Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1986, Page 18
18
MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1986.
Iþróttir
Misskitningur hjá KR-ingunum Willum Þórssyni og Lotti Ólafssyni inni á markteig FH og knötturinn fór beint í fangið á snjöllum markverði FH, Gunnari Straumland.
DV-mynd Brynjar Gauti
Ekki skorað í Krikanum
- jafntefli FH og KR 0-0. Gunnar snjall í marki FH
Bruno
brást
Bretunum
- í hnefaleikunum
„Ég vona að ég hafi ekki
brugðist neinum - Tim Wither-
spoon hefur alla mína virðingu
sem mikill meistari og ég held
hann fari til USA með virðingu
fyrir mér,“ sagði breski hnefa-
leikamaðurinn Frank Bruno
eftir að hann tapaði fyrir WBA-
heimsmeistaranum Tim Wither-
spoon i keppni um heimsmeist
aratitilinn í þungavigt í
hnefaleikum á Wembley í Lund-
únum á laugardag. Dómarinn
stöðvaði leikinn í 11. lotu en þá
var Bruno hjálparlaus í köðlun-
um. Áhorfendur voru 50 þúsund
og talsverð ólæti urðu eftir leik-
inn. 25 voru handteknir. Flestir
höfðu reiknað með sigri Brunos
en það fór á aðra leið. Annað tap
hans í 30 leikjum og eftir leikinn
var hann fluttur á sjúkrahús.
Óttast var að hann væri kjálka-
brotinn.
Leikurinn var lengstum mjög
jafn. Bandaríkjamaðurinn hafði
þó reynst Bruno erfiður í 3. lotu
og í þeirri 11. gerði hann út um
leikinn. 25. sigur hans í röð í 27
leikjum sem atvinnumaður. Nú
er reiknað með að hann keppi
við Spinks, heimsmeistara
WBC-sambandsins, og sambönd-
in, WBA og WBC, verði síðan
sameinuð. „Ég er mjög ánægður
með úrslitin vegna þess að Bruno
er frábær hnefaleikamaður,"
sagði Witherspoon eftir leikinn.
Áhorfendur voru ekki eins án-
ægðir. Þeir höfðu reiknað með
að Bretar myndu eignast sinn
fyrsta heimsmeistara í þungaviet
á þessari öld. hsím
Bættu
sigá
HM í Aþenu
- en það dugði skammt
Steinn Jóhannsson, KR, náði
sínum langbesta árangri í 800 m
hlaupi á HM unglinga, sem nú
stendur yfir í Aþenu. Hann hljóp
á 1:56,72 mfn. í undanrásum en
varð þó ekki nema í 49. sæti af
53 keppendum hvað tíma snertir.
Keppendur á þessu fyrsta heims-
meistaramóti unglinga í frjálsum
íþróttum eru 1040. Aldurstak-
mark 19 ára eða yngri.
Guðrún Amardóttir, Breiða-
bliki, hljóp 100 m á 12,61 sek. í
undanrás og féll þar úr. Hennar
besti timi á vegalengdinni. Þá
stökk Guðbjörg Svansdóttir, ÍR,
l, 65 m í hástökki. Jafnaði sinn
besta árangur en til að komast í
úrslit þurftu keppendur að
stökkva 1,72 m.
Mjög góður árangur náðist í
mörgum greinum á mótinu.
Vladinih' Sasimovic, Sovétríkj-
unum, setti heimsmet unglinga
með nýja spjótinu. Kastaði 78,84
m. Eldra metið átti Gavin Love-
grove, Nýja-Sjálandi, 76,68 m.
Sasimovic er 18 ára og keppti á
sínu fyrsta alþjóðamóti. Miles
Murphy, Ástralíu, sigraði í 400 m
hlaupi á 45,64 sek. Roberto Hem-
andez, Kúbu, annar á 45,65 sek.
og Edgar Itt, V-Þýskalandi,
þriðji á 45,72 sek. Stórkostlegt
hlaup. Dietmar Haaf, V-Þýska-
landi, varð heimsmeistari í
langstökki, stökk 7,93 m. Emilio
Valle, Kúbu, í 400 m grinda-
hlaupi á 50,02 sek. og Karen
Scholz, A-Þýskalandi í hástökki
stúlkna, stökk 1,92 m. hsím
FH og KR gerðu markalaust jafh-
tefli í 1. deild í miklum baráttuleik á
Kaplakrikavelli á laugardag. Bæði
liðin þurftu svo sannarlega á stigunum
að halda og því var ekkert gefið eftir.
Vamir beggja liða vom sterkar en
minna fór fyrir sóknarleiknum. Hart
var barist á miðjunni og bar því leikur-
inn lengst af sannkallað miðjuþóf.
FH-ingar vom frískari framan af
leiknum en þeim tókst samt ekki að
ná yfirhendinni eða að skapa sér
marktækifæri. Næst vom þeir að
skora strax á 3. mínútu leiksins þegar
Kristján Gíslason komst inn í vítateig
KR-inga en þeim tókst að bjarga í
hom. KR-ingar komu svo meira inn í
leikinn og jafnræði var með liðunum
á miðjunni þar sem langmestur hluti
leiksins fór fram.
