Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1994, Blaðsíða 12
Spumingin
Hvað finnst þér um reyk-
ingar?
Böðvar Eggertsson: Það á að leggja
þær niður.
Sigurður Ragnarsson: Mér finnst
þær mjög slæmar, þara hörmulegar.
Hilmar Hilmarsson: StórhættulegcU-.
Arnar Stefánsson: (reykir ekki) Mér
flnnst reykingar yndislegar. Góður
smók jafnast á við gott kynlíf.
Anna Bjarnadóttir: Ömurlegar.
Lesendur
Skeyti og blóm berast ekki til viðtakanda erlendis á laugardegi:
Hvers vegna er það?
Kona i Reykjavík hringdi:
Mig langar til þess að koma fyrir-
spumum á framfæri. Annars vegar
til Pósts og síma og hins vegar til
þeirra er sjá um blómasendingar til
útlanda. Þannig er að ég ætlaði aö
senda skeyti til útlanda á dögunum.
Þetta var á laugardegi og mér var
sagt að viðkomandi myndi ekki fá
það sent fyrr en á mánudegi. Sama
svar fékk ég þegar ég ætlaði að senda
blóm sama dag. Þetta finnst mér ekki
viðunandi þjónusta og langar að fá
skýringar á því hvemig á þessu
standi.
Reynt að hringja
Rafn Baldursson, hjá ritsíma Pósts
og síma, segir að eðhlegar skýringar
liggi hér að baki. Skeyti séu i mjög
mörgum löndum borin út af póst-
þjónustunni og þar sé einfaldlega
lokað um helgar. Oftast sé reynt í
viðkomandi landi að hringja í þann
sem á að fá skeytiö en svari hann
ekki fái sá hinn sami það bara sent
meö póstinum.
„Þetta er nákvæmlega það sama
og fólk hér víða um landið þarf að
búa við. Á þeim stöðum þar sem ekki
em sk. strandstöðvar eru símstöðv-
amar lokaðar á kvöldin og um helg-
ar,“ segir Rafn.
Blóm á skrifstofutíma
Hjá Blómavali fengust þær upplýs-
ingar aö aðeins væri hægt að senda
blóm til útlanda á skrifstofutíma á
virkum dögum og að höfuðstöðvar
Interflora, alþjóðlegs aðila sem sér
um þessa þjónustu, væru einnig bara
opnar á skrifstofutíma. Blómaval og
Blómalist eru einu fyrirtækin á land-
inu sem tengjast Interflora.
Jóna Ágústsdóttir: Mér finnst að það
ætti að banna þær.
Stöðvar2málin:
Étir þú ekki mig,
núþáétégþig
Enn um svívirðu bankanna
Guðni Jón skrifar:
Mér er skemmt og hefur verið um
allnokkurt skeið. Eg hef nefnilega,
líkt og aðrir landsmenn, verið að
fylgjast með skrípaleiknum á Stöð
2. Meirihluti þetta og minnihluti hitt.
Þetta er eins og litlir strákar sem eru
að rífast um fótbolta. Gera þessir
menn sér ekki grein fyrir því hvaða
afleiðingar svona róstur geta haft
innan fyrirtækis? Sjónvarpsstjórinn
orðaði þetta mjög vel þegar hann
sagði að hægt væri aö líkja þessu við
forræðisdeilu foreldra. Sá skaðaðist
mest sem síst skyldi. Barnið, í þessu
tilfelh Stöð 2, gæti hlotið varanlegan
skaða þegar til lengri tíma er litið.
Nú hefur mikið verið fjallað um
mál Siguijóns Sighvatssonar og
hann sagður hafa haft í frammi sví-
virðilega framkomu og óheiðarleika.
Það finnst mér nokkuð ósanngjam
málílutningur, þótt ég þekki málið
ekki nákvæmlega, og bendi á aö lög-
mál frumskógarins eru þarna í spili
eins og víöast annars staðar þar sem
peningar og völd koma við sögu. Étir
þú ekki mig, nú þá ét ég þig. Flókn-
ara er þetta nú ekki og í raun brand-
ari að heyra í mönnum sem mataö
hafa krókinn þarna innanborðs en
þurfa nú frá að víkja vegna nýs
meirihluta og nýrra hugmynda. Von-
andi geta þessir sömu menn þó kom-
ið sér fyrir viö kjötkatlana einhvers
staðar annars staðar á nýjan leik.
Nú er frá því sagt að „minnihlut-
Stefanía skrifar:
Umræðan um bankana okkar hef-
ur ekki verið mjög jákvæð upp á
síðkastið og er það kannski engin
furða eins og þeir vaða yfir fólk með
frekju og yfirgangi og halda að þeir
geti leyft sér hvað sem er. Mér finnst
satt best aö segja með ólíkindum ef
við landsmenn ætlum að láta þetta
yfir okkur ganga. Ég veit aö það þarf
mjög mikið til þess að hreyfa við
okkur; við spáum sjaldnast í það
hvort hlutimir eigi að vera svona eða
hinsegin; við tökum því venjulega
sem að höndum ber.
Á dögunum var maður í viðtah á
Rás 2, ég man því miður ekki hvað
hann heitir, sem var að hvetja til
þess að fólk hreinlega hætti við að
leggja launin sín inn í banka um
Bréfritari vill vara forsvarsmenn Stöðvar 2 við erlendri eignaraðild að fyrir-
tækinu. - Frá aðalfundi íslenska útvarpsfélagsins 1994.
inn“ hyggist selja sinn Iilut því hann
geti alls ekki hugsað sér að vinna
með „meirihlutanum". Og hverjir
eru kaupendumir aðrir en útlend-
ingar? Er það æskilegt með hag fyrir-
tækisins að leiðarljósi? Er æskilegt
aö útlendingar taki yfir þessa annars
ágætu sjónvarpsstöð? Hafa menn
hugsaö þá hugsun til enda?
