Vísir - 21.07.1965, Side 1
VISIR
55. árg. - Miðvikudagur 21. júlí 1965. - 163. tbl.
Skemmdir á BLIKFAXA
vegna lélegra flugbrauta
Grjótflugið á flugvöllum úti
á landi virðist ætla að fara illa
með hina nýju flugvél Flug-
félags íslands, Blikfaxa. Á þeim
tveim mánuðum, sem liðnir eru
frá því vélin hóf innanlands-
flug hefur véiin skaðast á odd-
hvössu grjótinu og má greini
300Mexíkanar hingað mánaðarlega
Ferðamannastraumurinn
hingað til lands færist sí-
fellt í aukana, aldrei hafa
fleiri erlendir ferðamenn
heimsótt ísland en munu
gera á þessu sumri.
Nú má vænta þess, að
brátt verði ísland viðkomu
staður 300 Mexíkana mán-
aðarlega á leið þeirra til
Evrópu og getur sú tala
hækkað verulega, þegar
MIKILL LAX í
ELLIÐAÁNUM
„Það er feikinógur fiskur í ánni
núna, hann liggur í þéttum torfum
eins og síld. En hann bítur bara
ekki á, það eru aðeins þeir stöku,
sem bíta“, sagði frú Karitas Sig-
urðsson, kona Sigurðar B. Sigurðs
sonar konsúls, Hún var í morgun
ásamt bróður sínum, Einari Ein-
arsyni bílstjóra, við laxveiðar í
Elliðaánum.
Það eru leyfðar þrjár stengur í
ánrii og þau systkinin fengu
keypta sex hálfa daga. Á morgn-
ana eru þau frá klukkan sjö til
klukkan eitt eftir hádegi, en eft'ir
hádegi eru þau frá kl. þrjú til
níu. Klukkan hálf tíu í morgun
höfðu þau fengið tvo laxa, annan
fimm og hálft pund, hinn átta pund.
„Það er sízt minni fiskur í ánni
nú en fyrri ár, hann var bara svo
seint á ferðinni. Það eiga aðéins
að vera þrjár stengur í ánni, en
það má nú sjá fjórar við og við“,
sagð'i frú Karitas að lokum.
kynning er komin á landið
í Mexíkó.
Þessar upplýsingar komu fram
á blaðamannafundi sem ambassa
dor Mexico á Islandi, Eduardo
Suarez Aransolo, en hann hefur
aðsetur í London, hélt á Hótel
Sögu í gær.
Er talið að hægt sé að beina
þessum ferðamannastraumi hingað
eftir að byggingu Loftleiðahótels-
ins er lokið og verði dvöl Mexí-
kananna hér í samráði við Loft-
leiði. Dveljast Mexíkanarnir hérna
sem „stop over“ farþegar, það er
að þeir dveljist hér á landi í sól-
arhring eða lengur á leið sinni til
Evrópu en það hefur aukizt mjög
að Mexíkanar fari þangað í
skemmtiferðir. Núna fara 600
ferðamenn mánaðarlega frá Mexí-
kó til Evrópu.
Til þess að auðvelda Islending-
um og Mexíkönum að ferðast til
landa hvorra um sig hefur verið á
kveðið að afnema vegabréfsáritun
þannig að núna þurfa Islendingar,
sem vilja fara til Mexikó aðeins að
hafa vegabréf til þess að fá að
komast inn í landið.
Framh. á 6. síðu.
lega sjá ummerkin eftir það á
búk vélarinnar, en þar hefur orð
ið að sjóða í götin.
Blikfaxi er eins og allar ný
tízku flugvélar smíðaðar fyrst
og fremst fyrir flugbrautir nú-
tímans, asfaltbrautir, en helm
ingur lendinga vélarinnar er á
malarbrautum og það mjög
slæmum málarbrautum úti á
landi.
Daglega framkvæmir flugvél-
in 5 slíkar lendingar á móti 5
í Reykjavík, en vélin hefur
reynzt frábærlega vel í alla
staði og orðið mjög vinsæl.
Flugvellimir sem Blikfaxi lend
ir á eru á Isafirði, Akureyri,
Egilsstöðum, Vestmannaeyjum
og að auki öðm hverju á Sauð
árkróki og Húsavík.
Tæknimenn Flugfélagsins hugsa
nú ráð til að verja hina dýru
flugvél skemmdum á þessum
flugvöllum, en það mundi að-
eins vera til bráðabirgða, því
eina varanlega lausnin yrði sú
að endurbætur yrðu gerðar á
lflugvöllunum sjálfum.
•• • mjjan y%xA"-v. .................« •. * twMWMg
„Fritz Heckert" frá Rostock vió Ægisgarð i morgun. (Ljósm. Vísis: B.G.).
A-þýzkt skip meS 372
kennara frá Norðurlöndum
Þau skiptast á um stöngina, systkynin Karitas og Einar.
„Fritz Heckert" — austur-
þýzkt skip frá Rostock lagðist
upp að Ægisgarði í morgun
með 372 kennara frá Norður-
löndum.
Farþegamir voru að hópast
í land, þegar blaðamenn Vísis
komu á vettvang. Þeir höfðu
verið svo heppnir að sjá gosið
við Surtsey. „Hvílíkur kraft-
ur“, sagði einn þeirra.
Skipið „Fritz Heckert“ er
3ja ára gamalt og allt hið
þokkalegasta. Það er í förum
um allan heim. Kapteinninn,
Willi Eckholz er sjálfur kenn-1
ari, sagðist hafa kennt stærð-1
fræði og eðlisfræði. en hætt því
fyrir tíu árum.
Á sfld við Hjaltland
Þar sem lítil sild er nú hér við
ísland hefur einn útgerðarmaður-
inn, Guðmundur Jörundsson grip-
ið til þess ráðs í tilraunaskyni, að
senda skip sín, Jörundana tvo, á
síldveiðar á „fjarlægum miðum"
ef svo má segja. Skipin em nýlögð
af stað út til Hjaltlandseyja, þar
sem mikil síld er. Mun síldarflutn-
ingaskipið Polana, sem verksmiðj-
ur við Eyjafjörð hafa á Ieigu fara
Framh á bls. 6
BLAÐIÐ i DAG
ÁBERANDI VA TNSSKORTUR UM
ALL T SUNNANVERT ÍSLAND
Það er mjög vatnslít-
ið víða um land, einkum
þó hér á Suður- og Suð-
vesturlandi. Áskorun
hefur verið útvarpað til
Hafnfirðinga um að fara
sparlega með neyzlu-
vatn og i Gvendarbr.
hefur vatnsborðið lækk
að um 45 cm frá því er
það stóð hæst í vetur
Ekki horfir þó til vand-
ræða enn sem komið er
hvað neyzluvatn snertir
hér í Reykjavíkurborg
að því er Þóroddur Th.
Sigurðsson vatnsveitu-
stjóri tjáði Vísi í gær-
kvöldi.
Framh. á 6. sí8u.