Alþýðublaðið - 24.10.1965, Qupperneq 3
Glæsilegt og f jöl-
mennt afmælishóf
Reykjavík — EG
Sjómannafélag Reykjavikur
minntist fimmtíu ára afmælis
síns með glæsilegu afmælis-
hófi að Hótel Sögu föstudags-
kvöldið, var afmælisfagnaður-
inn fjölsóttur og fór einstak-
lega vel fram.
Jón Sigurðsson formaður
Sjómannafélagsins sagði Al-
þýðublaðinu í gær, að hófið
hefði verið fjölsótt, þótt það
hefði nokkuð dregið úr að-
sókn, að á fimmtudag og föstu
dag létu fjögur farskip, Gull-
foss, Esja, Hekla og Tungu-
foss úr höfn, og ennfremur
hefði allmargt sildarsjómanna
verið komið suður, en eftir afi-
ann í fyrrinótt hefðu margir
þeirra verið kallaðir austur.
Þrátt fyrir þetta, sagði Jón, var
fjölmenni þarna samankomið
og fór afmælishófið í alla staði
mjög vel fram.
Meðan setið var undir borð-
um rakti Jón Sigurðsson sögu
félagsins í stórum dráttum.
Fjölmargir kvöddu sér hljóðs,
er Jón hafði lokið máli sínu
og fluttu félaginu kveðjur og
árnaðaróskir. Meðal þeirra
voru Eggert G. Þorsteinsson
sjávarútvegsmálaráðherra,,
Hannibal Valdimarsson forseti
ASÍ, Kjartan Thors, formaður
Vinnuveitendasambandsins,
Sverrir Júiíusson, formaður
LÍÚ, Jónas Jónsson, varafor-
maður Félags botnvörpuskipa-
eigenda, Sverrir Guðvarðar-
son, formaður Stýrimannafé-
Iags íslands og Eðvarð Sig-
urðsson, formaður Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnai’,
sem jafnframt tilkynnti, að
Dagsbrún hefði ákveðið að
færa Sjómannafélaginu funda-
að gjöf.
Sj ómannaf élaginu barst
mjög mikið af heillaóskum
frá sjómönnum á hafi
úti, einstaklingum í landi og
ýmsum félagasamtökum.
Þrír menn voru heiðraðir
sérstaklega í afmælishófinu,
Hilaríus Guðmundsson, mat-
sveinn, sem lengi var til sjós og
tók virkan þátt í félagsstörf-
um sjómanna. Hilaríus er nú
84 ára gamall og sat hann af-
mælishófið þar til því lauk
klukkan tvö um nóttina. Garð
ar Jónsson, sem í 18 ár átti
sæti í stjórn Sjómannafélags-
ins og var formaður þess í 10
ár, og Jónas Jönsson frá
Hriflu, fyrrverandi ráðherra,
sem á sínum tíma átti mikinn
þátt í að tókst að stofna
félagið, og hann átti ásamt fleir
um aðild að því að semja fyrstu
lög félagsins.
ooooooooooooooo<x
yegna
fasteignamats
FRÆÐSLUSTARFSEMI Hins
fsl. náttúrufræðafélags veturinn
1965—1966 er nú í þann veginn
að hefjast og verður með svip
Uðu sniði og undanfarna vetur.
Það verða samkomur í 1. kenn
slustofu Háskólans síðasta mánu
dag livers mánaðar, nema des
ember, og liefjast bær kl. 20.30.
Á hverrí samkomu verður flutt
erindi náttúrufræðilegs efnis,
venjulega með skuggamyndum, og
frjálsar umræður um efni þess á
eftir. Öllum er heimill aðgang
ur að samkomum félagsins með
an húsrúm leyfir.
Fyrsta samkoma vetrarins verð
ur mánndaginn 25. október kl.
20.30 í 1. kennslusiofu Háskólans
Þá flytur Haraldur Sigurðsson B.
Sc. erindi með litskuggamyndum.
'Um iarðfræði aiistánvérðrar Eyr
arsveitar á Snæfellsnesi.
Blaðinu hefur borizt eftirfarandi I
yfirlýsing frá Húseigendafélagi I
Reykjavíkur og mun hún einnig
liafa verið send Alþingi:
í tilefm af framkomnu frum!
varpi til laga um breytingu á lög
um nr. 19 frá 10 maí 1965 um
Húsnæðismálastofnun ríkisins, þar
sem lagt er til í 2. gr. frumvarps
ins að miða skuli eignarskatt við
fasteignamat ,,sexfaldað“, í stað
þrefaldaðs áður, leyfir stjórn fé
| lagsins sér að benda á, að lög
boðin fyrirheit eru um hið gagn
stæða, því að í lokaákvæðum laga
nr. 28 fr. 29. apríl 1963, um fast
eignamat og fasteignaskráningu
segir svo: „Áður en nýtt aðalmat
fasteigna samkvæmt lögum þess
um gengur í gildi, skal fara fram
endurskoðun á gildandi ákvæðum
laga,. sem fasteignamat hefur . á
hrif á, og miðist endurskoðunin
við, að skattar á facteí?num hækki
eldii almsnnt vegna hæld:. . . .ar fast
eignainntsins.“
Verður því að telja eignarskatts
hækkun þá, sém varð á gjaldárinu
1965 vegna þreföldunar fasteigna
matsins harla vafasama að laga
gildi, og þó ennþá fremur tillög
una um sexföldun matsins.
í.tilefni þessa skorar stjórn Hús
ejgendafélags Reykjavíkur á flytj
endur frumvarpsins að taka þetta
Atriði til endurskoðunar og aftur
köllunar og leyfir sér jafnframt að
benda á, að þróunin í nágranná
löndunum hnígun í þá átt, að íbúð
Nemar
í vélvirkjun, rennismíði og
plötusmíði geta komizt að hjá oss.
Hf. Hamar
Úthlutun öryrkjabifreiða
f lögum um tollskrá segir svo: Heimílt er: ,,Að lækka
eða fe'la niður gjöld á allt að 250 bifreiðum árlega fyi'ir ;
fólk með útvortis bæklanir eða lamanir, ennfremur fyrir 1
fólk með lungnasjúkdóma og aðra hliðstæða sjúkdóma
og loks fólk, sem þjáist af afleiðingum slysa, allt á svo ; 1
háu stigi, að það á erfitt með að fara ferða sinna án
farartækis. Lækkun gjalda á hverri einstakri bifreið má
þó aldrei nema meiru en 70 þús. kr. Ennfremur er ráðu-
ncytinu heimilt að lækka eða fella niður gjöld á allt að ,
fimmtíu bifreiðum árlega, fyrir sama fólk og um getur ( ;
í fyrstu málsgrein, til endurveitinga á áður veittum;
eftirgjöfum.”
Þeir, sem hafa í hyggju að sækja um lækkun eða ’
niðurfellingu aðflutningsgjalda af bifreið á árinu 1966,
þurfa að senda umsókn til Öryrkjabandalags íslands,
á þar til gerðum eyðublöðum, fyrir 1. febrúar 1966. —
-Eyðúblöðin fást hjá héraðslæknum og Öryrkjabandalagi \
íslands, Bræðraborgarstíg 9, Reykjavík,
ÚTHLUTUNARNEFND. *
Osta- og smjörsalan sfi,
—-----------------------—±.
arhúsnæði til eigin afnota sé ekki
skattstofn til eignarskatts og eign
arútsvars,
Reykjavík 19. okt.1965,
Stjórn Húseigendafélags Reykja-;
víkur.
ifíinnmqarsrrkílx
SJ.ilS.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 24. okt. 1965 $