Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1986, Side 9
MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1986.
Uúönd
9
Stúdentar í
tjaldbúðum
Gurmlaugur A Jónssan, DV, Lundi
Þúsundir danskra stúdenta kemur
til með að vanta þak yfir höfuðið þeg-
ar háskólar landsins hefja starfsemi
sína í haust. Ástæðan er mikill skortur
á stúdentaíbúðum og okurleiga á
leiguíbúðum og herbergjum á almenn-
um markaði. Húsnæðisvandinn er
alvarlegur í öllum háskólabæjum í
Danmörku en sýnu verstur í Kaup-
mannahöfn.
Bæði háskólayfirvöld og nemenda-
samtök hafa nú gripið til mjög óvenju-
legra aðgerða til að útvega stúdentum
þak yfir höfúðið. Sem dæmi má nefna
að við tækniháskólann í Lundtofte,
fyrir utan Kaupmannahöfn, hafa
skólayfirvöld látið reisa tjaldbúðir á
skólasvæðinu þar sem stúdentar fá að
sofa þar til úr rætist. Á öðrum stöðum
í Kaupmannahöfn hafa stúdentar
sjálfir leigt sameiginlega stór tjöld eða
húsvagna sem komið hefur verið fyrir
á stærsta tjaldstæði Kaupmannahafii-
ar, Bellahöj.
Úti á landi er vandinn einnig mjög
mikill og nokkrir háskólar hafa tekið
farfuglaheimih á leigu fyrir stúdenta.
Húsnæðisvandinn í Danmörku hefur
ekki verið svo alvarlegur um árabil.
Fjolskylduatok
í finnskum
stjórnmálum
Guðrún Helga Siguiðardóttir, DV, Helsinld
Upphaflegur stofhandi Flokks
landsbyggðarinnar i Finnlandi og for-
maður þingflokks hans, Veikko
Vennamo, hefur sagt af sér sem for-
maður þingflokksins. Veikko Venn-
amo segir af sér vegna skrifa sonar
síns, Pekka Vennamo, fjármálaráð-
herra og formanns flokksins, þar sem
hann lýsti því yfir að valið stæði milli
föður og sonar hvað varðar foiystu í
flokknum og fleira. Ekki hefur enn
náðst í Pekka Vennamo.
Peres rekur
ráðherra
Búist er við því að Shimon Peres,
forsætisráðherra Israels, kalli saman
ríkisstjóm sína til neyðarfundar í dag
til að ræða það hvort reka skuli dóms-
málaráðherrann, Yitzhak Modai, fyrir
að móðga forsætisráðherrann.
Talsmaður Peresar fékkst ekki til
að staðfesta útvarpsfregnir um að
hann hefði þegar ákveðið að reka
dómsmálaráðherrann, sem áður var
fjármálaráðherra, fyrir að hafa sagt á
opinberum vettvangi um helgina að
Peres væri jafhfáfróður um dómsmál
og hann væri um fjármál.
Starfsmannahópar-einstaklingarathugið!
Látið okkurskipuleggja fyrirykkurfjörugarheigarferðirí Þórsmörk.
Við sjáum um kvöidvökur við varðelda meðsöng,gleðioggríni.
Trúðar heimsækja staðinn og farið verður í gönguferðir f fylgd
með vönum fararstjóra.
Matreiðslumeistari okkar íMörkinni heldurykkurgrillveislu þar
sem fjallalömb verða grilluð í heilu lagi.
Mjög góð snyrtiaðstaða erá staðnum í skála Austurleiða f Húsadal.
Rútuferðirá vegum Austurleiðar eru frá BSÍ alla föstudaga kl.20.00.
SkelliðykkuríMörkina. Pantanir ísíma 622 666.
MWMWwm&MJim f Þórsmerkurvökur
VISA
Laugavegi 18A Sími 622 666.
SOLSKINSEYJAN
maHorka
Við seljum síðustu 5 sæti ^
sumarsins á frábærum "
kjörum
Brottför 23. júlí
Gististaðir í sérflokki
Umboö a istandi fyrir
OW \ DINERS CLUB
INTERNATIONAL
m^lVTMC
Ferðaskrifstofa, Hallveigarstíg 1. Símar 28388-28580.