Dagur - 10.07.1999, Page 9
8- LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 - 9
FRÉTTA SKÝRING
FRÉTTIR
Gríðarleg fi ölguii umferðaríirota
Nú hefur verið kynnt
ársskýrsla Lögregl-
uiiiiar í Reykjavík fyr-
ir árið 1998. Þar
keiniir m.a. fram að
nmferðarlagabrotiim
hefur fjölgað gríðar-
lega, þaii hafa tvöfald-
ast frá 1996 til 1998.
OIl höfum við einhver samskipti
við lögregluna enda er það eitt af
meginhlutverkum ríkisins að sjá
um að lög og réttur séu ekki brot-
in. A undanförnum árum hafa
orðið miklar breytingar á hlut-
verki og skipulagi löggæslu á höf-
uðborgarsvæðinu og má þar
nefna stækkun umdæmisins, ný
lögreglulög, fjölgun íbúa á Iög-
gæslusvæðinu og nýjar kröfur til
starfsemi lögreglu eru nokkrir af
þeim þáttum sem hafa ýtt undir
þessar breytingar. Umdæmi lög-
reglustjórans í Reykjavík er gríð-
arstórt og nær það bæði yfir þétt-
býli og dreifbýli. Fram til ársins
1988 náði það eingöngu til
Reykjavíkur en eftir það voru
Mosfellsbær, Seltjarnarnes, Kjal-
arnes og Kjós sameinuð lögsagn-
arumdæminu.
Miklar stjórnsldpulegar
breytingar
Á síðustu árum hafa orðið nokkr-
ar breytingar á stjórnskipulagi
Lögreglunnar í Reykjavík. Um
mitt árið 1997 var staða varalög-
reglustjóra stofnuð við embættið
auk þess sem settur var sérstakur
saksóknari við embættið. Nú er
Böðvar Bragason lögreglustjóri í
Reykjavík og Georg K. Lárusson
varalögreglustjóri. Aðstoðaryfir-
lögregluþjónum hefur verið fjölg-
að úr fjórum í átta. Árið 1998 var
ákveðið að bæta við nýrri stöðu
framkvæmdastjóra þjónustu- og
rekstrarsviðs. Þá var verkaskipt-
ing rannsóknarlögreglumanna og
lögfræðinga gerð skýrari, auk
þess sem leitast var við að tryggja
að endurbætur á húsnæði væru í
samræmi við þarfir í hverri deild
fyrir sig. Vaktkerfi lögreglunnar
hefur verið breytt þannig að fimm
vaktir eru á sólarhring í stað íjög-
urra áður og er þannig leitast við
að stytta vinnutíma lögreglu-
manna samkvæmt vinnutímatil-
skipun ESB.
Um mitt árið 1998 voru þrjár
deildir, innheimtu-, íyrirkalls- og
fullnustudeild, sameinaðar í eina
deild, sektadeild. I kjölfar sam-
einingarinnar fór fram ýtarleg
endurskipulagning á deildinni í
því skyni að bæta verkfyrirkomu-
lag. Helsta verkefni sektadeildar
á árinu var að vinna á hinum
uppsafnaða vanda sem var annars
vegar vegna gjaldfallinna sekta og
hins vegar gjaldfallins sakar-
kostnaðar. Til að mæta þessu var
ákveðið að fara í átaksverkefni til
að taka á þessum málum. Að mati
lögreglunnar gekk verkefnið mjög
vel.
Lögregliunömuun fjölgar
Meðalfjöldi íbúa á hvern lög-
reglumann hefur verið mismun-
andi í gegnum árin en á síðasta
ári voru þeir 409, árið 1996 voru
þeir 446, árið 1994 var fjöldinn
433 og árið 1992 voru þeir 420.
Þegar umdæmi lögreglunnar var
stækkað árið 1988 jókst meðal-
fjöldi íbúa á hvern lögreglumann
úr 384 íbúum árið 1986 í 441
árið 1988. Frá þessum tíma hefur
verið leitast við að fjölga aftur
lögreglumönnum en með tíman-
um hafa bæði áherslurnar breyst
í löggæslunni og þjóðfélagið
stækkað með tilheyrandi fjölgun
ökutækja og skemmtistaða. Við
lok árs 1998 var starfsfólk emb-
ættisins alls 365 manns, 283
karlar og 82 konur. Athygli vekur
að í 6 manna yfirstjórn lögregl-
unnar er engin kona en konur eru
í meirihluta sem fangaverðir á að-
alstöðinni þar sem þær eru 6 á
móti 5 körlum. Einnig eru konur
fleiri í lögfræðideildinni. Lang-
flestir hjá embættinu sinna hefð-
bundnum löggæslustörfum eða
um 221 starfsmaður, auk 69 lög-
reglumanna sem sinna öðrum
þáttum löggæslu.
