Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1992, Side 8
8
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1992.
Neytendur _______________pv
Verökönnun Neytendasamtakanna:
Mikill verðmunur á bakkelsi
Allt aö 235% verðmunur er á milli
einstakra tegunda í bakaríum sam-
kvæmt verðkönnun Neytendasam-
takanna og tíu aðildarfélaga þeirra á
brauði og kökum. Það þykir athyglis-
vert aö ýmis lítil bakarí á þröngum
markaði koma vel út í könnuninni á
meðan bakarí með umfangsmeiri
rekstur á stærri markaöi eru langt
yfir meðalverði.
Einnig kom í ljós aö í nokkrum
bakaríum vantar talsvert upp á að
vegin þyngd vörunnar sé í samræmi
við þá þyngd sem tilgreind er. í
tveimur tilfellum náði vegin þyngd
að meðaltali aðeins 87% uppgefmnar
þyngdar. í flestum bakaríum var til-
grein þyngd vörunnar í ágætu sam-
ræmi við raunþyngd og dæmi um að
varan vigtaði talsvert meira en til-
greint var á umbúðum. Samkvæmt
reglugerð er bakaríunum skylt að
gera samanburðarverð en það hunsa
þau öll með tölu.
Haukur Hauksson í Borgarbakarí-
inu og Ódýra brauða- og kökumark-
aðnum hefur sent frá sér yfirlýsingu
Mjög misjafnt er hvað bakaríin
taka fyrir brauðskurð. í sumum bak-
aríum er hann innifalinn í verðinu
en önnur taka allt að 19 krónur fyrir
skurðinn. Könnunin var gerð í
Reykjavík, Vesturlandi, Vestfjörð-
um, Norðurlandi, Austurlandi, Suð-
urlandi og Suðurnesjum síðari hluta
nóvembermánaðar.
-JJ
þar sem hann efast um framkvæmd
könnunar Neytendasamtakanna. í
könnuninni kemur fram að þessi
bakarí koma verst út úr samanburði
á uppgefinni þyngd og veginni þyngd.
Haukur segir að bakarinn hafi ver-
ið spurður um þyngd brauðsins og
gaf hann upp þyngdina á deiginu en
sú viðmiðun sé notuð þegar Verö-
lagsstofnun gerir sína könnun. Bak-
arinn hafi sérstaklega tekið þetta
fram við starfsmann Neytendasam-
takanna sem framkvæmdi könnun-
ina. Það sé jafnframt vitað að brauð
rýrni um 13-15% við bakstur.
Haukur segir að gengið hafi verið
út frá þessari staðreynd og geti bak-
aríin því ekki setið undir ásökunum
Neytendasamtakanna um ranga
vikt.
-JJ
Þyngd deigs-
ins skiptir
ekki máli
- segir Jóhannes Gunnarsson
„Við visum þessum fullyrðingum
Hauks um ranga framkvæmd á verð-
könnuninni á bug,“ segir Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna. Hann segir að starfs-
maður, sem gerði könnunina, hafi
aldrei heyrt minnst á deig þegar
hann tók niður tölúrnar.
„Enda varðar neytandann ekkert
um þyngdina á deiginu heldur á því
brauði sem hann kaupir fullbakað. í
raun eigum við ekki að þurfa að
spyrja um þyngd vöru í bakaríum
því samkvæmt reglugerð á iisti, sem
tiltekur verð og þyngd, að hanga
uppi neytendum til upplýsingar.
Haukur kvittar sjálfur fyrir könnun-
ina og gerir enga athugasemd í við-
eigandi reiti. Þess utan hefur svona
verðkönnun verið framkvæmd oft
áöur af Verðlagsstofnun og ég hef
fengið staðfest þar að öUum sömu
aðferðum hafi verið beitt. En hvað
deigið er þungt áöur en þaö er bakað
er ekki okkar mál,“ segir Jóhannes
Gunnarsson.
Nytt
íslenskt
majones
Nýlega setti matvælafyrirtækið
Efnaval nýtt majones á markað.
Að sögn Georgs Gunnarssonar
framleíðslustjóra er þetta fyrsta
íslenska majonesið sem er geril-
sneytt. Áður hafði Efnaval fram-
leitt hliðstætt majones fyrir
Fjaróarkaup í Hafharfirði undir
heitinu FK. Fyrir utan majonesið
eru í framleiðslu fiórar tegundir
af Stjörnuídýfum sem eru fram-
leiddar undir sama vörumerki og
Stjömusnakkiö. Þessar nýju vör-
ur frá Efnavali em nú komnar í
verslanir Hagkaups, Mikiagarð,
Kaupstað, Fjaröarkaup og Bónus.
Stekkjastaur er á fyrstu jóla-
skeiöinni.
Stekkja-
staur á
jólaskeið
Guil- og siifursmiðjan Erna hef-
ur hafið framleiðslu á jólasveina-
skeiðum úr silfri. Skeiðar þessar
vom þekktar hér áður fyrr en
Eggert Guðmundsson listmálari
teíknaöi þær í kringum 1954.
