Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1986, Side 12
12
MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1986.
Kennarar - Kennarar!
Grunnskólann á Hofsósi í Skagafirði vantar kennara í eftirtald-
ar greinar:
fþróttir, smíðar, dönsku og kennslu yngri bama að hluta.
Um er að ræða eina og hálfa til tvær stöður, og því tilvalinn
möguleiki fyrir par að deila með sér.
Gott húsnæði er í boði og leikskóli á staðnum.
Allar frekari upplýsingar veita skólastjóri, Svandís Ingimundar,
í símum 95-6395 eða 95-6346 og formaður skólanefndar, Pálmi
Rögnvaldsson, í símum 95-6400 eða 95-6374.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Staða forstöðumanns
Staða forstöðumanns Droplaugarstaða, vist- og hjúkrunarheim-
ilis fyrir aldraða, er laus til umsóknar.
Áskilin er menntun hjúkrunarfræðings með reynslu á sviði
stjómunar og hjúkmnar aldraðra.
Allar frekari upplýsingar gefur Guðjón Ó. Sigurbjartsson, yfir-
maður fjármála- og rekstrardeildar Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, í síma 25500.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborg-
ar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum umsóknareyðublöðum,
sem þar fást, fyrir kl. 16.00 mánudaginn 8. september 1986.
Skóútsalan
Hverfisgötu 89
hefur opnað aftur
— sama lága verðið.
Skósalan Hverfisgötu 89
HOLSTEINN
ÚR ÚRVALS RAUÐAMÖL
TRAUSTUR STEINN OG EFNISMIKILL.
• GOTT VERÐ
• SENDUM HEIM
• HAGSTÆÐ KJÖR
• HLJÓÐEINANGRANDI
• HITA- OG ELDÞOLINN
STÆRÐIR 20x40x20 OG 20x20x20'
Vinnuhælið Litla-Hrauni Sölusími 99-3104
Söluaðili í Reykjavík: J.L. Byggingavörur
Neytendur
Lyf eru af sumum falin alltof dýr hér á landi. Ólafur Ólafsson landlæknir segir í grein sinni í Læknablaðinu að
kanna beri möguleika á að lækka smásöluálagningu lyfja.
Eru lyf of
Af og til er haft samband við okk-
ur hér á neytendasíðunni og kvartað'
yfir því hve lyf séu dýr. í júníhefti
Læknablaðsins rákumst við á grein
frá landlæknisembættinu sem Ólafur
Ólafsson landlæknir skrifar. Þar
segir meðal annars:
„f könnun landlæknisembættisins
1985 kom í ljós að um fimmtungur
fólks á aldrinum 18-70 ára greiðir
yfir 1.000 krónur fyrir lyf á mánuði.
í þessum hópi eru margir sjúkir, þar
á meðal öryrkjar.
f heild er lyfjakostnaður of hár og
kemur þar meðal annars til mikil
smásöluálagning. Vitaskuld eiga lyf-
salar að vera vel launaðir en margt
bendir til þess að 68-78 prósent smá-
söluálagning sé varla réttlætanleg
lengur. Reglur um lyflaálagningu
voru settar fyrir mörgum árum.
Þessar reglur byggðust á því að mik-
il lyfjagerð fór þá fram í apótekum
og búast mátti við verulegri rýmun.
Vegna þess að apótekin voru skyld
að hafa talsverðar lyfjabirgðir mátti
alltaf búast við einhveijum fyming-
um, en nú hafa aðstæður breyst."
Landlæknir nefnir í grein sinni
eftirfarandi atriði:
„1. Lvfjagerð er nú hverfandi í
apótekum og er talið að einungis 8
prósent af heildarsölu nái til þessa
hluta. Á hinum Norðurlöndunum er
hlutur þessarar framleiðslu 2-14 pró-
sent. „Extempore" lyf, það er að
segja mixtúrur og önnur lyf sem af-
greidd em samkvæmt sérstökum
fyrirmælum á lyfseðli, ná yfir 1-2
prósent af heildarfjölda afgreiddra
lyfjaávísana. Á fslandi mun hlut-
fallið vera um 2 prósent. Að mestu
leyti em lyfin seld í tilbúnum um-
búðum sem bannað er með lögum
að brjóta. Þar af leiðir að vinna við
framleiðslu og afgreiðslu lyfja í lyfja-
búðum hefur snarminnkað.
2. Samkvæmt lögum þurfa apótek
ekki að „liggja með lager“ eins og
fyrr.
3. Nú geta lyfsalar skilað aftur
birgðum í mánuð eftir fymingu lyfj-
dýr?
anna. Þá fá þeir um 55 prósent af
innkaupsverði fymdra sérlyfja end-
urgreitt. Þessi lyf em yfirleitt send
í endurvinnslu til viðkomandi verk-
smiðju. Fymingar em því að mestu
úr sögunni. Hvað þetta atriði varðar
em því apótekin í mun betri aðstöðu
en aðrar verslanir ef þær sitja uppi
með vörur.