14.000 ökuskirtcini
Lögreglan hefur undanfarin
misseri einbeitt sér að aukinni
grenndarlöggæslu og hafa verið
settar upp nokkrar hverfastöðvar
víðs vegar um höfuðborgarsvæð-
ið. Eitt meginmarkmið grenndar-
löggæslu er að auka nálægð lög-
reglu og borgara með því að láta
sömu lögreglumenn á hverri vakt
sinna hverfinu. A síðustu árum
hefur lögreglan farið að nýta
myndavélar til almennrar lög-
gæslu í meiri mæli en áður.
Þannig voru myndavélar settar
upp á umferðarljósum, eftirlits-
myndavélar í miðborginni og
hraðamyndavélar teknar form-
lega í notkun.
Arið 1998 voru nær 16 þúsund
vegabréf gefin út hjá embætti Iög-
reglustjórans í Reykjavík og tæp-
lega 14 þúsund ökuskírteini. Um
2 þúsund ný ökuskírteini eru gef-
in út árlega þannig að meirihluti
útgefinna ökuskírteina á hveiju
ári er vegna endurnýjunar eða
vegna þess að ökuskírteini tapast
eða eyðileggst. Gefin voru út 158
skemmtanaleyfi og 11 skemmti-
staðir fengu rekstrarleyfi á árinu
1998.
122 milljóna króna Tialli
Embættið hafði til ráðstöfunar á
síðasta ári samtals um 1.406
milljónir króna. Rekstrarútgjöld
urðu hins vegar um 1.528 millj-
ónir króna og var því 122 milljóna
króna halli á rekstrinum. Rekstr-
arútgjöld embættisins eru að
Iangmestu leyti Iaunaútgjöld eða
80% af heildarútgjöldum emb-
ættisins. Ymsar greiðslur árið
1998, einkum vegna tækja- og
búnaðarkaupa sem stöfuðu af
Ijölgun starfsmanna, eru þó ekki
lýsandi fyrir venjulegt rekstrarár
samkæmt ársskýrslunni. I lok árs-
ins 1997 var 42,8 m.kr. halli á
rekstri embættisins sem færðist
yfir á árið 1998. Rekstraráætlun
embættisins var yfirfarin af Ríkis-
endurskoðun og var gerð greinar-
gerð um rekstrarhorfur. I fjár-
aukalögum 1998 var 115,5 m.kr.
Ijárveiting til embættisins þar af
voru 111 m.kr. til að mæta fjár-
vöntun samkvæmt úttekt Ríkis-
endurskoðunar og 4,5 m.kr.
vegna minnkandi sértekna í kjöl-
Það er í mörg horn að líta hjá Lögreglunni I Reykjavík og starfsfólki embættisins hefur verið að fjölga. Við lok árs 1998 var starfsfólk embættisins alls 365 manns, 283 karlar og 82 konur.
far nýrra áfengislaga er víneftir-
litsgjaldið var lagt niður. Þá var
fjárveiting hækkuð sérstaklega
um 10 m.kr. vegna aukins kostn-
aðar í kjölfar fimmvaktakerfisins.
Þegar Ijóst var að ljárveiting
myndi hækka um 125,5 m.kr.
töldu menn að fjárhagsvandi
embættisins væri að Iangmestu
leyti leystur. Það gekk ekki eftir
og er það m.a. vegna hærri Iauna-
kostnaðar og lægri sértekna en
búist var við. Einnig voru færri
notaðir bílar seldir en reiknað
hafði verið með og þörfin fyrir
aukinn tækjabúnað jókst samfara
Ijölgun á starfsmönnum.
