Tölvumál - 01.07.2002, Qupperneq 8
Rafræn viðskipti
SARÍS, Samráð um
rafrænt Island, er
myndað af fjórum að-
ildarsamtökunum;
ICEPRO, nefndar um
rafræn viðskipti, EAN
á Islandi, Skýrslu-
tæknifélagi Islands
og Staðlaráði/FUT
okkur í gegnum þvöguna. Það sama á við
um rafræn viðskipti, ef það eru engar regl-
ur eða merkingar þá verða fyrstu viðbrögð
þeirra sem reyna þau að fórna höndum og
taka upp gamla lagið, eða finna einhvem
sem hefur nægilega reynslu til að berjast í
gegnum „þvögu“ óstaðlaðra viðskipta-
hátta, heimatilbúinna EDI skeyta og sér-
sniðinna staðarneta.
SARIS, Samráð um rafrænt Island, er
myndað af fjórum aðildarsamtökunum;
ICEPRO, nefndar um rafræn viðskipti,
EAN á íslandi, Skýrslutæknifélagi fslands
og Staðlaráði/FUT. Áheymarfulltrúi til-
nefndur af Verkefnisstjóm um upplýsinga-
samfélagið situr fundi SARÍS. Markmið
samráðsvettvangsins er að stuðla að stöðl-
un og samræmingu á sviði rafrænna við-
skipta. Á ráðstefnu SARÍS „Rafrœn við-
skipti - Tœkifœri eða tálsýn “ sem var
haldin á Grand Hótel 17. apríl s.l. að við-
stöddum iðnaðar- og viðskiptaráðherra
voru kynntir samstarfshópar sem ætlunin
er að virkja á næstu mánuðum. Hóparnir
era fjórir og hafa verið nefndir Þekkingar-
hópurinn, Laga- og stöðlunarhópurinn,
Lausnahópurinn og Óryggishópurinn.
Markmiðið með myndun þessara hópa er
fyrst og fremst að efla tengingar SARÍS
við þá aðila innan fyrirtækja og stofnana
sem hafa áhuga á málefnum hópanna, sem
vilja hafa áhrif á þróun rafrænna viðskipta
en era ekki tilbúnir til að setjast í e.k.
stjómir, nefndir eða ráð. Reiknað er með
því að hóparnir hittist reglulega og ræði
tiltekin mál sem annað hvort hafa komið
upp á vettvangi SARÍS eða innan hópsins.
Ályktanir hópanna verða síðan hafðar til
hliðsjónar við stefnumörkun og ákvarðan-
ir SARÍS.
Lausnarorðið
Til að ná árangri í nýtingu á upplýsinga-
tækni til framþróunar og hagræðingar í ís-
lensku atvinnulífi þurfa allir að leggjast á
eitt og mikilvægt að allir hugi að eftirfar-
andi þáttum:
• Samræma þarf meðhöndlun viðskipta-
tengdra upplýsinga af sama toga. Sem
dæmi þá gengur ekki að gúmmíslöngur
séu ýmist mældar í metrum eða kíló-
grömmum.
• Mikilvægt er að upplýsingakerfi þróist
jafnt og þétt þannig að bæði innri sam-
skipti milli tölvukerfa innan fyrirtækis
og ytri samskipti byggi á samræmdri
meðhöndlun upplýsinga til að auka
notagildi þeirra.
• Mikilvægt er að styðja þróun þar sem
viðskiptakerfi fyrirtækja verða sífellt
hæfari til að miðla upplýsingum á sam-
ræmdan máta sem allir geta móttekið
og meðhöndlað.
• Miðlægir þjónustuaðilar þurfa að styðja
uppbyggingu rafrænna viðskipta með
þjónustuþáttum sem gera miðlun við-
skiptaupplýsinga mögulega. Þeir þurfa
að bjóða aðgengi að miðlægum upplýs-
ingabrunnum, miðla viðskiptaskeytum
og bjóða miðbúnað (e. middleware)
sem gerir mögulegt fyrir fyrirtæki að
nýta sér samræmda miðlun milli tölvu-
kerfa, hvort sem þau era innri eða ytri
kerfi.
Fyrirtæki verða að líta á rafræn við-
skipti sem lykilþátt í þróun upplýsinga-
kerfa sinna en ekki sem tímabundið átaks-
verkefni. Þau þurfa að samræma markmið
viðskiptanna og útfærslu rafrænna lausna
og viðhalda sífelldri endurskoðun á við-
skiptaferlum sínum. Stjórnendur fyrir-
tækja mega búast við að öll starfsemin
muni þróast í átt til aukinnar sjálfvirkni
viðskipta- og samskiptaferla. Tími ritvél-
arinnar og leiðréttingarborðans er liðinn,
tími samtengdra viðskiptakerfa er runninn
upp.
Rúnar Már Sverrisson er tækni- og viðskipta-
fræðingur og formaður SARIS -
Samráðs um rafrænt Island.
Arnaldur F. Axfjörð er rafmagns- og tölvuverk-
fræðingur og situr í stýrihóp SARIS -
Samráðs um rafrænt Island.
8
Tölvumál