Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1992, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1992, Blaðsíða 26
38 MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1992. Til hjálpar öldruðum sjúkum Nýbyggt hjúkrunarheimili, Eir, við Gagnveg - . sjálfseignarstofnun sem tvö sveitarfélög og fimm samtök standa að.“ Það var á almennum félagsfundi þann 11. nóvember 1990 að staðfest var samþykkt stjómar Verslunar- mannafélags Reykjavíkur um að taka þátt í að byggja Hjúkrunar- heimúið Eir. Kannanir sýna að um það bil sjö af hundraði þeirra sem náð hafa 70 ára aldri þurfa á að halda sér- stakri aðstoð, umönnun og hjúkr- un. Samkvæmt því væri hægt að gera ráð fyrir að u.þ.b. 35 félagar Verslunarmannafélags Reykjavík- ur þyrftu slíka þjónustu nú þar sem 70 ára og eldri félagsmenn eru nú u.þ.b. 500 talsins og ljóst að þörfin fyrir hjúkmnarheimili mun fara vaxandi vegna hækkandi lífaldurs fólks. Verslunarmannafélag Reykjavíkur mun leggja fram 10% af byggingarkostnaðinum og fá til ráðstöfunar 10-12 rými á heimilinu fyrir félaga sína sem þurfa á hjúkr- un sem þessari að halda. Hjúkrunarheimilið Eir er sjálfs- eignarstofnun sem tvö sveitarfélög og fimm samtök standa að. Auk Verslunarmannafélags Reykjavík- ur eru það Reykjavíkurborg, Sel- tjamameskaupstaöur, Félag að- standenda alzheimersjúklinga, Samtök bhndra og bhndravina, Sjálfseignarstofnunin Skjól og Sjó- mannadagurinn í Reykjavík og Hafnarfirði. Athyglisverðar nýjungar Á Hjúkrunarheimihnu Eir verða þijár aðaldehdir þar sem sinnt er þörfum aldraðra sjúkra af mis- munandi ástæðum. I móttökudeild, sem rúmar 24 vistmenn, verður skammtímavistun og þar fer fram greining og endurhæfing. Þessi deild er nýjung hér á landi og með stofnun hennar og starfrækslu verður vafalaust unnt að hjálpa KjaUarinn Pétur A. Maack varaform. VR og fulltrúi þess í stjórn Hjúkrunar- heimilisins Eirar mörgum sem vilja dvelja lengur á sínu gamla heimili og geta horfið aftur heim eftir stutta dvöl og end- urhæfingu. Tvær mjög sérhæfðar heimihs- deildir verða starfræktar á Eir. Önnur er ætluð hehabhuðum (alz- heimersjúkum) en hin bhndu, sjúku fólki. Báðar eru þessar dehd- ir sérhannaðar með thhti th þeirra sem þar munu dvelja. Einnig þetta er nýmæh hér á landi. Það leiðir af líkum að umhverfi svo óhkra hópa aldraðra sjúka krefst mjög mismunandi innréttinga og útbún- aðar. Á Hjúkrunarheimilinu Eir er reynt að koma th móts við þessar þarfir þannig að þar geti öhum hð- ið svo vel sem kostur er. Þjóðhagslega hagkvæmt Bygging og búnaður Hjúkrunar- heimhisins Eirar kostar mikla fiár- muni. Áætlun um byggingarkostn- að, sem gerð var vorið 1992, hljóð- aði upp á 833,9 mihjónir króna. Með hagsýni og mikilh vinnu hefur th- boða verið aflað í hina ýmsu verk- þætti hyggingarinnar og nú þykir sýnt að byggingarkostnaður verði vel innan marka áætlunarinnar. Því valda meðal annars hagstæð thboð ýmissa byggingaraðha. En þótt stofnun Eirar kosti mikiö fé er hún þjóðhagslega hagstæð. Ahir sem þar munu dvelja í