Umferðarlagabrot úr 12.955
í 30.923
Þegar metnar eru tölfræðilegar
niðurstöður lögreglunnar ber að
hafa í huga að upplýsingarnar eru
skráðar af mörgum aðilum og því
hætt við að skráning sé ekki ávallt
sambærileg. Þá skal hafa það í
huga að mikil umræða um ein-
stök afbrot getur aukið kraftinn í
baráttunni gegn þeim, bæði inn-
an lögreglunnar og í samfélaginu
í heild þannig að aukning verður
á tilkynningum án þess þó að
raunveruleg aukning verði á
Ijölda brota. I umfjöllun um gögn
frá lögreglu er einnig um að ræða
fjölda kærðra mála en ekki fjölda
afbrota f samfélaginu.
Sá málaflokkur sem varðar um-
ferðarlagabrot hefur vaxið
stöðugt á undanförnum árum
enda hefur bílafloti höfuðborgar-
búa nær þrefaldast á 20 árum.
Punktakerfið, sem tekið var upp á
landsvísu þann 1. janúar 1998, er
ein þeirra leiða sem gripið hefur
verið til til að fækka umferðar-
lagabrotum. Með punktakerfinu
er leitast við að taka á síbrota-
mönnum í umferðinni með því að
setja á viðbótarrefsingu til handa
þeim sem brjóta oft af sér. Um-
ferðarlagabrotum hefur Ijölgað úr
12.955 fyrir árið 1996 í 30.923
fyrir árið 1998 og þar af hefur
brotum gegn umferðarhraða
íjölgað úr 3.941 fyrir árið 1996 í
6.451 fyrir árið 1998. Einnig hef-
ur umferðaróhöppum Ijölgað á
þessu tímabili úr 2.954 í 3.475.
Milli áranna 1997 og 1998 fjölg-
aði einna mest brotum á umferð-
arreglum fyrir ökumenn eða um
67%.
Mörg ölvnnaraksí iirsmal
Aukin afskipti lögreglu af brotum
várðist helst skýra þessa aukn-
ingu. Einnig hefur verið lögð
meiri áhersla en oft áður á eftirlit
með umferðinni árið 1998 sem
hafði í för með sér mikla aukn-
ingu á fjölda mála í þessum mála-
flokki. Einnig virðast borgararnir
í auknum mæli kalla til lögreglu
þegar umferðaróhöpp eiga sér
stað í stað þess að láta útfyllingu
tjónaskýrslu nægja. Arið 1998
komu upp 1.018 mál innan um-
dæmis Iögreglustjórans í Reykja-
vík sem vörðuðu ölvunarakstur
1.032 einstaklinga. 811 karl-
menn voru grunaðir um ölvun við
akstur á móti 221 konu. Blóð- eða
öndunarsýni var tekið úr 971 ein-
staklingi. I 89 skipti mældist ekk-
ert áfengi í öndunar- eða blóðsýni
eða áfengismagn var undir kæru-
mörkum.
446 kærðir vegna fíkniefna-
mála
Málum er varða innflutning á
fíkniefnum hefur fækkað um 12
mál eða tæp 30% frá árinu 1997
til 1998 en málum vegna sölu og
dreifingar fíkniefna hefur hins
vegar ljölgað. Fíkniefni koma þó
ekki bara við sögu í skráðum
fíkniefnamálum því fíkniefni
koma oft við sögu í málum sem
varða önnur brot. Sé tekið tillit til
þeirra má gera ráð fyrir að heild-
arljöldi fíkniefnabrota sem komu
til kasta Lögreglunnar í Reykjavík
á síðastliðnu ári hafi verið 384
mál. Ekki liggja fyrir sambærileg-
ár upplýsingar um fjölda mála
árin 1996 og 1997. Árið 1998
voru 447 manns kærðir í 206
málum vegna brota á fíkniefna-
löggjöf en hins vegar voru ekki all-
ir ákærðir eða aðeins 107 einstak-
lingar. í mörgum tilvikum kom
sama fólk við sögu í fleiri en einu
fíkniefnabroti. Hlutfallslega voru
flestir kærðir fyrir vörslu eða
neyslu fíkniefna og eru 33%
þeirra á aldrinum 15 til 19 ára
þegar brotið var framið og 24%
þeirra á aldrinum 20 til 24 ára.