4. Smásöluálagning er mjög há á
íslandi, en víðast hvar í Evrópu er
álagningin frá 28-37 prósent. Versl-
un með lyf er að vísu nokkuð
frábmgðin annarri verslun en gæta
skal að því að sala lyfja hefur aukist
stöðugt í öllum hinum vestræna
heimi á undanfomum árum og er
fsland engin undantekning.
Vissulega erú gerðár meiri kröfur
til útbúnaðar og gæðaeftirlits í apó-
tekum en áður og sjálfsagt er að
greiða þann kostnað. Kanna ber
möguleika á að lækka smásöluá-
lagningu lyfja,“ segir landlæknir.
-RóG.
Hvemig
er verð á
rakblöðum
reiknað út?
Lágt verð í Glasgow og hátt verð í
Reykjavík hefur verið eitt af vinsælli
umfjöllunarefnum fjöhmðla að undan-
fömu. Um daginn benti lesandi einn
á allt að 208% verðmun á Contour
rakvélarblöðum í Glasgow og Reykja-
vík. Til að gefa lesendum frekari
hugmyndir um verðmyndun hérlendis
tökum við sem dæmi í þetta skipti
hvemig verðið á rakvélarblöðunum
er reiknað út:
Heildsalinn kaupir rakvélarblaða-
búntið frá framleiðanda í Englandi á
krónur 65,70, sem er fobverð. Á fob-
verð leggjast flutningsgjöld og trygg-
ing og er þá komið svokaflað cifverð.
Á það leggst síðan 80 prósent tollur,
30 prósent vörugjald, sem leggst á cif-
Nú er kominn nýr lax í verslunina
Kjöt og fisk en í verðkönnun, sem
neytendasíðan gerði á dögunum, var
okkur gefið upp gamalt verð á laxi,
530 krónur. Kaupmaðurinn hringdi í
verð að viðbættum 80 prósent tolli, 1
prósent afgreiðslugjald, hafiiarvöm-
gjald og uppskipun.
Eftir öll þessi gjöld er komið kostn-
aðarverð vörunnar. Á það kemur
síðan heildsöluálagning og annar
kostnaður sem samanstendur af þrem-
ur liðum, þ.e. 3 prósent vöxtum sem
reiknast á kostnaðarverð, 2 prósent
bankakostnaði sem reiknast á fobverð
og akstri.
Að þessu viðbættu er komið heild-
söluverð vörunnar sem er 213 krónur.
Á heildsöluverð leggst síðan smá-
söluálagningin, sem er fijáls, svo og
25 prósent söluskattur og er þá loks
fengið smásöluverð Contour rakvélar-
blaðanna. -RóG.
okkur og tilkynnti að hann væri kom-
inn með glænýjan lax sem hann veiddi
sjálfur og seldi á 295 krónur kílóið.
-RóG.
Nytt brauð
fyrir myglað
„Við keyptum brauð frá Samsöl-
unni á föstudagskvöld, maltbrauð
og franskbrauð, hvort tveggja
greinilega nýtt. Þegar við ætluðum
að horða brauðið á sunnudags-
kvöld vom þau bæði orðin græn
af myglu.
Mig langar til þess að vita af
hveiju svona getur komið fyrir,“
sagði neytandi er hafði samband
við neytendasíðuna.
Við höfðum samband við brauð-
gerð Mjólkursamsölunnar og
Högni Jónsson afgreiðslustjóri
varð fyrir svörum.
„Þetta gerist vegna þess að ein-
hverra hluta vegna kemst myglu-
sveppur í skurðarhnífinn hjá
okkur, án þess að við vitum af
því. Svo fáum við kvartanir og þá
hreinsum við hnífinn sérstaklega
með sterkri spíritusblöndu. Þetta
hefur komið fyrir hjá okkur um
hásumarið, þegar hlýrra er í veðri.
En við erum búnir að komst fyr-
ir þetta núna. Við biðjum við-
skiptavini okkar afeökunar á þeim
óþægindum sem þeir hafa orðið
fyrir og bætum þeim fúslega brauð-
in sem mygluðu hjá þeim. Þeir
þurfa aðeins að koma til okkar í
brauðgerðina í Brautarholt,'1 sagði
Högni.
Hann sagði að þessi skurðar-
hnífur væri daglega hreinsaður
með spíritus en blandan mætti
ekki vera of sterk og því gæti þetta
komið upp.
Þeir sem hafa orðið fyrir a5 íá
myglað brauð gela því farið í
brauðgerðina og fengið nýtt í stað-
inn. -A.BJ.
Nýrlaxí
Kjöti og fiski