Alþýðublaðið - 24.10.1965, Síða 6
HEIMSÓKN í NOKKURINNLEND FYRIRTÆKI
UNDANFARIÐ hefur regnið foss-
að úr loftinu og runnið um göt-
urnar í stríðum straumum. Þar
sþm að holuí’ eru í göturnar hafa
rpyndast pollar, sums staðar stórir
(Jg þeir eru þegar orðnir að úthöf
um að minnsta kosti í hugmynda
heimi litlu strákanna, sem láta
skipin sín sigla á þessum mó-
rauðu höfum. Sumir eru með
seglskútur, sumir með vélknúin
skip, sem bruna um í stóru poll-
unum. Og svo er auðvitað vaðið
út í á eftir skipunum og þá verða
náttúrlega allir að vera í háum
gúmmístígvélum, því að ekki
mega fæturnir vökna. Svo þegar
mömmurnar koma að sækja litlu
strákana sína, þar sem þeir eru í
skipaleik í drullupollunum, þá
eru þær lika í gúmmístígvélum,
því að nú eru þær líka farnar að
ganga í stígvélum, o;g þa5 er
mjög hyggilegt af þeim. Gúmmí-
stígvél eru í raun og veru eini fóta
búnaðurinn, sem gagn gerir, þeg-
ar mikið rignir, og þar fyrir utan
er það nú samkvæmt nýjustu
tízku að ganga í þeim. Nú eru
gúmmístígvél í rauðum, svörtum
eða hvitum lit það allra fínasta,
sem stúlkur geta gengið í, þegar
eitthvað er að veðri, þó að einu
sinni hafi engin stúlka látið sjá
sig í stígvélum nema í fiskvinnu
eða síldarsöltun. En örugglega
gíeðjast allar stúlkur yfir því
að geta nú gengið í háum stígvél-
um og öslað í pollunum, án þess
að eiga á hættu að skórnir þeirra
eyðileggist eða sokkarnir verði
allir íjslettum.
Hinpr sífelldu rigningar undan-
farinná daga eða jafnvel vikna
orsak^ það, að fólk verður að
klæða sig í hentug regnföt og þá
helzt regnföt, sem eru regnheld,
en það er ekki hægt að segja um
allar kápur, sem kallaðar eru
regnkápur. Ef mikið rignir verða
þær gegnblautar og fötin, sem
innan þeirra eru jafnvel líka. —
Þess vegna er mjög ánægjuleg sú
tízka, sem ríkir nú í regnfatnaði,
en hún er sú að regnfötin eru úr
regnheldum efnum, og það virðist
auðvitað eðlilegt að álykta að slík
efni séu heppilegustu efnin í fatn
að, sem nota á til hlífðar gegn stór
um og þungum regndropunum, til
þess að hindra óþægindi sem
rennblaut föt geta orsakað og
eyðileggingu á fötunum sjálfum.
Rigning getur samt verið mjög
skemmtilegt veður, ef við erum
úti í henni klædd góðum regnföt-
um og þá er bara dásamlegt að
finna stóra, svalandi regndropa á
andlitinu. Um leið og við erum
rétt klædd í rigningu, hættir hún
að vera óþægileg og leiðinleg, en
verður frekar það veður, sem við
viljum gjarnan vera úti í. Og rign
ingin er nú einu sinni þannig
gerð, að henni finnst gaman að
heimsiekja okkur öðru hverju. Og
þá er ekki annað að gera en að
taka á móti henni með þeim beztu
vöpnum, sem okkur eru tiltæk.
, Margar íslenzkar fataverksmiðj
. ur framleiða hentug regnföt og
þar sem þau eru ehgu síðri én þau
crlenúú, þótti okkur forvitnilegt
'að hyimsækja nokkur íslenzk
fyrirtæki ög forvitnast um fram-
leiðslu, og sjá, hvaða vörur þau
hefðu að bjóða.
Ormar Skeggjason.