Hlutfall einstaklinga 24 ára og
yngri er svipað þegar litið er til
sölu og dreifingar fíkniefna og
ýmissa fíkniefnabrota en í þeim
brotaflokkum voru um 66-70%
kærðra 24 ára eða yngri. Um 33%
kærðra í málum er varða innflutn-
ing á fíkniefnum voru 20 til 24
ára og um 25% á aldrinum 35 til
39 ára.
Langmest af hassi
Líkt og á síðastliðnum árum var
aðallega lagt hald á kannabisefni
en einnig varð nokkur aukning á
því að lagt væri hald á sterkari
efni. Af hassi var lagt hald á rúm-
lega 12,5 kíló. Þegar litið er til
amfetamíns má sjá að álíka oft var
lagt hald á amfetamín og hass
árið 1998. Það magn sem lagt var
hald á var hins vegar mun minna
eða 1,7 kíló í 153 skipti. Lagt var
hald á marijúana 30 sinnum, alls
433 grömm. Lagt var hald á um
eitt klló af kókaíni í 12 skiptum.
Meirihluti þess kókaíns sem tekið
var fannst á einum stað, samtals
630 grömm. Um 83% af öllu LSD
sem Lögreglan í Reykjavík lagði
hald á árið 1998 var tekið í sama
skipti en alls fann lögreglan 267,5
skammta. E-pillur voru aðeins
teknar í einu máli hjá Lögregl-
unni í Reykjavík, samtals 2.031
tafla. Einnig var lagt hald á 0,6
grömm af muldum E-töflum.
Innbrotiun fækkar en árásnm
fjölgar
Lögreglunni í Reykjavík var til-
kynnt um 1.378 innbrot árið
1998 en árið 1997 voru 1.726
mál tilkynnt. Líkt og árið 1997
virðist meginskýringin á fækkun
tilkynninga vegna innbrota felast í
færri tilkynningum vegna inn-
brota í bíla en áður. Þannig var
tilkynnt um 616 innbrot í bíla
árið 1997 en 1998 voru þau 378
og hafði því fækkað um 39%. Til-
kynningum um innbrot í heima-
hús fækkaði um 4,5% frá 1997 til
1998. Árið 1998 voru 17 rán til-
kynnt til Lögreglunnar í Reykjavík
og er það nokkur fækkun frá ár-
inu 1997 þegar 24 rán voru til-
kynnt, en svipað og árið 1996
þegar 16 rán voru tilkynnt. Lík-
amsárásum fjölgar milli ára en
árið 1997 voru þær 588 en árið
1998 voru þær orðnar 653. Kyn-
ferðisbrotum Ijölgar stöðugt og
árið 1996 voru þau 53, árið 1997
eru þau 76 og í fyrra 82. Nauðg-
anir voru 16 árið 1996, en bæði
árið 1997 og 1998 voru þær 26 á
hvoru árinu. Gerendum í kynferð-
isbrotamálum fer mest Ijölgandi
meðal ungs fólks.
Gjfurleg fjölgun sekta
Á síðastliðnu ári voru gefnar út
184 ákærur vegna auðgunarbrota.
Þar af voru flestar ákærur vegna
þjófnaðarbrota eða 107 ákærur
en næstflestar eða 43 ákærur
voru vegna skjalafals. Þá voru
gefnar út 76 ákærur vegna ofbeld-
isbrota, 51 vegna líkamsárása, 21
vegna líkamsmeiðinga og 4 vegna
mannsláts vegna gáleysis. Einnig
voru gefnar út 17 ákærur vegna
eignaspjalla og 16 vegna nytja-
stuldar. Árið 1998 var ákært í 94
fíkniefnamálum og voru 107
manns ákærðir í þeim. Á síðasta
ári fjölgaði álögðum sektum gífur-
lega hjá embættinu. Þannig voru
álagðar sektir 5.433 árið 1997 en
17.162 árið 1998 sem er aukning
um 216% frá árinu áður. í 1.340
málum var samþykkt skrifleg sátt
lögreglustjóra og hins kærða þar
af 476 vegna ölvunaraksturs og
624 vegna annarra umferðarlaga-
brota. Þessi aukning stafar m.a. af
nýju sektarfyrirkomulagi og
einnig hefur lögreglan verið að
taka á fleiri brotum en áður. Áætl-
aðar lögreglusektir fyrir árið 1999
eru tæplega 400 milljónir króna
og renna þær beint í ríkissjóð en
ekki til viðkomandi embættis.
