Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Blaðsíða 133
MINNISGREINAR ÁRNA MAGNÚSSONAR
135
eins og kunnugt er voru persónur og atburðir gamla testamentisins
taldir forspeglun (prefiguratio) nýtestamentlegra persóna og við-
burða. Skal ekki farið lengra út í þá sálma, en á þessum tjaldhelm-
ingi eru einnig þeir fjórir helgimenn, sem ætla má að þar hafi fengið
inni vegna þess að tjaldið var ætlað íslenskri kirkju, jafnvel sér-
staklega kirkjunni í Vatnsfirði. Engin þeirra er biblíupersóna eins
og vænta má. Það eru einmitt þessir fjórir, sem Árni Magnússon
hefur viljað eiga myndir af. Skal nú vikið að þeim hverjum í sínu
lagi.
Nr. 14, S. Torlacus, stendur næstur frelsaranum til vinstri handar.
Þetta er Þorlákur helgi Skálholtsbiskup, með bagal og mítur og
í fullum biskupsskrúða, með upplyftri blessandi hægri hendi. Neðst
til vinstri er einkunn sem kemur mjög á óvart, fugl í kringlóttri um-
gerð og minnir á einkunn Jóhannesar guðspjallamanns, örninn. Með
Þorláki helga á þessi einkunn að réttu lagi ekkert erindi. Mér hefur
dottið í hug að liér hafi tjaldmálaranum beinlínis orðið á einkennileg
mistök. Jóhannes er nefnilega næstur frelsaranum til hinnar handar-
innar, að vísu sem postuli en ekki guðspjallamaður. Skyldi það vera
að fuglinum, þ.e. erninum, hafi verið ætlað að fylgja honum, en hann
hafi óvart verið settur með Þorláki sem var hinum megin við frelsar-
ann? Þetta verður víst hvorki sannað né afsannað en fær að fljóta
með til athugunar.* Fyrir neðan myndina af biskupinum er líkt og
sjái hæðótt landslag í þrívíddarmynd. Það skyldi þó aldrei vera að
þetta eigi að tákna Island, hið fjöllótta heimaland dýrlingsins? —
Eðlilegt er að Þorlákur sé fremstur þessara fjögurra dýrðarmanna,
Vatnsfjörður er í Skálholtsstifti.
Nr. 15, S. Iohanes, gengur honum næstur, án efa hinn íslenski
helgibiskupinn, Jón helgi Ögmundarson Hólabiskup. Hann er í fullum
skrúða eins og Þorlákur, en blessar ekki, heldur er með bók (biblí-
una?) í hægri hendi. Hann stendur á aflöngum húslöguðum stokki
með bröttu risi, og bregst varla að þetta eigi að vera dýrlingsskrínið
sem geymdi helgan dóm hans í dómkirkjunni á Hólum. Er reyndar
* Hannes Pétursson hefur varpað fram við mig hvort hugsanlegt sé að fuglinn
sé fálki og eigi að benda til þess að Þorlákur var þ.ióðardýrlingur Islendinga.
Þetta er skemmtileg tilgáta, því að íslenskir fálkar hafa síðan á miðöldum
verið eftirsóttir sem veiðihaukar og talið er að bæði Loftur ríki Guttormsson
og Haukur Erlendsson hafi haft fálka í skildi sínum. En gildi tilgátunnar
veltur mest á því hvort unnt er að leiða að því líkur að fálkinn hafi þegar um
1500 haft að einhverju leyti táknlega merkingu sem einkennisfugl íslands
og íslendinga. Þessu er hér með komið á framfæri til umhugsunar.