Við hittum að máli sölustjóra
Verksmiðjunnar Varar, Ormar
Skeggjason og hann svarar
nokkrum spurningum um verk-
smiðjuna og vörurnar sem hún
framleiðir.
— Hvar er Verksmiðjan Vör
staðsett, er hún í Reykjavík?
— Nei, verksmiðjan er í Borg-
arnesi. Hún var stofnuð um ára-
mótin 1963 — 1964.
— Og hvað framleiðir verk-
smiðjan helzt?
— Hún framleiðir regn- og sjó-
fatnað. Einnig leðurjakka, leður-
pils og leðurvesti.
Við sjáum á sýnisborðinu hjá
Ormari falleg barnaregnföt úr
köflóttum efnum, bæði rauðköfl
óttum og bláköflóttum, sem sagt
blátt fvrir drengi og rautt fyrir
stúlkur, eða eftir því, sem hver
vill.
— Ormar, í hvaða stærðum eru ,
þessi föt?
— Þau eru í stærðunum 2, 3, 4
og 5, en það á að samsvara aldri
barnanna nokkurn veginn. Fötin
eru regnkápa, síðan buxur
úr sama efni með teygju um;öklá
og hattur, sem er fóðraður innan.
Fötin eru mjög heiitug, þar sem í
þeim er plasthúðað efni, sem þol-
ir vel regn og fötin eru mjög sterk
ög endingargóð. —
Og þar sem ekki er nóg að lesa
aðeins um fötin án þess að sjá þau
þá fengum við lítinn dreng til
þes& að máta ein. bláköflóttu föt
in, svo að lesendur síðunnar gætu
einnig fengið að ,sjá þau. ;
☆
Á Skúlagötu 51 í Sjóklæðagerð
íslands hittum við Sverri Sigurðs
son, og hann segir ökkun frá
framleiðslu Sjóklæðagerðarinnar.
Sjóklæðagerðin framleiðir allan
regnfatnað á karlmenn, konur og
börn, einnig sjófatnað, sem auð
vitað er mjög nauðsynlegim fatn
aður á okkar landi, þar sem mik
ill hluti landsmanna eru sjómenn
Og sjóstakkarnir og sjóhattarnir
eru ómissandi fyrir livern einasta
sjómann. Auk regnfatnaðar og sjó
fatnaðar framleiðir Sjóklæðagerð
in ýmsan annan fatnað t.d. kápur
og frakka. Sverrir segir okkur, að
aðalframleiðslan núna sé í vetran
fötum, því að nú er veturinn kom
inn, þó að veðráttan gefi það ekki
til kynna, og við verðum að viður
kenna, að þó að mikið rigni, þá er
veðrið hlýtt og víða eru blóm enn
þá í skrúða í görðum. Sverrir
tekur fram sýnishorn af kvenjökk
Sverrir Sigurffsson.
um, en þeir eru ný framleiðsla'
sem bráðlega kemur hér í búðir.
Þetta eru mjög fallegir jakkar, auk
þess að vera hlýir og hentugin
fyrir íslenzka veðráttu. Jakkarnir
eru saumaðir í saumastofu Sjó
klæðagerðarinnar, þar sem margar
konur vinna við að sauma og
ganga frá fatnaði. En af þvi að
nú er rigning, þá spyrjum við
Sverri um regnkápur. — Vinsæl
ustu regnkápurnar rulna, segir
Sverrir. eru svartar lakkkápur með
hét‘11. Káournar eru smelltan að
framan. Eftirspurn eftir þessum
kánum er svo mikil, að þær selj
ast íafnóðum og þær koma fram
Ra"ðar lakkkápur eru einnig nokk
uð "insælar. en þó er sala í þeim
hvei-fondi minn' en í þeim svörtu.
Annars- -brevtist tízkan alltaf og
nv snið og ný efni koma með
hverri árstíð. —
£ AL-ÞÝÐU&tíAÐlB- - 24. okt. 1965
• M Zi. t)kt. I' ■■'•) ý1