústsson, Ingvar Gíslason og Páll Lýðsson.
Nefndin fékk friðaðar tvær byggingar, bókhlöðuna litlu í Flatey
í A-flokki og Félagshús í Flatey í A-flokki. Ennfremur var beðist
friðunar hússins Klausturhóla í Flatey.
Norræna húsið og Húsafriðunarnefnd gengust fyrir húsafriðunar-
sýningu í kjallara Norræna hússins, sem opnuð var 31. júlí, þar sem
sýndar voru ljósmyndir og nokkrir gamlir húshlutar, og var reynt
að sýna fram á gömul og vegleg hús, niðurrif og eyðingu og einnig
endurbætur. Mæltist sýningin mjög vel fyrir og hefur vafalaust haft
talsverð áhrif. Menntamálaráðuneytið veitti fjárstyrk til sýningarinn-
ar.
I nóvember var haldin ráðstefna um húsavernd í Háskólanum á
vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga sem var mjög fjölsótt og
vakti athygli. Þessir tveir viðburðir voru í tilefni húsafriðunarársins,
en merkasti viðburður eða framlag opinberra aðila í sambandi við
húsafriðunarárið var stofnun húsafriðunarsjóðs sem samþykkt var á
Alþingi um vorið. Er þar gert ráð fyrir 20 króna framlagi ríkisins
fyrir hvert mannsbarn og jafnmiklu frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga,
og var búist við að á árinu 1976 yrðu rúmar 4 milljónir króna til út-
hlutunar úr sjóðnum. Húsafriðunarnefnd mun annast úthlutun úr
sjóðnum, en nefndin samdi að beiðni menntamálaráðuneytisins reglu-
gerð fyrir hann.