Tölvumál - 01.07.2002, Blaðsíða 34
Bækur
Fram af hengifluginu
Sogo boo.com frá upphofi til endo
Það vakti athygli hér sem víða annars
staðar þegar netverslunin boo.com
varð gjaldþrota, ekki síst fyrir þá
sök að fyrirtækið hafði aðeins starfað í
stuttan tíma en samt sem áður varið 135
milljónum dollara í starfsemina. Þegar
best lét störfuðu hundruðir manna austan
hafs og vestra fyrir boo enda var tilgang-
urinn að sigra heiminn í
einu skoti og
áætlanir stofn-
endanna voru
mjög metnaðar-
fullar, vægast
sagt.
Fyrir nokkru
kom út bókin boo
hoo þar sem einn
stofnendanna, hinn
sænski Emst
Malmsten, rekur 18
mánaða sögu tísku-
og íþróttavöruverslun-
arinnar boo frá byrjun
til enda. Sagan hefst
nokkm áður þar sem
hann í félagi við fyrir-
sætuna og æskuvinkon-
una Kajsa Leander,
skipuleggur ljóðahátíð í
New York þar sem ónefnt
flughrætt íslenskt skáld kemur við sögu.
Þessi samkoma gekk það vel að þau réðust
í að koma á laggirnar bókavef. Þau seldu
síðan vefinn og fyrir hagnaðinn ákváðu
þau í samvinnu við enn einn Svía, Patrik
Hedelin, að stofna boo. Öll voru innan við
þrítugt.
Frásögnin í framhaldi er næsta ævin-
týraleg, og minnir frekar á skáldsögu en
raunverulega sögu úr samtímanum. Fund-
ir, ferðalög og kynningar um allar jarðir
taka við þar sem ekkert er skorið við nögl
þegar að útgjöldunum kemur. Þeim tekst
að vinna á sitt band nokkra öfluga fjár-
festa og taka til við að ráða fólk í tuga og
seinna hundraðatali til að sinna hinum
ólíklegustu þáttum innan boo, sem meðal
annars átti að vera alþjóðleg tímaritaút-
gáfa samhliða netversluninni og miklu
púðri er varið í að hanna teiknimynda-
fígúruna Miss Boo sem átti að birtast á
heimasíðunni og aðstoða við innkaup not-
endanna. Einnig átti að vera hægt að
skoða allar vörur í þrívídd og greina
smæstu atriði, alveg niður í saumana á
flíkunum. Samhliða þessu fer
af stað umfangsmikið mark-
aðsstarf til að gera boo.com
að heimsþekktu vörumerki á
augabragði og einnig að ná
samningum við frægustu
vörumerkin á sviði íþrótta
og tísku.
Fljótlega fer að syrta í
Íálinn. Aftur og aftur þarf
meira fé til að koma
starfseminni í gang. Á
annan tug verktaka, auk
innanhússmanna, koma
við sögu við hönnun-
ina á vefnum og
' tæknimálin ganga alls
i ekki upp. Vefurinn
átti að vera á mörg-
um tungumálum og
sniðinn að mismun-
andi gjaldmiðlum.
Eftir margra mánaða tafir er loks
opnað en fyrst í stað tók fjórar mínútur að
birta heimasíðuna. Samhliða þessu er eytt
peningum til vinstri og hægri, allskonar
vandamál hrannast upp og þegar loks er
stigið á bremsuna er það of seint og endir-
inn blasir við.
Hratt ris og fall boo.com endurspeglar
örlög margra netfyrirtækja en það sem
sker sig úr er að boo var hið fyrsta stóra
sem féll um koll en er líka talandi dæmi
um hina taumlausu bjarsýni sem ein-
kenndi framtíðarsýn marga fyrir aðeins
tveimur árum. Boo hoo er spennandi,
grípandi bók sem erfítt er að leggja frá sér.
Vefurinn boo.com var seldur úr þrota-
búinu og er enn til, en er bara svipur hjá
sjón. Bókavefur Emst og Kajsa, bokus.se
er í fullu fjöri, og þar er meðal annars að
finna þessa bók.
34
lolvumál