Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1986, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1986.
23
Iþróttir
Fjörugur síðari hálfleikur
er Þór vann ÍBV í Eyjum
- Nóalausir Þórsarar sigraðu Eyjamenn, 1-2, og innbyrtu þrjú stig
Gísli Valtýssan, DV, Vestmannaeyjum;
Staða ÍBV á botni 1. deildar fer að
verða vonlítil og ekki lagaðist hún
eftir ósigurinn gegn Þór frá Akureyri
á laugardag. Þórsarar fóru írá Eyjum
með öll stigin þrjú, lokatölur 1-2 og
staðan í leikhléi 1-1.
Þórsarar fengu óskabyrjun í leikn-
um. Eftir aðeins tuttugu mínútna leik
skoraði Hlynur Birgisson eftir góða
sendingu frá Jónasi Róbertssyni.
Skömmu síðar munaði minnstu að
Ómari Jóhannssyni tækist að jafna
metin en mjög fast skot hans fór rétt
fram hjá marki Þórs.
Jafnað á markamínútunni
Það var svo á markamínútunni
frægu, 43. mínútu fyrri hálfleiks, að
heimamenn jöfiiuðu leikinn. Elías
Friðriksson gaf þá góða sendingu á
Berg Ágústsson sem staddur var í
markteig Þórsara og þaðan skoraði
hann með góðu skoti.
Síðari hálfleikur var aðeins tíu mín-
útna gamall þegar Þórsarar náðu
forystunni á nýjan leik. Ámi Stefáns-
son skoraði sigurmark leiksins með
góðum skalla eftir snjalla fiTÍrgjöf
Jónasar Róbertssonar sem einnig var
framkvæmd með skalla. Fallegt mark
og eftir að það var skorað lifnaði held-
ur betur yfir leikmönnum beggja liða
og var sótt á víxl. Upp hófst nú besti
kafli leiksins. Eyjamenn sóttu nokkuð
stíft, einu sinni skall knötturinn í
stönginni á marki Þórs eftir hom-
spymu Eyjamanna og Þórður Hall-
grímsson bjargaði skoti Jónasar
Róbertssonar á marklínu en mark-
vörðurinn var ekki í markinu.
Sókn Þórsara mun beittari
Mun meiri broddur var í sóknarleik
Þórsara í þessum leik og framheijar
liðsins oft hættulegir upp við mark
heimamanna. Ekki verður það sama
sagt um framlínumenn Eyjamanna
sem virkuðu í daufara lagi og ekki
nægilega ákveðnir. Greinilegt er að
Sighvatur Bjamason styrkir liðið mik-
ið en vafasamt er að það nægi liðinu
Fjörteikur
á ísafirði
- ÍBÍ - Víkingur 3-3
Það var fjörleikur á ísafirði þegar
Isfirðingar léku við Víking í 2. deild-
inni á laugardag. Jafhtefli, 3-3, þar
sem Víkingar jöfnuðu á lokamínútu
leiksins. Spenna mikil allan leikinn
og leikurinn sá besti sem háður hefur
verið á ísafirði í sumar. Margir áhorf-
endur skemmtu sér hið besta en
nokkur vonbrigði að heimamönnum
tókst ekki að hljóta stigin þrjú. Þeir
urðu að sætta sig við sjötta jafhteflið
í annarri deildinni í sumar.
fsfirðingar vom betra liðið í fyrri
hálfleiknum en tókst þó ekki að skora
nema eitt mark. Þar var Benedikt Ein-
arsson að verki. Heimamenn heldur
óheppnir í hálfleiknum. Áttu bæði
skot í stöng og þverslá marks Víkinga.
I síðari hálfleiknum vom Víkingar
meira með boltann og ívið betri. Jó-
hann Holton jafnaði í 1-1. Ólafur
Petersen náði fomstu á ný fyrir fs-
firðinga en Andri Marteinsson jafnaði.
Rúnar Guðmundsson skoraði þriðja
mark heimamanna en rétt fyrir lokin
tókst Elíasi Guðmundssyni að jafha í
3-3 fyrir Reykjavíkurliðið. Jafhtefli
þar sem sex mörk vom skomð í þess-
\irn olrpmmHlno-o Inilr
til áframhaldandi vem í 1. deild. Fyrir
bæ eins og Vestmannaeyjar er knatt-
spymulið bæjarans stolt bæjarbúa og
þegar illa gengur er það jafnan mikið
áfall. Sumum finnst meira að segja
ekki eins gott að búa í Eyjum þegar
knattspymuliðinu gengur illa.
Liðin: fBV. Þorsteinn Gunnarsson,
Viðar Elíasson, Þórður Hallgrímsson,
Jón Bragi Amarsson, Jón Atli Gunn-
arssonfKári Þorleifsson), Elías Frið-
riksson, Ómar Jóhannsson, Jóhann
Georgsson, Sighvatur Bjamason, Ingi
Sigurðsson og Bergur Agústsson.
Þór. Baldvin Guðmundsson, Sigur-
bjöm Viðarsson, Ámi Stefánsson,
Einar Arason, Júlíus Tryggvason,
Kristján Kristjánsson, Halldór
Áskelsson, Jónas Róbertsson, Siguróli
Kristjánsson, Hlynur Birgisson, Bald-
ur Guðnason. Þess má geta að Nói
Bjömsson, fyrirliði Þórs, var í leik-
banni og lék ekki með í liðinu í Eyjum.
