Dagur - 23.09.1987, Blaðsíða 11
23. september 1987 - DAGUR - 15
Að gefnu tilefni
Vegna blaðaskrifa undanfarið vill
Skotveiðifélag Eyjafjarðar
(SKOTEY) koma eftirfarandi á
framfæri.
Á fræðslufundum félagsins
hefur verið rætt um veiðiaðferð-
ir, kosti þeirra og galla og meðal
annars kontið inn á kvöldveiðar.
I framhaldi af þeim umræðum
hafa félagsmenn verið hvattir til
að stunda ekki veiðar eftir að
skyggja tekur vegna þess að líkur
á að tapa bráð eru mjög miklar
auk þess sem veiðimaðurinn á
erfiðara með að hafa yfirsýn yfir
hættusvæði byssunnar.
Á fjölmennum fræðslufundi
SKOTEY þar sem dr. Arnþór
Garðarsson fuglafræðingur var
frummælandi kom fram nauðsyn
þess að friða náttstaði gæsarinnar
því hún er mjög fastheldin á þá.
Ef hún er hrakin á brott t.d.
vegna kvöldveiða eða annarrar
umgengni neyðist hún til að fara*
á aðra staði þar sem aðstæður eru
henni ekki jafn hagstæðar og hef-
ur það í för með sér verri afkomu
stofnsins.
Niðurstaða fundarins var sú að
æskilegt væri að friða stórar
kunnar náttstöðvar gæsarinnar
t.d. ósasvæði Hörgár, Fnjóskár
, og víðar.
Skotveiðifélag Eyjafjarðar
(SKOTEY) er tiltölulega ungt
félag sem telur rétt um 100 félaga
en það er aðeins lítill hluti skot-
veiðimanna á Eyjafjarðarsvæð-
inu. Af því má sjá að fræðsla
félagsins takmarkast við lítinn
hóp. í framhaldi af því má
spyrja: Undirbýr löggjafinn til-
vonandi byssuleyfishafa nægjan-
lega? Er gerð krafa um að við-
komandi kunni skil á veiðifugl-
um, hegðan þeirra ag lifnaðar-
háttum? Er næg kennsla í með-
ferð skotvopna og eru menn
fræddir um hættusvið þeirra?
Þetta eru atriði sem SKOTEY
hefur leitast við að fræða sína
félagsmenn um. Á æfingasvæði
sem félagið hefur til umráða er
leirdúfudastari og þar gefst
mönnum kostur á að æfa skotfimi
með haglabyssum áður en haldið
er til veiða.
Að lokum vill SKOTEY beina
eftirfarandi tilmælum til skot-
veiðimanna.
1.
3.
4.
5.
6.
Sýnið landi og lífríki fyllstu
virðingu.
Virðið lög og reglur um vopn
og veiðar.
Farið vel með veiðibráð.
Virðið rétt landeigenda,
standið vörð um eigin rétt.
Vertu tillitssamur og háttvís
veiðifélagi.
Góður veiðimaður skilur ekk-
ert eftir sig nema sporin sín.
Með þessu móti ættu samskipti
veiðimanna og landeigenda að
haldast góð báðum aðilum til
hagsbóta.
Akureyri 15. sept. 1987
Stjórn SKOTEY.
Norðurlandsmót í bridge 1987:
Tvímenningur
Laugardaginn 3. október nk.
verður Norðurlandsmót í tví-
menningi haldið á Siglufirði. Öll-
um spilurum sem lögheimili eiga
á Norðurlandi er heimil þátttaka
og eru spilarar beðnir að tilkynna
þátttöku fyrir 1. október.
Mótið hefst kl. 10.00 f.h. og
verða spiluð 64 spil (Mitchell
2x32). Keppnisgjald verður kr.
1.600 pr. par. Uppihald er ekki
innifalið í þessu gjaldi.
Tilkynna þarf þátttöku til eftir-
talinna aðila eigi síðar en 1. okt.
og veita þeir allar nánari upplýs-
ingar:
Jón Sigurbjörnsson Siglufirði,
heimas. 71411 v.s. 71166. Sigurð-
ur Hafliðason Siglufirði, heimas.
71650 v.s, 71305. Tryggvi Gunn-
arsson Akureyri, heimas. 22089
v.s. 25939.
Núverandi Norðurlandsmeist-
arar eru Jón Sigurbjörnsson og
Valtýr Jónasson frá Siglufirði.
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa
Vinnutími 1-6.
BÓKABÚÐIN HULD
biTK.
BÆNDASKOLINN HOLUM
Starfsmaður óskast
í mötuneyti Bændaskólans á Hólum.
Skólaárið 1987-1988.
Upplýsingar gefur Bryndís í síma 95-6589 og skóla-
stjóri í síma 95-5961.
Okkur vantar verkamenn
og menn á bortæki strax
Upplýsingar í síma 21777.
YJ NORÐURVERKhf.
Akureyri Sími 21777
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
Á NORÐURLANDI EYSTRA
Útboð
Tilboð óskast í þriðja áfanga sundlaugarbyggingar við Vist-
heimilið Sólborg, Akureyri, sem er einangrun húss og múr-
verk svo og vatns-, hita- og loftræstikerfi.
Útboðsgögn verða afhent á Teiknistofu Hauks Haraldssonar,
Kaupangi við Mýrarveg. Tilboð opnast á sama stað fimmtu-
daginn 1. okt. n.k. kl. 11.00 f.h.
Forstöðumaður sambýlis á
Húsavík
Staða forstöðumanns fyrir sambýli þroskaheftra er taka mun
til starfa á Húsavík í lok þessa árs er hér með auglýst laus
til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa menntun þroskaþjálfa
eða aðra sambærilega menntun. Starfs- og stjórnunar-
reynsla æskileg. Umsóknarfrestur er til 5. okt. n.k. og skal
senda skriflegar umsóknir til Skrifstofu Svæðisstjórnar fatl-
aðra í pósthólf 557, 602 Akureyri.
Nánari upplýsingar veitir framkv.st. Svæðisstjórnar í síma 96-
26960 alla virka daga milli kl. 09.00 og 13.00.
Kvöldvinna, helgarvinna,
hlutastörf
Viljum ráða starfsfólk í hlutastöður til kvöld- og helgarvinnu.
Verkefni felast í vinnu með þroskaheftum.
Upplýsingar veitir framkv.st. Svæðisstjórnar í síma 26960
alla virka daga milli kl. 09.00 og 13.00.
Stuðningsfjölskyldur
Við óskum aö kynnast fjölskyldum og/eða einstaklingum er
gætu tekið fötluö börn eða unglinga til dvalar á eigin heimili
um skemmri tíma, yfirleitt ekki fleiri en 3 sólarhringa að jafn-
aði í mánuði. Hér er um að ræða verkefni er gæti hentað vel
skólafólki eða öðrum þeim sem ekki eiga hægt með að
stunda vinnu á hefðbundnum vinnutíma en vildu engu að
siður drýgja tekjur sínar með hlutavinnu.
Upplýsingar veitir framkv.st. Svæðisstjórnar í síma 26960
milli kl. 09.00 og 13.00 alla virka daga.
Húsnæði óskast til kaups
Við höfum verið beðin að útvega íbúðarhúsnæði til kaups er
hentar sem tvær íbúðir. Hvor íbúð þarf að vera 4ra-5
herbergja. Einnig kæmu til greina kaup á tveimur samliggj-
andi raðhússíbúðum af sömu stærö.
Nánari upplýsingar veitir framkv.st. Svæðisstjórnar í síma
26960 alla virka daga milli kl. 09.00 og 13.00.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra
á Norðurlandi eystra.