Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1986, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1986.
11
Viðtalið
„Kom Ama Johnsen
í pólitík
Magnús Jónasson, nýráðinn framkvæmdastjóri Herjólfs.
Nýráðinn framkvæmdastjóri Her-
jólfe M. tók við störfum fyrir skömmu.
Sá heitir Magnús Jónasson og er bor-
inn og bamfæddur Vestmannaeying-
ur. „í Vestmannaeyjum hef ég alltaf
búið að undanskildum síðustu tveimur
árum en þá bjó ég í Reykjavík og vann
í Sjónvarpsbúðinni. Nú er ég kominn
heim aflur,“ -sagði Magnús. Honum
líst vel á nýja starfið, telur það bæði
líf^égt og fjölbreytt.
Ætlaði í Samvinnuskólann
Magnús segist hafa ætlað í Sam-
vinnuskólann og sótt um skólavist
þar. Hann þurfti að bíða í ár eftir því
að fá inngöngu en þoldi ekki biðina,
var kominn í fasta vinnu sem hann
vildi ekki sleppa. „Ég hef unnið hin
ýmsu störf í gegnum tíðina. Að sjálf-
sögðu hef ég verið í fiski, ég vann á
bæjarskrifstofunum í 6 ár, var mat-
vörukaupmaður um skeið og endaði
sem stöðvarstjóri á vörubílastöðinni
áður en ég flutti í land,“ segir Magn-
ús. Hann hefur gagnfræðapróf en sótti
Iðnskólann í Eyjum um tíma. „Þetta
var kvöldskóli og ég hafði áhuga á
smíðum. Fyrstu 3 bekkimir voru al-
mennt nám en til að Ijúka síðasta
bekknum þurfti maður að vera kom-
inn á samning. Mig dagaði þannig
einhvem veginn uppi á bæjarskrifstof-
unni,“ segir Magnús. Hann segist
ekkert vera banginn þó að hann hafi
ekki eitthvað „meirapróf‘, heldur tel-
ur sig hafa lært margt í „praksis"
bæði á bæjarskrifstofunni þar sem
hann var aðalbókari um skeið svo og
á endurskoðendaskrifstofu Gunnars
Zoegá en þar vann hann á meðan á
gosinu stóð. „Ég hef þar að auki stund-
að námskeið í sambandi við tölvur og
meðal annars þess vegna flutti ég suð-
ur,“ segir Magnús Jónasson.
Hætti að spranga þegar bandið
gaf eftir
Þó Magnús hafi unnið mikið hefur
hann auðvitað átt sínar frístundir.
„Sem pejd var ég í fjörunni og á
bryggjunni en ég hætti fljótt að
spranga. Bæði hef ég alltaf verið loft-
hræddur áuk þess sem bandið gaf eitt
sinn eftir í miðjum klíðum, enda vigtin
ekki alltaf í lagi. En þá sagði ég stopp
og hef ekki sprangað síðan." Hann var
í lúðrasveit frá unga aldri, bæði í skól-
anum og síðan í Lúðrasveit Vest-
mannaeyja. „Ég hef spilað á sousefón
en það er stórt bassahom. Annars er
lúðrasveitin mestmegnis ánægjunnar
vegna. Þetta er mikill félagsskapur og
ríkir góður andi. Við höfum talsvert
félagsstarf fyrir meðlimi, forum í ferða-
lög og höfum meðal annars farið til
útlanda.
Varð pulsumálaráðherra
Magnús starfaði í ýmsum skemmti-
nefndum, sérstaklega í tengslum við
1. desember i gagnfræðaskóla. Þar
hlotnaðist honum sá heiður að vera
pulsumálaráðherra en þann titil
hlotnaðist aðeins tveimur á ári, var
þá í þeirra verkahring að selja pulsur
á skemmtuninni 1. desember. „Ég var
líka í fótboltanum og lék bakvörð.
Mér tókst að skora eitt mark á ferlin-
um, sérlega glæsilegt sjálfsmark.
