Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1992, Qupperneq 17
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1992.
17
_________________________Menning
Kunnuglegar Ijósmyndir
Ljósmyndabækur með lands-
lagsmyndum eru orðinn ómissandi
hluti jólabókaútgáfunnar. í ár er
mestur prentgripur þessara ljós-
myndabóka ótvírætt „íslandslag"
Sigurgeirs Sigurjónssonar, gild og
gagnvönduð bók með öllu tilheyr-
andi: fágætlega vel teknum og
prentuðum myndum, þökk sé
Oddaveijum, inngangi eftir forset-
ann okkar og jarðfræðilýsingum
eftir prófessor Sigurð Steinþórs-
son. Bækur af þessu tæi kenna
enskumælandi menn gjarnan við
sófaborð („coffeetable"), þær þykja
stofuprýði og eru látnar liggja
frammi sem vitnisburður um
menningarstig eigandans. Það sem
þessi bók Sigurgeirs hefur fram
yfir flestar bækur þessarar tegund-
ar eru hinir stóru myndfletir. Víð-
áttur landsins eru myndaðar með
Linhof Technorama myndavél,
sem búin er einni bestu víðlinsu
sem nú þekkist. Þessar víðáttu-
myndir eru síöan þandar yfir
hverja bókaropnuna á fætur ann-
arri, með betri árangri en sést hef-
ur í íslenskum ljósmyndabókum til
þessa. Enda kom sá mikh smekk-
maður Þröstur Magnússon, við
sögu úthtshönnunar á bókinni.
... birtan raunverulegri
Það hggur við að stærð þessara
ljósmynda, skerpa og hrikaleg
ásýnd myndefnisins geri bókina
aht að því yfirþyrmandi; eftir
linnulausa skoðun fer augað að
langa í látlausar smámyndir. Þess-
ar víðáttumyndatökur eru réttlætt-
ar með eftirfarandi hætti á bók-
arkápunni innanverðri; „Stór
myndflötur gefur smáatriðum í
Bókmenntir
Aðalsteinn Ingólfsson
myndunum aukið líf og kemur vel
th skha öllum htbrigðum auðnu og
gróðurs. Stærðarhlutfóh verða
skýrari, dýptin meiri og birtan
ramiverulegri. ílangur myndflöt-
urinn feUur vel að sjónsviði augans
og undirstrikar sérstæðar víðáttur
landsins."
AUt er þetta gott og blessað, ef
menn telja tUgang ljósmyndunar
að koma „veruleikanum" nokkurn
veginn óbrengluðum tU skUa, en
því viðhorfi hélt ég að ljósmyndar-
ar hefðu nú varpað fyrir róða.
Flestir ljósmyndarar, sem ég þekki,
líta á sjálfa sig sem eins konar túlk-
endur eða „síu“ veruleikans - sem
er ekki endUega „betra“ viðhorf.
Ef til vUl er það þessi skrásetn-
ingarhugsunarháttur, plús hrifn-
ing Sigurgeirs yfir möguleikum
nýju Linhof vélarinnar sinnar, sem
eru helstu veikleikar bókarinnar.
Ljósmyndarinn sættir sig í aðaiat-
riðum við hefðbundna sýn á landið,
Sigurgeir Sigurjónsson.
leggur sig ekki fram um að finna
ný sjónhorn eða blæbrigði. Hvers-
dagslegir myndatextarnir endur-
spegla þessa vöntun á metnaði,
sbr.: „Hleðsla í Fossárdal minnir á
1100 ára amstur kynslóðanna"
(mynd 41), „Svartifoss (er) ein af
perlum þjóðgarðsins að SkaftafeUi"
(mynd 51) „Jóhannes Kjarval opn-
aði augu íslendinga fyrir fegurð
grjóts og mosa“ (mynd 73) o.fl. Ljós-
myndir hans verða því helst tU
kunnuglegar þeim sem fylgst hafa
með landslagsljósmyndun á ís-
landi. Hins vegar býst ég við aö ég
muni með ánægju taka þessa bók
fram til að sýna útlendum gestum
mínum.
íslandslag
Ljósmyndlr: Sigurgeir Sigurjónsson
Textar ettir Vigdisi Finnbogadóttur og
Sigurö Steinþórsson.
Þröstur Magnússon sá um útlit.
Forlagió 1992.
BREKKU
MATVÖRUVERSLUN
Hjallabrekku 2 Kópav s:43544
Opið virka daga
kl. 9-23.30
Helgar 10-23.30
24/12 og 31/12
9-15
BETRA VERÐ
HANGIFRAMPARTUR FRÁ 678 KG
HANGILÆRIFRÁ 978 KG
HAMBORGARAHRYGGUR FRÁ 979 KG
ÓKEYPIS ÚRBEINING
Allt kk
Jóla-
Sértilboð
á EGILS hvítöli
4 skóinn
öSiS)
Jólapappír, kort o.fl.
Gleðileg jól,
farsælt komandi ár
mandarínur
og appelsínur
entméssíf
IS
hvítlauks-
brauð
MAÍSKORN - GRÆNAR BAUNIR OG
RAUÐKÁL
*
*
LANGAR ÞIG I BIO HEIMA I
STOFU?
KENWOOD KR-V 7040 með fjarstýringu
Verð kr. 56.905.- stgr.
KENWOOD
Aörir Kenwood útvarpsmagnarar: KR-V6030 2x120 vött DIN með fjarstýringu kr. 39.520.- KR-A5040 2x80 vött DIN
meö fjarstýringu kr. 29.925.- KR-A4040 2x50 vött DIN kr. 23.655.- stgr.
KENWOOD KR-V7040 AV/útvarps- og
videómagnari meö " Pro-logic surround" kerfi, 240
vött DIN/8 ohm (200 vött RMS 20 Hz-20 kHz).
Þú tengir stereo videótæki viö KR-V7040
útvarpsmagnarann og 5 rása stereó hljómur verður aö
veruleika, þegar þú horfir á bíómynd heima í stofu.
Þitt eigiö bíó meö kvikmyndahúsahljómgæðum.
KR-V7040 er einnig fullkominn 2x120 vatta
útvarpsmagnari. Hann var valinn besti AV
(Audio/video) útvarpsmagnarinn meö fullu húsi stiga af hinu
virta fagtímariti "What Hi-Fi" í nóvember 1992.
þar sem gœðin heyrast
Ármúla 17, Reykjavík, sími 688840, 685149