Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1986, Qupperneq 21
MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1986.
21
Iþróttir
Vissi að ég gæti þetta
kk
fj
- sagði Greg Norman eftir sigurinn á British Open. Norman fékk 5,3 milljónir fyrir sigurinn
„Á fjórðu holunni fékk ég á tilfmninguna að þetta væri búið og ég hefði
lokað hurðinni á keppinauta mína. Sigurinn væri minn. Þessi sigur kom
mér á óvart þrátt fyrir að ég vissi innst inni að ég gæti sigrað. Ég var ákveð-
að láta þennan erfiða völl ekki sigra mig í dag. Eg var mjög tauga-
óstyrkur fyrir síðasta daginn og spennan hélst alveg til lokaholunnar,“ sagði
Ástralíumaðurinn Greg Norman, 30 ára, en í gær tryggði hann sér sigur á
einu stærsta golfmóti atvinnukylfinga, British Open. Þetta var 115. British
Open mótið sem haldið er og fyrsti „alvörusigurinn" hjá Norman á golf-
mótum atvinrumanna.
hann um 5,3 milljónir króna í vasann
en fyrir mótið var hann langtekju-
hæsti atvinnumaðurinn í golfi í
keppninni í Bandaríkjunum. Norman
lék lokahringinn í gær á 69 höggum.
• Gordon Brand eldri hafhaði í öðru
sæti á mótinu, lék í gær á 71 höggi
og samtals. á fimm höggum lakara
skori en Norman samtals eða 285
höggum. Honum gekk mjög illa á fyrri
níu í gær, lék þær á 39 höggum. Síð-
ari níu lék hann hins vegar á aðeins
32 höggum og kom inn á 71 höggi,
einu yfir pari vallarins.
Norman hefur verið í góðu formi á
síðustu mótum og margir áttu von á
því að hann yrði sigurvegari á Brit-
ish Open. Segja má að hann hafi
tryggt sér sigurinn á öðrum keppnis-
deginum en þá jafnaði hann vallar-
metið á hinum erfiða velli í
Tumberry í Skotlandi og lék 18 hol-
umar á aðeins 63 höggum. Eftir
fyrsta daginn var Norman í þriðja
sæti en eftir annan daginn hafði hann
tekið forystrma og hélt henni til loka
keppninnar. Samtals lék hann á 280
höggum eða pari vallarins.
„Gleymið þessu strákar"
„Eftir að mér tókst að ná 4. holunni
á höggi undir pari, eftir að hafa lent
í sandtorfærunni og slegið kúluna í
stöngina, hugsaði ég sem svo: Gleymið
þessu strákar, ég spila of vel. Þá jókst
sjálfstraustið mjög. Það var síðan stór-
kostleg tilfinning að ganga eftir 18.
brautinni í dag þegar sigurinn var í
höfh. Ég sagði við kylfusvein minn að
við skyldum ganga hægt og rólega,"
sagði Norman eftir. sigurinn í gær.
Norman var á 211 höggum fyrir síð-
asta keppnisdaginn og átti þá eitt högg
á Japanann Tommy Nakajima en ef
hann hefði sigrað á mótinu hefði hann
orðið fyrsti Japaninn sem það hefði
afrekað. Taugar Japanans fóru hins
vegar fjandang til í gær og hann hafn-
aði í lokin í 8. sæti á 289 höggum, lék
á 77 höggum í gær.
5,3 milljónum ríkari eftir sigur-
inn
Greg Norman þarf ekki að hafa
miklar áhyggjur af fjánnálunum þessa
dagana. Fyrir sigurinn i gær fékk
•Greg Norman frá Ástraliu sigraði örugglega á British Open.
Fyrir sigurinn fékk Ástralíumaðurinn þrítugi um 5,3 milljónir
króna.
Langer eignaðist stúlku
Vestur-Þjóðverjinn Bemhard Lan-
ger hafnaði í 3.-4. sæti á 286 höggum.
Hann mun örugglega muna lengi eftir
móti þessu þvi á laugardag ól eigin-
kona hans honum meybam. Langer
hefur náð fráhærum árangri á British
Open á undanfömum fimm árum, tvi-
svar hafnað í öðru sæti og tvisvar í
því þriðja. Walesbúinn Ian Woosman,
sem hafði forystuna eftir fyrsta dag
keppninnar, lék einnig á 286 höggum.