AGUST
ÓLAFUR
ÁGÚSTSSON
Páll Pétursson ráðherra jafnréttismála.
Jafnrétti sráóherra
braut jafnréttislög
Kærunefnd jafnréttismála hefur
beint þeim tilmælum til félags-
málaráðherra (sem fer með jafn-
réttismál) að fundin verði við-
unandi lausn í máli konu, sem
kærði ráðningu karls í starf
framkvæmdastjóra Svæðisskrif-
stofu málefna fatlaðra. Kærandi
taldi að hann væri betur í stakk
búinn til að gegna starfinu, en
sá sem fékk það, en staðan var
auglýst til umsóknar í Lögbirt-
ingarblaðinu þann 31. júlí 1998.
I auglýsingunni kom fram að
nauðsynlegt væri að umsækj-
andinn hefði haldgóða menntun
og starfsreynslu á sviði rekstrar
og stjórnunar og þekkingu á
málefnum fatlaðra.
Sýnt var að kærandi og sá sem
fékk starfið, hefðu mjög ámóta
hæfni til starfans og í jafnrétt-
islögum er skýrt kveðið á um að
ef að umsækjendur séu jafn hæf-
ir, en af sitthvoru kyninu, skuli
ráða einstakling af því kyni, sem
er í minnihluta í viðkomandi
starfsgrein. Þar sem fyrir lá að
fimm af sjö stöðum fram-
kvæmdastjóra svæðisskrifstofa í
málefnum fatlaðra á landinu,
sem heyra undir félagsmálaráð-
herra, eru skipaðar körlum, var
það mat kærunefndar að ráðn-
ingin væri ekki í samræmi við
jafnréttislög. - AÞM
Margir óskoðaðir
Eigendur 694 ökutækja hafa annað hvort fengið frest eða að númer-
in hafa verið klippt af bifreiðum þeirra, því þær hafa ekki verið færð-
ar til skoðunar á réttum tíma. Það er háð ástandi bifreiðarinnar hvort
að númer eru klippt, eða að frestur sé veittur, en þó að menn fái frest-
inn fá þeir samt sem áður sekt í kaupbæti, þar sem um er að ræða
brot á umferðarlögum. Af þessu tilefni vill lögreglan beina þeim til-
mælum til eigenda ökutækja að færa bifreiðar til skoðunar innan þeir-
ra tímamarka, sem í gildi eru, til að forðast frekari óþægindi. -AÞM
Bók mn st arfsmannastj órnun
Bókaklúbbur atvinnulífsins hefur
sent frá sér bók um starfsmanna-
stjórnun, sem ber heitið „Hvers
vegna starfsmenn gera ekki það
sem til er ætlast og hvernig má
beijast við því.“ Um er að ræða
metsölubók eftir Ferdinand F. Fo-
urnies í þýðingu Höskuldar Frí-
mannssonar. I erlendum umsögn-
um um bókina segir m.a. að hún
sé hagnýt og miði að því að auð-
velda stjórnendum að leysa vanda-
mál, sem upp koma við stjórnun
starfsmannamála.
Leikreglur verði lagaðar
Skipverjar á togaranum SléttanesilS hafa sent frá sér skorinort bréf
þar sem þeir skora á stjórn Básafells og bæjarstjórn Isafjarðarbæjar
að endurskoða ákvörðun um sölu skipsins. Sömuleiðis segja sldp-
verjarnir að í ljósi atvinnuástandsins á Þingeyri skori þeir á ríkisvald-
ið að koma til aðstoðar og laga leikreglur þjóðfélagsins þannig að fólk
eigi jafnan rétt til búsetu og atvinnu.
„Það var nú einu sinni þannig að fólkið í sjávarþorpunum skapaði
útgerðarmönnum kvóta, allra landsmanna.11
I bréfi sínu benda skipverjarnir á að Sléttanesið sé búið að skila
jafnri afkomu, alls 837 milljónum króna, síðan það var sett á flaka-
frystingu í endaðan febrúar 1998. Segja þeir Básafell láta frá sér sína
bestu tekjulind ef skipið verður selt auk þess sem (jöldi fólks muni
missa atvinnu sína við það.
- S.DÓR