KR-ingar byijuðu síðari hálfleik af
„Ég hélt mig vera búinn að missa
knöttinn í vítateignum eftir sending-
una frá Klemenzi Sæmundssyni en
svo var þó ekki,“ sagði Guðjón Guð-
mundsson, fyrirliði Víðis, í leiknum
við ÍA á fóstudagskvöldið. „Knöttur-
inn skoppaði á milli fóta varnar-
manns IA, ég náði honum aftur og
skaut umsvifalaust og mér lánaðist
að koma honum í netið." Með þessu
marki jafnaði Guðjón fyrir Víði, 2:2,
og náði í eitt stig sem getur reynst
félagi hans dýrmætt í fallbaráttunni,
eftir að Skagamenn höfðu náð
tveggja marka forustu en staðan var
0:1 í hálfleik. Fyrir ÍA getur mark
Guðjóns haft örlagaríkar afleiðing-
ar. Möguleikarnir á íslandsmeistar-
atitlinum minnkuðu stórlega við
þessi úrslit þótt þeir séu ekki endan-
lega úr sögunni. Óneitanlega hefði
verið betra að fá öll stigin þrjú en
Skagamenn voru ef til vill orðnir
fullöruggir um sigur þegar Víðis-
menn tóku loks við sér í s.h. eftir
fremur ósamstilltan leik og því fór
sem fór.
Víðismenn léku undan suðaustan-
kaldanum og sóttu mun meira en
gestirnir fyrsta stundarfjórðunginn
án þess að ijúfa nokkru sinni varn-
armúr ÍA, sem svaraði með hrað-
sóknaraðgerðum. Víðismenn áttu
fullt í fangi með að stöðva fótfráa
Skagamenn og urðu reyndar að grípa
til óvndisúrræðis Ofr brorrAn íWi fi-rir
miklum krafti og Gunnar, markvörður
FH, varð að taka á honum stóra sínum
þegar hann varði hörkuskot Þorsteins
Halldórssonar. Skömmu síðar fengu
KR-ingar besta færi leiksins þegar
Júlíus Þorfinnsson komst einn inn
fyrir vöm FH, Gunnar bjargaði vel
með úthlaupi en boltinn rann út á
Þorstein sem skaut á markið en Gunn-
ar varði aftur.
Hinum megin á vellinum var KR-
vömin geysilega sterk með Loft
Ólafsson og Ágúst Má Jónsson sem
bestu menn og FH-ingar komust lítið
áleiðis. Leiknum lauk því með marka-
lausu jafhtefli sem verða að teljast
sanngjöm úrslit þrátt fyrir að KR-
ingar hafi verið örlítið nær því að sigra
í seinni hálfleik.
Bæði liðin era nú í neðri hluta fyrstu
deildar og komu með því hugarfari að
Sveinbjöm Hákonarson á leið hans
að marki, innan vítateigs. Ágætur
dómari leiksins, Bragi Bergmann,
dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu sem
Guðjón Þórðarson, sá langreyndi
kappi, átti ekki í neinum vandræðum
með að skora úr, 0:1, og rúmlega 17
mín. liðnar af leik.
Markið setti heimamenn alveg úr
jafnvægi fram að hléi. Leikmenn
gerðu hverja skyssuna á fætur ann-
arri sem hefðu getað kostað mörk
ef Skagamenn hefðu verið nógu fljót-
ir að átta sig á hlutunum. Aðeins
einu sinni áttu heimamenn mark-
tækifæri. Guðjón Guðmundsson
skallaði rétt yfir þverslá eftir auka-
spyrnu frá Grétari Einarssyni.
Skagamenn léku hins vegar af nokk-
urri yfirvegun, nýttu breiddina vel
en tókst ekki að reka endahnútinn
á tilraunir sínar, skotin fóru víðs
fjarri Víðismarkinu. Næst komust
þeir markmiði sínu á 30. mín. þegar
Júlíus Ingólfsson þramaði yfir
þverslá rétt innan vítateigslínu.
Ekki blés byrlega fyrir heima-
mönnum í byrjun seinni hálfleiks.
Eftir aðeins fimm mín. sendi Ámi
Sveinsson knöttinn úr aukaspymu
inn í vítateig Víðis þar sem Sigurður
Lárasson lyfti sér eins og stökk-
hvalur upp, sneri sér snarlega í
hálfhring og skallaði knöttinn í
markið, fram hjá Gísla Heiðarssyni
movVvprrSi fóVlr Píicnim VÖYTWTTl
tapa ekki leiknum. Léku bæði varlega
og treystu fyrst og fremst á vömina.
Hjá FH átti Gunnar markmaður
mjög góðan leik og hélt FH markinu
hreinu í fyrsta sinn í sumar. Viðar
Halldórsson og Magnús Pálsson léku
vel í vöminni og Kristján Gíslason
átti góða spretti á miðjunni.