• Leikinn dæmdi Kjartan Ólafeson
og var hann slakur. Gul spjöld fengu
þeir Ómar Jóhannsson og Jóhann
Georgsson, fBV, og Þórsarinn Sigu-
róli Kristjánsson.
Maður leiksins: Jónas Róbertsson,
Þór. -SK.
•Jónas Róbertsson átti mjög góð-
an leik með Þórsurum í Eyjum og
var maðurinn á bak við sigur liðsins.
TVö rauð spjöld og fjögur
gul þegar KA sigraði KS
- Tvyggvi Gunnarsson skoraði þrennu í 3-1 sigri KA í 2. deild
Stefin Amaldssan, DV, Akoreyit
Stefán Amaldsson, DV, Akureyri:
KA hlaut þrjú dýrmæt stig í 2. deild
gegn KS á föstudagskvöld og það var
„markavélin" Tryggvi Gunnarsson
sem tiyggði KA sigur með þremur
mörkum í síðari hálfleiknum eftir að
KS hafði verið betra liðið framan af.
Lokatölur 3-1 og í síðari hálfleiknum
hitnaði heldur betur í kolunum. Tveir
leikmenn Siglufjarðar vom reknir af
velli, og geta aðeins sjálfum sér um
kennt, og fjórir leikmenn voru bókað-
ir.
Þetta var ekki fallegur leikur en
barátta mikil. Fyrri hálfleikurinn
beinlínis slakur og Siglfirðingar þá
beittari. KA fékk þá aðeins eitt færi,
Hinrik Þórhallsson skallaði yfir. Sigl-
firðingar áttu betri skot og færi. Jón
Kr. Gíslason spymti knettinum í hlið-
amet KA eftir skyndisókn, Ámi
Freysteinsson bjargaði á marklínu KA
eftir homspymu Óla Agnarssonar og
um miðjan hálfleikinn sendi Hafþór
Kolbeinsson knöttinn yfir mark KA
inn á markteig.
Hins vegar tókst Hafþóri að skora á
27. mín. Siglfirðingar fengu auka-
spymu. Spymt fast inn í teiginn. Torfi
Halldórsson, markvörður KA, varði
en hélt ekki knettinum, sem hrökk til
Hafþórs. Hann skoraði af stuttu færi.
Tvö rauð spjöld
KA fékk fyrsta færið í síðari hálf-
leik. Hinrik skallaði knöttinn í þverslá
eftir góðan undirbúning Friðfinns
Hermannssonar, sem var langbesti
leikmaður KA í leiknum. Sókndjarfur
bakvörður. Á 54. mín. var brotið á
Hafþóri og dæmd aukaspyma á KA.
Þegar Hafþór ætlaði að taka spymuna
var Stefán Ólafsson fyrir og Hafþór
gerði sér þá lítið fyrir og kastaði hon-
um í völlinn. Ekkert annað að gera
fyrir dómara leiksins, Ólaf Sveinsson,
en reka Hafþór af velli. Það var mikið
áfall fyrir Siglfirðinga. KA sótti miklu
meira eftir þetta atvik, sem gefur
augaleið - einum og síðan tveimur
leikmönnum fleiri.
Á 63. mín. komst Tryggvi Gunnars-
son í dauðafæri inn á markteig en
spymti framhjá. Sjaldgæft að sjá slíkt
hjá honum. Aðeins tveimur mín. síðar
jafhaði hann í 1-1. Skallaði í mark af
stuttu færi en mestan heiður af mark-
inu átti Friðfinnur. Mínútu síðar var
Tryggvi enn í færi. Lélegt skot hans
fór framhjá og á 71. mín. munaði ekki
miklu að Siglfirðingar næðu forustu.
Colin Tacher, besti maður KS, átti
skalla í þverslá. Hinum megin átti
Bjami Jónsson skot í þverslá marks
Siglfirðinga.
Á 79. mín. var Jakob Kárasyni vikið
af velli fyrir nöldur. Hann hafði áður:
verið bókaður og einnig hafði dómar-
inn bókað KA-mennina Erling Kristj-
ánsson og Tryggva.
Eftirleikurinn var auðveldur hjá KA
- tveimur fleiri. Á 82. mín. skoraði
Tryggvi eftir undirbúning Hinriks og
á 85. mín. var dæmd vítaspyma á
Bjöm Sveinsson, KS, sem Tryggvi
skoraði úr. Þriðja mark hans í leiknum
og hann hefur nú skorað 17 mörk í
deildinni á leiktímabilinu. Áhorfendur
604.
hsím
GÓÐIR
75%&8J0%
Nú býður Samvinnubankinn tvo
nýja og glæsilega kosti:
★ Verðtryggðan reikning, bundinn
í 18 mánuði. Vextir eru 7,5%
umfram verðbætur.
★ Verðtryggðan reikning, bundinn
í 24 mánuði. Vextir eru 8,0%
umfram verðbætur.
Ávöxtun
sem breytir öllu dæminu.
SAMVINNUBANKI ISLANDS HF.