Hvort sem um er að ræða Canal +
eða einhvem annan erlendan aðila
tel ég hagsmuni Stöðvar 2 vera í
hættu. Fjöldinn allur hefur gefist upp
á áskrift aö efni stöðvarinnar vegna
þess hversu lítil, nánast engin, inn-
lend dagskrárgerð er. Fólk hefur
gagnrýnt aö um sé að ræða hálfgerða
videoleigu og það sem verra er - að
efnið þar sé fremur lélegt.
Mín skilaboð til forsvarsmanna
Stöðvar 2 eru þau að fara varlega í
það að hleypa erlendum aðilum til
valda. Það er óheillaþróun.
mánaöamót. Er það svo galin hug-
mynd? Við emm flest óánægð og all-
ir vita að bankamir lentu í miklum
vandræðum ef fólk tæki út unnvörp-
um. Sterkara vopn eigum viö ekki
til, kæm landsmenn. Því ekki að
beita þvi. Það verður aö tjalda því
sem til er í þessari baráttu.
Látum nú á okkur reyna, sýnum
samstöðu og knýjum bankana til
þess að láta af þessum miklu þjón-
ustugjöldum. Þeir reyna eflaust að
þegja málið í hel en við getum ekki
látið þá komast upp með þetta. Hér
snýst máhð um það hver er hvar og
fyrir hvern. Erum við fyrir bankana
eða þeir fyrir okkur?
„Erum við fyrir bankana eða þeir fyrir okkur,“ spyr Stefanía.
Hringiðí síma
milli kl. 14 og 16
-eða skrifiö
Nafn or símanr. verður aó fylgja bréfum
FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1994
Beiðogbeið
ogbeið
Þolinmóð hringdi:
Ég held að ég verði aö teljast
fremur þohnmóð kona en fyrir
kemur að ég gefst upp og fæ nóg.
Eitt slíkt skipti var þegar ég var
að reyna að ná í Flugleiðir í sfm-
ann og ætlaði að spyrja um
komutíma flugvélar. Hver kann-
ast ekki við að þurfa að hanga
með tólið á eyranu mínútum
saman og reglulega kemur ein-
hver símsvari og segir manni aö
bíða, símtöl verði afgreidd í réttri
röð? Þessi rétta röð hlýtur aö
hafa verið orðin ansi löng þegar
ég þurfti aö bíða í 45 minútur í
símanum einn daginn. Og ég
spyr: Er þetta eölileg þjónusta?
Er það viðunandi að fólk skuh
vera látið bíða svona?. Mér finnst
þetta ekki hægt.
HávrÁtt
naiieiij
Hilmar!
Ámi Geir hringdi:
Þann 17. júní var sýnd mynd í
sjónvarpinu um Jón forseta og
nokkrum dögum síðar birtist
grein hér á lesendasíðu þar sem
Freysteinn er að svara einhverj-
um Hilmari sem var eitthvað aö
gagnrýna myndina. Ég sá ekki
þessa gagnrýni Hilmars en finnst
hann hafa hárrétt fyrir sér um
að sögumanninum hafi verið of-
aukiö, eða hann í það minnsta
haft sig of mikið í frammi. Frey-
steinn er ekki sammála okkur
Hilmari en hann verður bara að
búa við þaö. Mér fannst myndin
að Öðru leyti leiðinleg.
Forræðis-
deilur
Knstín hringdi:
í mörg ár hefur verið skrifaö
um forræðisdeilu Sophiu Hansen
og hennar fyrverandi eigin-
manns. Þjóðin hefur staðið á önd-
inni yfn- óheiöarleik mannsins og
vonsku. Nú er verið að skrifa um
annað svona mál á íslandi og ég
vil bara vara við því að við fáum
á okkur einhvern stimpil fyrir
þaö að meina útlendingum að-
gang að bömum sínum á þeim
forsendum einum að þeir eru út-
lendíngar. Við höfum gagnrýnt
tyrknesk yfirvöld og veröum því
að gæta okkar sjálf.
Misréttið
óþolandi
Baldur Sigurðsson hringdi:
Ég vil fá aö taka undir það sem
hann Ögmundur Jónasson segir
í Tímanum í vikunni að það er
óþolandi ef auka á launamisréttið
í landinu. Almenningur í landinu
getur ekki setið hjá ef topparnir
hækka alltaf í launum en við
stöndum í stað. Við sem emm í
leiguhúsnæði verðum að sjá okk-
ur farborða eins og aðrir og erum
farin að bíða eftir niðurstöðum í
máh um húsaleigubætur. Hvað
gerist nú þegar Jóhanna er hætt
að pressa á Ihaldið?
Yndisleg dýr
Kattavinur hringdi:
Ég varð alveg orðlaus þegar ég
las hér á síðunrn bréf ffá Sveini
þar sem helst var á honum að
skflja að hann vildi gefa veiði-
leyfi á ketti. Hvers konar hugsun-
arháttur er þetta? Fjöldinn ahur
af fólki á þessi dýr fyrir sína bestu
vini. Kettir eru ekkert verrí en
önnur dýr með það að þeir skíta
úti í náttúrunni. Á kannski að
banna fuglum aö skfta í sand-
kassa eða á bara að gefa veiði-
leyfi á þá líka?