Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1994, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ1994
5
Fréttir
Fær ekki nafnið Amold viðurkennt eftir tveggja ára stapp:
Tómt rugl sem ég er
hætt að taka mark á
„Mér finnast rök mannanafna-
nefndar breytast eftír því hvaöa rök
maður setur sjálfur fram. Túlkun
nefndarinnar á lögunum er ein einn
daginn og önnur þann næsta. Ég er
búin aö fara í gegnum bréfaskriftím-
ar við nefndina og niöurstaöan er aö
þetta er tómt rugl sem ég er hætt að
taka mark á. Drengurinn heitir Am-
old, punktur og basta. Ég bara rétt
vona að þeir fari ekki að kóróna allt
- segir móðir drengs um vinnubrögð mannanafnanefndar
saman meö því að sekta mig um háifa
miiljón vegna málsins," sagði Aðal-
heiður Daníelsdóttir í samtah við DV.
Sonur Aðalheiðar og Halldórs Ósk-
ars Arnoldssonar er skírður í höfð-
uðið á dönskum fóðurafa sínum sem
búið hefur hér á landi frá 1947.
Drengurinn var skírður fyrir tveim-
ur árum og síðan hafa foreldrar hans
staðið í stappi að fá nafniö skráð í
kirkjubækur og þjóðskrá. Sam-
kvæmt lögum er hægt að beita dag-
sektum séu börn ekki nefnd eða skírð
innan tiltekins tíma og nöfn þeirra
skráð í þjóðskrá. Samkvæmt þessu
er sekt Aðalheiðar og manns hennar
komin í um hálfa milljón króna. Að-
alheiður hefur ekki verið rukkuö um
sektína og segist varla trúa að þessu
sektarákvæði verði framfylgt.
„Presturinn sem skírði drenginn
sagði okkur að nafnið Amold væri
ekki á mannanafnaskrá en það væri
líklega bara formsatriði að sækja um
nafnið og fá það samþykkt. En okkur
var synjaö og hefur verið synjaö
þrátt fyrir ítrekaðar bréfaskriftir.
Máhð verður æ flóknara. Reglurnar
krefjast þess að nafn sé íslenskt að
uppruna en það er mjög teygjanlegt.
Þá á að nafnið að vera búið að ávinna
sér hefð og sem er líka mjög teygjan-
legt atriöi og alveg háö túlkun nefnd-
arinnar. Nefndin hefur miðað við
árið 1840, að þrír íslendingar hafi þá
borið nafnið. Hins vegar er eitt naifn
viðurkennt, Norbert, sem ég veit
ekki til að hafi verið notað nema á
einn einstakling og það ekki fyrr en
um 1990. Þetta með hefðina er því
mótsagnakennt. Það er margt skrítíð
með þessi íslensku mannanöfn en
nöfn eins og Walter og Fritz eru leyfi-
leg meöan Arnold er bannað.“
Landsmót hestamanna:
M jög góð útkoma
kynbótahrossa
160 milljónir í gasstöð
íslenskir aðalverktakar eru að
hefja framkvæmdir við gasstöð í
Straumsvík sem þeir munu sjálfir
eiga. Stefnt er að því að klára verk-
ið í haust. Ekki er enn ákveöið
hver sér um reksturinn en annað-
hvort munu olíufélögin þrjú sjá um
hann í sameiningu eða þá aðal-
verktakar sjálfir. Kostnaðurinn við
byggingu stöðvarinnar er 160 mhlj-
ónir króna.
Að sögn Stefáns Friðfinnsonar,
forstjóra íslenskra aðalverktaka,
kosta framkvæmdimar sjálfar ekki
mikið, helsti kostnaðurinn hggi í
tönkunum sjálfum. Hann sagði að
olíufélögin hefðu ekki tekið
ákvörðun um reksturinn en sagði
að aðalverktakar væru tilbúnir að
sjá um reksturinn. 3M starfsmenn
kæmu til með að vinna við stöðina.
Flest topphrossin á Landsmótinu
stóðu fyrir sínu og fimm fengu tíu
fyrir eitthvert hæfileikaatriðanna.
Rauðhetta frá Kirkjubæ og Mjölnir
frá Sandhólaferju fengu 10,0 fyrir
tölt, Svartur frá Unalæk og Bokki frá
Akureyri fengu 10,0 fyrir skeið og
Gustur frá Hóh 10,0 fyrir vilja.
í fimm flokkum af sex stóð það
hross sem kom inn með hæstu ein-
kunn efst.
