Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1995, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1995, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1995 Heilsa Tennishöllin í Kópavogi: Pössum bömin með- an mömmurnar spila - nýlega er búið að ráða enskan þjálfara til starfa Mikill uppgangur er í tennisíþrótt- inni hér á landi og meö tilkomu hinn- ar glæsilegu tennishallar í Kópavogi hafa opnast möguleikar fyrir alla að stunda þessa skemmtilegu íþrótt áriö um kring. Á 800. hundrað félagar eru nú þegar í tennisklúbbnum og fer þeim íjölgandi með hverjum degin- um sem líður. Allir geta stundað tennis og eftir að hafa fengið kennslu í undirstöðu- atriðunum er hægt að byrja að slá boltann yfir netið. í Tennishöllinni er fullkomin aðstaða og þessi íþrótt, sem fram að þessu hefur bara verið hægt að stunda utandyra yfir sumar- tímann, á vaxandi vinsældum að fagna enda mjög skemmtileg íþrótt. „Það sem hefur komið mér mest á óvart er hversu margir hafa komið út úr skápnum, fólk sem hefur stund- að þessa íþrótt erlendis, og margir hafa komið til að læra tennisíþrótt- ina,“ segir Garðar I. Jónsson, fram- Joe Henriques, nýi, enski tennisþjáifarinn, ásamt nokkrum nemendum sínum í glæsilegu Tennishöllinni í Kópavogi. DV-mynd GVA kvæmdastjóri Tennishallarinnar. „Við erum með námskeið fyrir byijendur og líka fyrir þá sem eru lengra komnir og ég vil hvetja fólk sem vill reyna fyrir sér í tennis aö koma í þessa tíma. Viljum nátil kvenfólksins „Við höfum lagt á það áherslu að ná til kvenna á öllum aldri sem gætu þá komið á morgnana með börnin, spilað tennis og á meðan sæjum við um að passa börnin enda öll aðstaða til þess. Þetta er mjög algeng sjón í Bandaríkjunum og á örugglega eftir að verða það líka hjá okkur. Ég er að búa til tennisklúbb og því vil ég fá fólkið af götunni til að stunda þessa íþrótt, sér til heilsubótar og skemmtunnar," segir Garðar. Á dögunum réð Garðar enskan þjálfara til starfa í Tennishöllinni og er þar á ferðinni fyrrum keppnis- maður í íþróttinni. Hann æfði og lék tennis í Bandaríkjunum og komst ofarlega á heimsafrekalista tennis- leikara. „Það er geysilega gott fyrir okkur að fá jafn hæfan þjálfara til starfa. Hann er til staðar alla daga til að kenna fólki, jafnt byrjendum og þeim sem lengra eru komnir og stefna hátt í greininni," sagði Garðar. KRIPALUJOGA Mjúkt jóga fyrir þá sem vilja fara hægt af stað og þá sem þurfa að taka sérstakt tillit til líkamans. Mánudaga og fimmtu- dagakl. 10.30-11.30. Leiðb. Helga G. Sigurðardótdr. Jógastöðin Heimslj ós Skeifan 19,2. hæð Sími 889181 kl. 17-19 ogmán. 10-12. FIKTIDAG - FIKN A MORGUN TÓBAKSVARNANEFND ■ l\lú geta allin lært og leikið ■ tenms • Innnitun á námskeið fyrir byrjendur og lengra komna • Morgunnámskeið - ' - barnagæsla á staðnum • Símar: 564 4050 6i 564 4051 Daismári 9-11 Kópavogi Sáralítiö * Sæmilegt * * Gott * * * Frábært * * * * Athafnir ,5o S’ÍB á-p ,j?4p c o Sg § CD Á-S> -Í'P Létt ganga * * * Heimilisstörf * * * * * Létt garðvinna * * * * * Golf á sléttum velli * * * * Röskleg ganga * * * * * Badminton * * * * * * * Útreiðar * * * * * * * Leikfimi * * * * * * * * Erfið garðvinna (gröftur) * * * * * * * * * Létt skokk * * * * * * Tennis * * * * * * * * Diskódans * * * * * * * * Skautahlaup * * * * * * * * Svig * * * * * * * * Róður * * * * * * * * * * Knattspyrna * * * * * * * * * Veggjatennis * * * * * * * * Hratt skokk * * * * * * * Hjólreiðar * * * * * * * * Sund * * * * * * * * * * * * í grafinu hér fyrir ofan er yfirlit yfir margar algengar iþróttagreinar og dag- leg líkamleg störf og þá þolaukningu sem af þessu leiðir. Svona töflur geta einungis verið mjög grófur mælikvarði. Matið er byggt á þeirri áreynslu sem hægt er að búast við meðan þetta er stundað. Einnig er miðað við að þátttakendur séu ekki atvinnumenn á þessum sviðum. I>V Fróðleikur Komiðupp æfingaáætlun Eitt það besta sem þú getur gert til að byggja upp heilsufarið fyrir framtíðina er að koma upp æf- ingaáætlun sem hluta af daglegu lífi. Hjartað, lungun, blóðrásin, vöðvamir, beinin, liðamótin og jafnvel hugarfarið hefur Irag af reglulegrl líkamsrækt. Stundið íþróttir í frístundum Æfingar gera þér gott strax en líka til lengri tima litið. Þær gera líkamann starflræfari og styrkja hann gegn sjúkdómum. Ef mikið er um kyrrsetur í starfi þínu ætt- ir þú að byrja að stunda íþróttir r frístundum. Ganga hentar öllum Ganga er einfóld og góð æfing sem hentar öllum aldurshópum. Kosturinn við göngu er sá að langflestir geta auðveldlega tengt hana daglegu amstri. Ganga er góð fyrir fólk á öllum aldri og er notaleg dægrastytting. Slysa- hætta erlítil. Ganga hjálpar fólki til að slaka á og er hæfilega erfiö. Þjálfun verndar hjartaó Regluleg æfing dregur úr líkum á hjartakveisu og hjartaáfalli. Þjálfun verndar hjartað gegn sjrrkdómum með því að hreinsa út slagæöarnar sem færa blóð til hjartavöðvans. Þjálfun kemur í veg fyrir offitu sem oft lerðir af sér háan blóðþrýsting og sykur- sýki. Vöðvaþræðir styrkjast Reglulegar æfingar auka afkasta- getu hjarta, bæði í hvíld og við þjálfun. Þessi framfór hjartans verður vegna breytinga í vöðvum þess. Vöðvaþræðir styrkjast og jrykkna pg samdráttur verðurþví kröftugri. Þá flölgar æðum í vöðvum og flutningur súrefnis og næringarefna til vöðvanna eykst. Bætt úthald Úthald er sá eiginleiki að geta æft jafht og þétt í langan tíma án hvíldar. Það er háð afkastagetu og hæfni hjarta, lungna og vöðva. Litið þol getur leitt til vöðva- þreytu og lélegrar samæfingar. Til að bæta úthaldið þarf aö æfa kappsamlega í að minnsta kosti 20 mínútur, þrisvar í viku. Finndu íþrótt sem þér líkar Það er ekki til ein fullkomin æf- ing en hvaða kraftmikil æfing sem er bætir líkamsástandíð. Til að þér takist að gera þó bót á heilsufarinu verður þú að finna íþrótt sem þér líkar því annars er ólíklegt að þú æfir nóg. Hvað sem þú tekur þér fyrir hendur þá ætti það helst aö bæta alla þætti; styrk, fimi og úthald. Best er að borða sykrur Maturinn sem þú neytir og vökv- inn sem þú drekkur hafa ekki eingögnu áhrif á heilbrigði þitt heldur ráða því hversu vel þér tekst upp við erfiðar æfingar. Þegar erfiðar æfrngar eru fram- undan er best á borða sykrur. Kartöflur, pasta, helgjurtir og kornmeti geyma mikið af sykrum og henta þess vegna prýðilega til að auka glýkógenforða líkamans, Vatnið besti kosturinn Því meira sem þú hreyfrr þig, þerm mun meira þarft þú að inn- byrða af hitaeiningum. Gott mat- aræöi ætti að sjá líkamanum fyr- ir nauðsynlegum vítamínum, steinefnum og öðrum næringar- efnunr. Það verður að drekka nægilega mikinn vökva til að bæta upp vökvatap sem verður við það að svitna. Vatniö er þar besti kosturinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.