fram- tíðinni yrðu að öðnun kosti að vist- ast á sjúkrahúsum þar sem kostn- aður við hvem einstakan er mun hærri en á hjúkrunarheimih. Með tilkomu Hjúkrunarheimihs- ins Eirar sparast umtalsvert fé í hehbrigðiskerfinu. Þar við bætist aö vist á hjúkrunarheimili er flest- um mun géðfelldari en dvöl á sjúkrahúsi. Reynt er að spara og skera niður útgjöld í flestum grein- um og þar em heilbrigðismál og málefni aldraðra engin undantekn- ing. Nokkur fiöldi aldraðra sjúkra dvelur í heimahúsum þar sem hth eða engin aðstaða er th að láta þeim höa vel og sinna þörfum þeirra svo vel Tari. Af þessum sökum hafa einnig fiöl'margar fiölskyldur lent í miklum erfiðleikum. Þótt Eir leysi ekki vanda þeirra ahra verður hér samt um mikla bót að ræða. Aðstoð klúbba og félaga Hér á landi em starfandi fiöl- margir kiúbbar og félög sem hafa líknarmál á stefnuskrá, hjálp við samborgarana og þá ekki hvað síst við þá sem minna mega sín. Nægir í því sambandi að minna á mikils- verða aðstoð margra klúbba og fé- laga við dvalarheimih og stórgjafir til sjúkrahúsa. Hætt er við að tækjakostur sumra þeirra væri fá- tæklegri ef slíkt sjálfboðastarf hefði ekki komið th. Nú, þegar hður að opnun Hjúkr- unarheimihsins Eirar, leitum við í framkvæmdanefndinni th almenn- ings mn stuðning við heimihð. Þar vantar að sjálfsögðu margs konar tæki sem nauðsynleg eru til endur- hæfingar og dægrastyttingar. Hér er verðugt verkefni. Ég er þess full- viss að margir klúbbar, félög og fiöldi einstakhnga vih leggja okkur hð. Pétur A. Maack „Með tilkomu Hjúkrunarheimilisins Eirar sparast umtalsvert fé í heilbrigð- iskerfinu. Þar við bætist að vist á hjúkrunarheimili er flestum mun geð- felldari en dvöl á sjúkrahúsi.“ Valtar ríkið yfir sjúkraliða á landsbyggðinni? í ljósi þess að samningar voru lausir 1. febrúar 1992 er undarlegt að ekki skuh vera búið að semja við okkur sjúkrahða. Að vísu erum við ekki einir á báti, enn er ekki farið að semja við neinar aðrar heilbrigðisstéttir, að sjúkrahús- læknum frátöldum. En hvað skyldi það vera sem fer svona fyrir bijóst- ið á samningamönnum ríkisins að þeir hafa ekki svarað margendur- teknum áréttingi um fund með stéttarfélagi sjúkraliða, frá því í júni, en þá var síðasti samninga- fundurinn haldinn? Á þeim fundi var samninganefnd ríkisins gert ljóst að ekki þýddi að halda til streitu kröfu við félagið um lækkun á launum fyrir sjúkra- hða úti á landi. Samflot bæjar- starfsmanna er búið í tvígang að ganga frá samningum sem gera ráð fyrir að sjúkrahðar, sem koma th starfa efiir thtekinn tíma og eru með aðhd að bæjarstarfsmannafé- lögunum, lækki í launum. Er það svo óbhgjöm krafa af hálfu Sjúkrahðafélags íslands að hafna svona ósanngjami kröfu sem á sér tæpast nokkra hhðstæðu? Mér er spum. Hvar er nú sam- þykkt íslendinga við Alþjóða vinnumálastofhunina, ILO, sem Alþingi staðfesti 1957, en inntak hennar er að greiða skuh sömu laun fyrir jafnverðmæt störf. Kjallariim Helga Steinarsdóttir sjúkraliöi skiptasamning, sem tók gildi 1. jan- úar 1991 h)á