Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1987, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987.
19
dv Tíöarandi
Égfæ
mikla útrás
í sóngnum
- segír Ólöf Magnúsdóttir
Ólöf Magnúsdóttir sópransöngkona hefur sungið í kórum frá barnsaldri
og hefur ekki i hyggju að láta af því. DV-mynd KAE
„Það gefur mér óskaplega mikið
að syngja í kór. Stundum mæti ég
þreytt og uppgefm á æfingu, hef
jafnvel ekki náð því að komast
heim úr vinnunni áður en ég mæti.
En þegar æfingunni er lokið er ég
orðin afþreytt, afslöppuð og fín,“
sagði Ólöf Magnúsdóttir, félagi og
stjómarmaður í Pólýfónkórnum.
„Á æfingunum fáum við mikla
útrás því að við verðum að gefa
okkur öll í sönginn. En við fáum
líka mikið í staðinn. Á hverri æf-
ingu lærum við eittþvað nýtt.
Ingólfur Guðbrandsson er góður
stjórnandi og miðlar okkur af
þekkingu sinni á hverri æfingu,
spilar fyrir okkur plötu eða segir
frá söngvurum, kórum, hljómsveit-
um eða borgum. Þannig að þó að
Ingólfur krefjist þess að við gefum
allt okkar í sönginn þá komum við
alltaf ánægð heim.“
Pólýfónkórinn er þrjátíu ára um
þessar mundir. Ingólfur Guð-
brandsson var stofnandi kórsins
og hefur stjórnað honum frá upp-
hafi. í tilefni afmæhsins flutti
kórinn Messías eftir Handel síðast-
liðinn laugardag og í apríl eru
fyrirhugaðir glæsilegir afmæhs-
tónleikar. í Pólýfónkórnum eru um
hundrað manns.
„Tónleikarnir á laugardaginn
tókust stórkostlega. Hallgríms-
kirkjan var troðfull og ég held
örugglega að alhr hafi farið ánægð-
ir heim. En nú er frí hjá okkur þar
til 20. janúar en þá förum við að
æfa af kappi fyrir afmæUstónleik-
ana í apríl. Á þeim tónleikum
munum við flyfja valda kafla úr
Carmina Burana, Forleikinn að
Meistarasöngvurunum, Magnific-
-ant eftir Bach, Fangakór Verdis og
Stapat Mater eftir Rossini. Við ætl-
um að fá fimmtíu aukasöngvara til
Uðs við okkur fyrir þessa tónleika
og Sinfóníuhljómsveitin mun leika
undir.
Það er geysilegur áhugi á þessúm
tónleikum hjá okkur og mikiU hug-
ur í kórfélögum."
- Fer ekki mikill tími í æfingar
hjá ykkur?
„Við æfum tvisvar í viku. Radd-
æfingarnar eru á mánudögum og
þriðjudögum en á miðvikudögum
er samæfmg. Æfingamar standa
yfirleitt yfir frá klukkan 20-22:30
en þegar nær dregur hljómleikum
æfum við Uka á laugardags- og
sunnudagseftirmiðdögum. Og síð-
ustu vikurnar fyrir hljómleika er
svo nánast æft á hveiju kvöldi."
- Kemur þetta þá ekki niður á
fjölskyldulífi?
„Auðvitað gerir þetta það að
vissu leyti en ég held að fjölskyldur
allra kórfélaganna sýni kórnum
mikinn skilning og hjálpi til að láta
þetta allt ganga. Maðurinn minn til
dæmis sér um öll húsverkin og
heimiUsstörfm þau kvöld og þá
daga sem ég er á æfingum. Það bíð-
ur ekkert uppvask eftir mér eða
neitt þannig þegar ég kem heim.
Enda skilur hann hvað körstarfið
er mér mikUs virði og það saiya
held ég sé að segja um fjölskyldur
annarra kórfélaga."
- Hefurðu aUtaf haft mikinn
áhuga á kórsöng?
„Já, ég held ég hafi drukkið í mig
áhugann með móðurmjólkinni.
Bæði pabbi og mamma voru söng-
fólk og pabbi söng mikið í kórum.
Sjálf fór ég að syngja í skólakór
strax í barnaskóla. Síðar fór ég að
syngja með Dómkómum og svo
kom Pólýfón. Ég get alls ekki sleppt
því að vera í kór og. mun áreiðan-
lega halda því áfram á meðan
röddin leyfir.
Ég held að þetta eigi við um flesta
kórfélagana því að mæting á æfing-
ar er einstaklega góð. Menn mæta
jafnvel þó þeir séu með hita og
hálsbólgu bara til að fylgjast með.
Enda er fólk í kórnum til að ná
árangri. Pólýfónkórinn hefur feng-
ið þannig stimpil á sig að það er
viss upphefð að vera í honum en
til að halda standardinum verða
menn líka að leggja á sig,“ sagði
Ólöf Magnúsdóttir.
-ATA
VEIÐIMANNSINS
Við eigum alit sem veiðimanninn vantar
Veiðivesti....
Veiðipeysur,
Veiðijakkar..
Veiðihjól...
Veiðistangir
Vöðlur.......
Veiðitöskur.
.frákr. 1.790,-
.frá kr. 1.990,-
.frá kr. 5.250,-
...frá kr. 970,-
frá kr. 790,-
.frákr. 2.930,-
,frá kr. 790,-
Flugubox..............frá kr. 150,-
Sjónaukar.............frá kr. 2.990,-
og margt margt fleira.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm Verslunin
Allur
eiÖivi
Veiðibúnaður fyrir kröfuharða veiðimenn. Langholtsvegi 111
S. 687090.
úrvaii: Flugvélar, bílar, mótorhjól, bátar, geimför, lestirog hús í öllum
mögulegum gerðum og stærðum. Póstsendum um land allt
'LZPJJMDfíHÚi
vegi 164
simi
21901,
^REELANCE