KR-ingar era ekki eins sterkir og
útlit var fyrir í byrjun mótsins. Liðið
berst vel en leikur ekki mjög skemmti-
lega knattspymu. Ágúst Már, Loftur
Ólafsson og Júlíus Þorfinnsson vora
bestu menn liðsins að þessu sinni og
einnig átti Willum Þórsson ágætan
leik.
Lið FH: Gunnar Straumland, Viðar
Halldórsson, Magnús Pálsson, Ólafur
Jóhannesson, Henning Henningsson,
Guðmundur Hilmarsson, Ingi Bjöm
Albertsson, Kristján Gíslason, Ólafur
við komið, 0:2. Þar með voru öftustu
varnarmenn ÍA búnir að skora bæði
mörkin.
Líklega hefur það verið skekkja
hjá Skagamönnum að hægja ferðina
eftir seinna markið og draga sig held-
ur í vörn í stað þess að halda
uppteknum hætti og gefa hvergi eft-
ir. Mark Duffield og Guðjón náðu
völdum á miðjunni og Víðismenn
vora búnir að átta sig á því að ekk-
ert þýddi annað en að hjóla í
Skagamennina, eins og sagt er á
knattspymumáli, og fylgja sóknar-
aðgerðum fast eftir. Á 67. mín. bar
það árangur, Knötturinn barst inn í
vítateig IA þar sem Guðjón Guð-
mundsson átti skot í vamarmann og
síðan mátti ætla að um sérstaka
skotæfingu væri að ræða. Hver
heimamaðurinn á fætur öðrum
spyrnti en ávallt var einhver Skaga-
maður til vamar uns Grétari Einars-
syni tókst að skora, 1:2.
Skagamenn reyndu að láta þetta
óvænta mark ekkert á sig fá, dreifðu
spilinu og fóru sér hægt en sá fítons-
kraftur sem kom í Víðismenn olli því
að ÍA missti tök á leiknum. Á 70.
mín. jafnaði Guðjón, eins og í upp-
hafi var sagt. Vilberg Þorvaldsson
átti svo undir lokin gullið tækifæri
á að jafna þegar hann komst einn inn
fyrir vömina - en hann átti Birki
Kristinsson markvörð eftir og það
dugði S'
Hafsteinsson (Hörður Magnússon 67.
mín.), Pálmi Jónsson, Kristján Hilm-
arsson (Hlynur Eiríksson 75. mín.)
Lið KR: Sævar Bjamason, Loftur Ól-
afeson, Ágúst Már Jónsson, Jósteinn
Einarsson, Gunnar Gíslason, Willum
Þórsson, Guðmundur Magnússon,
Snæbjöm Guðmundsson, Þorsteinn
Halldórsson, Júlíus Þorfinnsson, Ás-
bjöm Bjömsson.
Gul spjöld: Ólafúr Jóhannesson, Ingi
Bjöm Albertsson, Viðar Halldórsson,
allir úr FH.
Dómari var Baldur Scheving og
dæmdi hann leikinn illa. Á köflum
sáust afar undarlegir dómar.
Línuverðir vora Hjálmar Baldursson
og Guðmundur Sigurðsson.
Áhorfendur: 420
Maður leiksins: Gunnar Straumland,
FH
úthlaupi varði hann gífurlega fast
skot Vilbergs sem tryggði jafntefli í
leiknum.
Bestu menn í Víðisliðinu voru
Björn Vilhelmsson, Guðjón Guð-
mundsson og Mark Duffield. Gísli
Heiðarsson átti mjög traustan leik í
markinu.
Af Skagamönnum vakti Heimir
Guðmundsson bakvörður mesta at-
hygli. Fljótur, sparkviss og með gott
auga fyrir spili. Árni Sveinsson er
ávallt hættulegur en annars var liðið
mjög jafnt þótt eldri kempurnar, eins
og Guðjón Þórðarson og Sigurður
Lárasson, sýndu að reynslan hefur
sitt að segja.
Áhorfendur 471.
Maður leiksins, Guðjón Guðmunds-
son, Víði.
Lið Víðis: Gísli Heiðarsson, Klemenz
Sæmundsson, Vilhjálmur Einarsson,
Ólafur Róbertsson, Daníel Einars-
son, Guðjón Guðmundsson, Vilberg
Þorvaldsson, Grétar Einarsson,
Helgi Bentsson, Mark Duffield,
Björn Vilhelmsson. Varamaður fyrir
Klemenz, Hlíðar Sæmundsson í s.h.
Lið ÍA: Birkir Kristinsson, Sigurður
Lárasson, Guðjón Þórðarson, Heim-
ir Guðmundsson, Guðbjörn Tryggva-
son, Ólafur Þórðarson, Árni
Sveinsson, Sveinbjörn Hákonarson,
Sigurður B. Jónsson, Valgeir Barða-
son. Varamaður í s.h. Hörður
Jóhannesson fyrir Valgeir Barðason.
Fmm
Víðismenn að mjaka sér
af hættusvæði 1. deildar?
- tvö mörk með skömmu millibili í síðari háifleik og Víðir náðu jöfhu gegn ÍA