Fyrsta skeiðin er meö mynd af
Stekkjastaur en gert er ráö fyrir
að fyrir næstu jól komi hinar í
safnið. Skeiöin kostar 3.950 kr. og
fæst í Silfurbúðinni, MEBA í
Kringlunni, Rúbín í Mjódd og
Keflavík, hjá Korneliusi á Skóla-
vörðustíg, í Rammagerðinni,
Skarti á Akureyri, KH á Blöndu-
ósí og Tímadjásni í Grímsbæ.
fáninná
jólatréð
Áður fyrr þótti ekkert jólatré
fuUskreytt fyrr en búið var að
koma íslenska fánanum fyrir. Nú
er hafin framleiðsla á fánalengj-
um með tíu íslenskum fánum en
ails er lengjan 140 cm.
Auk jólatrésfánanna eru líka
fáanlegir tannstönglar með is-
lenska fánanum sem eru heppi-
iegir semkökuskraut. Það er fyr-
irtækið íris í Hafnarfirði sem
framleiðir. Öll framieiðsla er
handunnin.
Hangikjötið
ódýrara
í Fjarðar-
kaupum
í verökönnun á kjöti, sem birt-
ist á Neytendasiðu í gær, slæddist
inn viila varöandi verö á úrbein-
uðum hangiframparti í Fjarðar-
kaupum. Rétt verð á ódýrasta
kjötinu er 860 krónur kílóið af
úrbeinuðum framparti en ekki
998 krónur.
Skorin brauð Smá- brauð Kökui • Alls
Bakariið, Grindavik 743 421 856 2.020
Valgeirsbakarí, Njarðvík 907 460 783 2.150
Ódýri brauða- og kökumark., Reykjavik 770 599 888 2.257
Bernhöftsbakarí, Reykjavík 761 478 1.030 2.269
Kökuval, Hellu 841 564 1.040 2.445
Brauðval, Búðardal 902 563 983 2.448
Hverabakari, Hveragerði 809 581 1.098 2.488
Brauðgerð KHB, Egilsstöðum 944 607 946 2.497
Kristjánsbakarí, Akureyri 902 526 1.078 2.506
Brauðgerð KASK, Höfn 926 616 970 2.512
Nýja bakaríiö, Keflavlk 872 646 1.023 2.541
Másbakarí, Þorlákshöfn 928 563 1.080 2.571
Sigurjónsbakarí, Keflavfk 977 599 1.029 2.605
Gamla bakaríið, isafirði 820 666 1.125 2.611
Guönabakari, Selfossi 847 624 1.153 2.624
Brauðgerð Kf. Fram, Neskaupstað 983 567 1.080 2.630
Borgarbakarí, Reykjavík 1.010 599 1.038 2.647
Einarsbakarí, Akureyri 938 634 1.167 2.739
Brauögerö KEA, Akureyri 946 595 1.211 2.752
Brauðgerðarhús Stykkishólms 1.107 683 976 2.766
Sveinn bakari, Reykjavlk 957 726 1.158 2.841
Sauðárkróksbakarí 992 747 1.112 2.851
LÆGSTAVERÐ: 743 421 783 2.020
HÆSTAVERÐ: 1.107 747 1.211 2.851
MISMUNUR: 49% 77% 55% 41%
Skýringar:
Skorin brauð: 600 g franskbrauð, 4 tegundir grófra brauða (600 g hvert), 250 g
snittubrauð (ekki niðursneitt).
Smábrauð: 4 rúnstykki (50 g hvert), 4 gróf rúnstynni (60 g hvert), 4 hamborgara-
brauð (55 g hvert), 4 pylsubrauð (40 g hvert), 4 mjúkar kringlur (50 g hver).
Kökur: vínarterta, jólakaka, marmarakaka (400 g hver), vínarbrauð og snúðar (2 stk.
af hvoru).
UR & KLUMUR
QJATIR SEH GLEBJA OG GERA GAGM
PIERPODT CASIO.
CITIZEN ÆEC
ADEC kvenúr, gullhúðað
m/svartri skífu, kr. 3.900
ADEC karlmannsúr, gull-
húðað m/hvitri skifu, kr.
3.837
Citizen kvenúr, gullhúðað
m/hvitri skífu, kr. 7.622
Rhythm klukka m/pendúl,
spilar2 lóg, kr. 9.345
Rhythm klukka, svörtog
gyllt fáanl.
Kr. 5.240
6.
Citizen hilluklukka
m/spegli, falleggjöf, kr.
10.490
Kornelíus úrsmiður
Skólavörðustíg 8, sími 18588 - Dankastræti 6, sími 18600
Allt að 235% verðmunur er á einstökum tegundum af brauðum.
Rangar upplýsingar og
röng niðurstaða
- segir Haukur Hauksson í Borgarbakaríi