Hvor um sig fékk rúmar 2 milljónir
króna í sinn hlut.
•Völlurinn í Tumberry er mjög erfiður. Þessi mynd er frá teignum á 9. holu
valiarins og greinilegt að ekkert má út af bera ef ekki á illa að fara.
aðist út í allt og alla. Völlinn taldi
hann ómögulegan og stjómendur
keppninnar fengu sinn skammt af
skömmum. Eftir að hafa leikið völlinn
í Tumberry á 64 höggum í gær sagði
Ballesteros hrosandi: „Völlurinn var
betri í dag.“ Hann halhaði í 6.-7. sæti
á 288 höggum, átta höggum yfir pari ^ _
vallarins.
Mjög erfiður völlur
Golfvöllurinn í Tumberry þykir
mjög erfiður. Enginn skógur er á vell-
inum, allar brautir mjög þröngar og
„röfifin" mjög erfið. Völlurinn er fljótur
að refea þeim kylfingum sem slá illa
og minnstu mistök geta haft vægast
sagt alvarlegar afleiðingar í för með
sér fyrir viðkomandi keppanda. Það
em ekki nema bestu kylfingar heims-
ins sem ná því að leika vél á þessum
fræga golfvelli en síðast var British
Open mótið haldið þar árið 1977. Þá
sigraði Bandaríkjamaðurinn Tom
Watson. Hann lék á 296 höggum um
helgina og var aftarlega á merinni.
Ballesteros fór á kostum Röð efstu manna
Eftir fremur slaka spilamennsku , Lokasteða hjá efstumönnum varð þessi:
fyrstu þrja dagana for Spanver^mn ......................74-63-74-69 = 280 högg
Severiano Ballesteros heldur betur í 2. Gordon Brand sr.,Bretlandi
gang í gær, á síðasta degi mótsins. ................••■•....7,VÍ?ú75r71 = 285 “
Hann sýndu þá sínar frægustu hliðar, = 286-
púttaði kúlunni einu sinni í holuna a VÍan Woösman. Bretl.
af 13 og 12 metra færi og tvívegis af ......................70-74-70-72 = 286-
sjö metra færi. Inn kom þessi heims- o.NickFaldo Bretl 71-70-76-70 = 287-
frægi kylfingur a 64 hoggum, emu ....................76-75-73-64 = 288-
höggi frá vallarmetinu sem Greg Nor- 6.-7. Gary Koch, USA .73-72-72-71 = 288-
man jafnaði á öðrum degi mótsins. 8.-10. Fuzzy Zöller. USA
Ballesteros var mjog reiður eftir þnðja g 1Q B Marchbank> Bretl.
dag keppninnar og reifet þa og skamm- ......................78-70-72-69 = 289 -
• Bernhard Langer V-þýskalandi, til
vinstri, varð pabbi á laugardag og
hafnaði í 3.-4. sæti á 286 höggum.
Nick Faldo Bretiandi, til hægri, hafn-
aði i 5. sæti á 287 höggum.
8.-10. Tommy Nakajima, Japan
...................74-67-71-77 = 289-
Röð þekktra kylfmga í hinum ýmsu sæt-
um:
14. Curtis Strange, USA.......291 stig
16. Anders Forsbrand, Sviþjóð...292 -
16. Raymond Floyd, USA..........292 -
20. Ben Crenshaw, USA............294 -
30. Sandy Ly le, Bretl...........295 -
35. Tom Watson, USA..............296 -
35. Gary Player, S-Affíka........296—
43. Mark OMeara, USA.............297 -
46. Jack Nicklaus, USA...........298 -
59. Lee Trevino, USA.............301 -
-SK.
STORUTSALA AVERKFÆRUM
Ld. skröll, þvingur, hjöruliðir, framtengingar,
meitlar, flautur, hosuklemmur í 50 stk., pakkn-
ingum, tangir, ýmsar gerðir, borar, allar
stærðir, topplyklasett, lausir toppar, breytinga-
stykki fyrir toppa og margt fleira.
gegn staðgreiðslu
Skeifunni 2
FJÖÐRIN. 82944
Púströraverkstæói
Heildsala
Smásala.