Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1992, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1992.
3
Fréttir
Erlendur Magnússon, vitavörður á Dalatanga:
Óvenjumikill
snjór fyrir
þennan árstíma
- jólaundirbúningur 1 fullum gangi
„Vegurinn hingaö til okkar hefur
nú verið lokaður í 4 sólarhringa en
við höfum áður verið lokuð inni í 5-6
mánuði svo að við kippum okkur
ekkert upp við þetta,“ segir Erlendur
Magnússon, vitavörður á Dalatanga.
Vegurinn frá Mjóafirði og út á
Dalatanga lokast fljótt í snjóum og
oft falla snjóflóð á veginn. Að sögn
Erlends hefur undanfama vetur þó
yfirleitt verið fært á milli.
„Það hefur ekki verið svona mikill
snjór héma á þessum árstíma á hðn-
um árum en það er ekki hægt að
segja að veðrið hjá okkur hafi verið
neitt slæmt í vetur. Þetta veður núna
gerir okkur ekkert og við erum ekk-
ert óhress. Það er auðvitað leiðinlegt
að fara út í stórhríð á nætumar að
taka veðrið en það má alltaf búast
við svona vetrarveðrum," segir Er-
lendur.
dóttir, sem er þýsk, hafa séð um vit-
ann og veðurathuganir á Dalatanga
í 25 ár. Dóttir þeirra og maðurinn
hennar búa í næsta húsi með tveim-
ur börnum sínum, 9 og 5 ára. Reynd-
ar var eldra barnið í skóla í Mjóa-
firði þegar veðurhamurinn skall á
og hefur þar af leiðandi ekki komist
heim.
* Að sögn Erlends er heimilisfólkið
á Dalatanga farið að huga að jóla-
haldi. Búið er að baka og senda jóla-
pakkana en þegar ófært er landleið-
ina lendir póstbátur á Dalatanga á
hverjum föstudegi ef veður leyfa.
„Við fáum þær vörur sem við þurf-
um með bátnum en við birgjum okk-
ur vel upp á haustin. Við emm alls
ekkert einmana hérna. Það er lesið
og horft á sjónvarp og svo þarf að
hugsa um skepnurnar. Yfir jóhn er
svo mikið spilað á spil,“ sagði Erlend-
Alls ekki einmana -ból
Hann og kona hans, Elfrid Páls-
Gætnir ökumenn í Kópavogi
Að sögn lögreglu í Kópavogi hefur
umferð þar í bænum gengið vonum
framar miðað við ófærð og veðurlag
undanfarna daga.
Að meðaltah verður einn smáá-
rekstur á dag og yfirleitt er ekki um
stórvægileg tjón að ræða. Miðað við
17 þúsund manna bæjarfélag þar sem
mikið er um gegnumakstur telur lög-
regla að óhöpp séu fágæt og telur
ástæðu til að hrósa ökumönnum fyr-
ir góða frammistöðu. -ból
!§§l||§
Stór 7x7 kristalskj^i|
Stereo heyrnartól m
Leikirfylaja .-'fjai O
Mikið -jí' q O
urval ^
leikja
Verð aðeins
SMÁSALA
HEILDSALA
ŒISLAGÖTU 14 ■ SÍMI: 96-21300 - 600 .MfUREYRI.
FAX: 96-21302 H
ÚTSÖLUSTAÐIR
: Japis. Kringlunni. Rvk.
Radióhúsiö, Skiphoiii 9. Rvk.
i Radtóhær. Ármúla 38, Rvk.
Skákhúsló (við Hiemm) Rvk.
Versj. Kassinn, Óiatsvfk
VersÉ. Liliibær, Stykkisholmi
Pótlinn, Isafirði
‘ Rafsfá. Sauðárkróki
RadionausL Akureyri ..
Öryggi. Húsavík
| Vsrsjunin Urð, Raufarhötn
Versiunin Skogar, Egilsst
: Versl. Hvammui. Höfn Hornai.
Ftislund, Kefiavik
NÝ TÆKNI • NÝTT ÚTLIT • NÝR HLJÓMUR
Verslunin Hljómbær kynnir '93 línuna frá Pioneer
Verö og greiðsluskilmálar við
allra hæfi - verð frá 59.900,- stgr.
VERSLUNIN
HVERFISGÖTU 103 : SIMI2S999