Félagar mínir litu mig nú ekki alltof
hýru auga eftir þetta og ég hætti
sparkinu í 4. flokki. Samt hef ég gam-
an af fótbolta og læt mig sjaldan vanta
á völlinn
Fór holu í höggi í fyrsta skipti
„Ég hef spilað golf mér til skemmt-
unar hér inni í dal og í fyrsta skipti
sem ég snerti á kylfu fór ég holu í
höggi. Það var að vísu aldrei viður-
kennt opinberlega þar sem ég hafði
aðeins einn áhorfanda og var ekki að
keppa á neinu móti.“ Hann segist hafa
gaman af ferðalögum og útivist, sér-
staklega að labba í kringum eyjuna
eða sigla í kring á bátum. „Anínars
hef ég farið vítt og breitt um landið,
allan hringinn og einu sinni yfir há-
lendið. Sú ferð var ógleymanleg og
dreymir mig um að komast í aðra
slíka.“ Af því verður þó ekkert í ár
því Magnús tekur sér ekkert sum-
arfrí. Hann er nýfluttur og í það fóru
tími og peningar, auk þess sem hann
vill kynnast nýja starfinu sem fyrst.
„Er mikið í pólitík“
Stór hluti frítíma Magnúsar fer í
stjómmálavafstur og sem stendur er
hann formaður fulltrúaráðs sjálfetæð-
isfélaganna í Vestmannaeyjum. „Ég
er mikið í pólitíkinni og hún er stórt
áhugamál. Ég hef setið sem varamaður
í bæjarstjóm fyrir Sjálfstæðisflokkinn
og eitt sinn fór ég fram í prófkjöri
þess sama flokks fyrir alþingiskosn-
ingar. Þá buðu menn sig fram í
ákveðin sæti á listanum og keppti ég
að 5. sætinu. Ég tapaði með innan við
10 atkvæðum fyrir núverandi alþingis-
manni, Árna Johnsen. Má segja að ég
hafi komið Áma í pólitík með því að
vinna hann ekki.“ Magnús vill engu
svara um það hvort hann hyggi á frek-
ari stjómmálaafekipti, segir að tímirrn
verði að leiða það í ljós.
Sumir villtust í líkhúsið!
Magnús er giftur Guðfinnu Óskars-
dóttur frá Siglufirði og eiga þau þijú
böm. Þau giftust þegar hann var orð-
inn 25 ára en þá hafði hún unnið við
sjúkrahúsið í Eyjum um skeið. „Ég
náði henni í gegnum hina frægu Villu
en svo var starfemannabústaðurinn
kallaður. Þangað hafa margir Eyja-
menn sótt sínar konur en slíkt var
ekki heiglum hent. Á neðri hæðinni
er líkhúsið og kom iðulega fyrir að
menn villtust, tala nú ekki um ef þeir
vom við skál. Það kom nú ekki fyrir
mig sem betur fer enda sjálfeagt heldur
óskemmtilegt," sagði Magnús Jónas-
son. JFJ
KLAPP!
Glæsibæ
Sími 82922
KLAPP-
HÚFURNAR
Verð kr. 580.
Arp
Sólbaðsstofa
Ástu B. Vilhjálms,
Grettisgötu 18,
sími 28705
Við leggjum
ríka áherslu
á ráðgjöf
og starfsfólk okkar
er ávallt reiðubúið
til að leiðbeina þér
VERIÐ VELKOMIN.
ÁVALT HEITT Á
KONNUNNI.
J\
$
&
Sumarhús ð
wyjuna sem hittir ■ mark
WEISSENHAUSER STRAND, glæsilegur sumardvalarstaður, frábær aðstaða til leikja
og útiveru. Góð staðsetning, stutt til margra forvitnilegra staða: Hansaland, fullkomið
tívoli, dýragarðurinn í Hamborg, Kaupmannahöfn, Kiel. Rúsínan í pylsuendanum: breið
og góð baðströndin. Beint dagttug með Arnartlugi til Hamborgar alla sunnudaga.
Verðdæmi: kr.
13.900,-
á mann, miðað við 4ra manna fjölsk. i eina viku.
Umboð a Islandi fyrir
\ DINERS CLUB
INTERNATIONAL
(mtMtit
FERÐASKRIFSTOFA. HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMAR 28388 - 28580