sjúkrahúsunum úti á landi, urðu starfsmenn sjúkrahús- anna ríkisstarfsmenn sem voru áöur bæjarstarfsmenn. Helstu at- riði saínningsins, sem bæjarstarfs- mannafélögin gerðu við ríkið í kjölfar verkaskiptasamningsins, vom að starfsmenn viðkomandi stofnana héldu launum sínum og kjarasamningi óbreyttum á meðan ráðning þeirra rofnar ekki. Þeir sem kæmu til starfa eftir 1. janúar 1991 átti að fá laun sam- kvæmt ríkissamningunum. Það var sök sér ef launin lækkuðu ekki vemlega, eða um allt að 15.000 krónum á mánuði. Framkvæmd samningsins var frestað th 1. maí 1992 af síðustu ríkissfióm þegar á átti að herða. Sökum klúðurs í „Hvernig verður vinnumórallinn inni á deildum sjúkrahúsanna ef vilji samninganefndar rikisins nær fram að ganga?“ spyr greinarhöfundur. „Nám sjúkraliðans og þekking er einskis metin eftir breytinguna, ófag- lærðir starfsmenn, sem vinna á sama vinnustað, hefðu u.þ.b. 14 þúsund krónum hærri laun en sjúkraliðinn.“ Klúður í kjarasamningum Þegar ríkið og sveitarfélögin gerðu með sér svokahaðan verka- samningunum í vor, sem ég ætla ekki að rekja hér, var samningnum ennþá frestað og nú th 1. mars 1993. Hverjar eru afleiðingarnar? Hvemig verður vinnumórallinn inni á dehdum sjúkrahúsanna ef vilji samninganefndar ríkisins nær fram að ganga? Hvemig er hægt að ætlast til þess að fólk með sömu menntun og starfsaldur vinni hhð við hlið sömu störf, með allt að 25% lægri laun fyrir þaö eitt að vera ráðið síðar í vinnu? Hvemig er hægt að ætlast til að sjúkrahðar sitji rígnegldir í sömu stöðum næstu árin og geti sig hvergi hreyft, sama hvað kemur upp á, vegna þess að ef ráöning rofnar þá lækka laupin um þús- undir króna á mánuði? Hver hefur efni á því? Hvemig er hægt að ætl- 7;ast th þess að fólk á landsby ggðinni taki því þegjandi aö hreint og beint sé valtað yfir það fyrir þá sök eina að ríkisvaldinu dettur það í hug einn daginn að yfirtaka rekstur sjúkrahúsanna? Ófaglært starfsfólk á sjúkrahús- um hefur svo th sömu laun og sjúkrahðar, að undangengnu stuttu námskeiði. Ekki ætla ég að halda því fram að það sé ofhaldið af sínum launum. Hins vegar kem- ur það spánskt fyrir sjónir að þetta fólk kemur th með að halda sínum launum óbreyttum eftir 1. mars 1993. - ASÍ sér um sitt fólk. Til hvers að mennta sig? Hveijar em thfinnijfgar sjúkra- hða, sem ræður sig eftir 1. mars nk., til vinnuveitanda sem ætlar honum að vinna sömu störf og sjúkrahði, sem er fyrir í starfi, á allt að 25% '■lægri launum? Nám sjúkrahðans og þekking er einskis metin eftir breytinguna, ófaglærðir starfsmenn, sem vinna á sama vinnustað, hefðu u.þ.b. 14 þúsund krónum hærri laun en sjúkralið- inn. Það skyldi þó ekki fara fyrir hon- um eins og sjúkrahðanum á Akra- nesi í vor sem var að ráða sig í vinnu 1. maí. Hann réð sig sem ófaglærð starfsstúlka th að lækka ekki í launum. Mér er spum: Th hvers er ríkið að kosta menntun sjúkrahða ef þeirö er gert ókleift að vinna sem slíkir og axla þá ábyrgð sem því fylgir? Helga Steinarsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.