Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1985, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1985, Qupperneq 21
DV. LAUGARDAGUR 9. MARS1985. 21 Verðlaunasamkeppni um „Bestu uppskriftirnar ’85“ Uppmeó Við hjá Osta- og smjörsölunni bjóðum nú öllu áhugafólki um matargerð að vera með í verðlaunasamkeppni um „Bestu uppskriftirnar ’85“. Hugmyndaflug, ostur og smjör ráða ferðinni. Keppnisreglur eru í stuttu máli þessar: • Ostar og/eða smjör þurfa að skipa veglegan sess í uppskriftunum. • Uppskriftirnar þurfa að falla inn í einhvern af eftirtöldum flokkum: sjávarréttir, bakstur (brauð og kökur) eða eftirréttir. • Uppskriftirnar mega ekki hafa birst áður á prenti eða annars staðar • Þátttökurétt hefur allt áhugafólk um matargerð. • Heimilt er að senda fleiri en eina uppskrift en ekki á sama blaði. • Tilgreinið nákvæmlega öll mál í dl, matskeiðum, teskeiðum, grömmum o.s.frv. Þetta á einnig við um salt og annað krydd. • Tiigreinið einnig fyrir hve marga rétturinn er og hvað hentar að bera fram með honum. ■■ • Heiti uppskriftar þarf að fylgja hverri uppskrift. • Nafn höfundar, heimilisfang og sími skal fylgja í lokuðu umslagi merktu heiti uppskriftar. Þá áskiljum við okkur rétt til að birta þær uppskriftir sem berast eða hagnýta þær á annan hátt, án’ endurgjalds. f dómnefnd sitja Hilmar B. JónSson, „Gestgjafi", Jóhanna Sveinsdóttir, „Matkráka" og Dómhildur Sigfúsdóttir, uppskrifta- og matreiðslusérfræðingur okkar. Síðasti skiladagur er 15. apríl 1985. Uppskriftir skal senda fyrir 15. apríl n.k. í umslagi merktu: „Bestu uppskriftirnar 85“ Osta- og smjörsalan, pósthólf 10100,130 Reykjavík. Ef nánari upplýsinga er óskað, veitir Dómhildur Sigfúsdóttir þær í síma 82511. Til „Koben“ á góðri uppskrift! Verðlaunin eru ekki af lakara taginu: 1. verðlaun eru helgarferð fyrir tvo til Kaupmannahafnar með kvöldverði á einu þekktasta veitingahúsi borgarinnar. 2. verðlaun eru helgarferð fyrir tvo til Akureyrar eða Reykjavíkur. 3. verðlaun eru helgarferð fyrir tvo til Húsavíkur eða Reykjavíkur. Einnig verða veittar 20 viðurkenningar í hverjum uppskriftaflokki, samtals 60. Verðlaunaafhending fer fram í lok maí. Láttu nú reyna á hugmyndaflugið, ef þú hefur áhuga á matargerð og ferðalögum. Hver veit nema þú komist þá til „Koben"? Osta- og smjörsalan irnteðl pk AUKHF. 9.128

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.