í flokki stóðhesta sex vetra og eldri
kemur inn efstur Gustur frá Hóh og
stendur efstur með 8,54 í aðaleinkunn,
Svartur frá Unalæk kemur næstur
með 8,51, þá Oddur frá Selfossi með
8,46, Reykur frá Hoftúnum með 8,42
og Geysir frá Gerðum með 8,39.
Jór frá Kjartansstöðum er enn efst-
ur í fimm vetra flokknum með 8,30 í
aðaleinkunn, Kolskeggur frá Kjam-
holtum I er með 8,29, Galdur frá
Laugarvatni 8,27, Kjarkur frá Eghs-
stöðum 8,21 og Fáni frá Hafsteins-
stöðum 8,19.
Galsi frá Sauðárkróki hækkaði
veruiega í fjögurra vetra flokknum.
Hann fer úr 8,04 í 8,22 og stendur
efstur. Gandur frá Skjálg er með 8,11,
Víkingur frá Voðmúlastöðum er með
8,09, Elri frá Heiði 8,09 og Andvari
firá Ey I er með 8,05.
Merargullið Rauðhetta frá
Merargullið Rauðhetta trá Kirkjubæ heldur sínum einkunnum og er með
hæstu aðaleinkunn kynbótahrossa á landsmótinu. Knapi er Þórður Þorgeirs-
son. DV-mynd E.J.
Kirkjubæ hélt sinni aðaleinkunn,
8,79, og er langefst í flokki elstu
hryssnanna. Hrafndís frá Reykjavík
kemur næst með 8,42, ísold frá
Keldudal er með 8,29, Vaka frá Arn-
arhóli 8,26 og Katla frá Dallandi 8,25.
Röst frá Kópavogi er efst í fimm vetra
flokknum en Eva frá Kirkjubæ og
Hvönn frá Gýgjarhóh sækja að henni
með 8,13. Engilráð frá Kjarri er með
8,08 og Hera frá Prestbakka 8,07.
Snælda frá Bakka heldur efsta sæt-
inu í fjögurra vetra flokknum með
8,15 í aðaleinkunn. Prinsessa frá Úlf-
ljótsvatni hækkaði verulega og er
með 8,08, Hekla frá Oddhóh 7,96, Glás
frá Votmúla 7,95 og Þoka frá Gríms-
húsum 7,91.
í dag, fóstudag, eru yfirhtssýiúngar
ahra hrossa sem geta hugsanlega
hækkað en ekkert hross getur lækk-
að. -E-J-
p GuííniJfcmimD
' Laugavegi 178
Kvöldverdartilboð
vikuna 30/6-8/ 7
Frönsk lauksúpa
*
Döölufyllt grísasneið
með grænmeti og apríkósusósu
*
Ostakaka
með völdum berjum
Kr. 1.950
Borðapantanir í síma 88 99 67
Ertu meö of næmi ?
__Teldanex® er lyf gegn
ofnæmi sem selt er án
lyfseöils (apótekum.
Upplýsingabæklingurinn „Er ég meö ofnæmi eöa kvef?"
liggur frammi í apótekum. í bæklingnum eru nánari
upplýsingar um notkun Teldanex®.
Teldanex* (lerfenadin) er lyf sem
noiaö er oeon ofnæmi
Skanuntan
Teldanex*Töflur 120 mg:
FuWorönir og böm eldri en 12 ár«
Eln tafla aö morgnt.
Lyfift er ekki ætlaft bðmum yngri en
12ára.
Teklanex* Töflur 60 mg
FuUorftnir og böm oldri en 12 árn:
Ein tafla kvölds og morguns oöa
tveer töflur aft morgni.
Börn 6-12 ára: Háif tafla kvölds og
morguns. Lyflö er ekkl ætlaft
bömum yngri en 6 öra
Varúfti Bamshalandl konum og
konum meft böm á brjóstl er
etnurtgis ráftlagt aft nota lyftft I
samráfti viö laokni.
Munlft: Lesift vandlega
leiftbeininger á pakkningunnl. Takift
hvorki etærri skommia at iyfmu en
raöiagt er. nó önnur lyf aamtimis án
ssmráfts vift tyfjafræfting efta laaknl.
Þeir aem oru meft h|artaajúkdöma
eiga ekki aft nota iyfift,
Aukaverkenlr: Hötuftverkur,
svimi og ögtefti. Tfönl 0,1-1%
Pakknlngar sam tftst ftn
lyfsaöllai Töflur 120 mg: lOetk..
Töfhjr 60 mg: 20 atk.
Umboft og draiflng:
Pharmaco hf.
TELDANEX
ASTRA
A.l_Ll_J