Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1995, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1995, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1995 11 Hópur karla og kvenna á æfingu hjá Þórshamri undir stjórn ísaks Jónssonar, karatemanns ársins árið 1993. DV-myndirS Karatefélagið Þórshamar: Líkamsrækt með A yissum tilgangi Karatefélagið Þórshamar er með öíluga starfsemi, bæði fyrir börn og fullorðna. Þeir yngstu sem æfa hjá Þórshamri eru 4 ára en sá elsti er 65 ára gamall. Þórshamar hefur byggt upp góða aðstöðu í Brautarholti og um 170 manns iðka þar íþrótt sína. Þórshamar er með gott unglingastarf og eldra fólk er byrjað að æfa karate í auknum mæli. Fullkomin hreyfing á sér stað í karate „Það er mjög fullkomin hreyfing sem á sér stað í karate. Þar sem við notum hendurnar til að kýla og vetjast og fæturna til að sparka þá er nokkuð ljóst að nota þarf meiri hluta líkam- ans heldur en í afskaplega mörgum íþróttum. Nákvæm beiting líkamans er það sem verður að vera til staðar í karate. Það eru góðar teygjur í þess- ari íþrótt, betri en á líkamsræktar- stöðvunum, enda þurfum við að fá sveigjanlegt fólk upp á spörk og hp- urleika," segir Jón Ásgeir Blöndal, þjálfari hjá Þórshamri. Grundvöllurinn er sjálfsíþrótt „Grundvöllurinn í íþróttinni er sjálfsvörn og 90% af fólki sem er í félaginu er ekki að keppa. Karate er Karate er fyrir alla. Mæðginin Árni Ibsen og Dominique Ambroes Ibsen æfa bæði karate og það gerir einnig húsbóndinn á heimilinu. Þá fær hund- urinn að fara með á æfingar, enda harður karateaðdáandi. einfaldlega líkamsrækt með vissum karate þreklega séð og þolfimi, dansi tilgangi. Maður fær jafnmikið út úr eða hverju sem er,“ segir Jón Ásgeir. „Stiginn styrkir' - hvatning til fólks að nota stigann í stað lyftunnar „Iþrottir fyrir alla“ eru samtök sem stofnuð voru innan íþróttasambands íslands fyrir hart nær þremur árum. Markmiðið með stofnun þessara samtaka var að ná til almennings og fá hann til að stunda einhverjar íþróttir. í dag eru félagsmenn um 12.000. „Næsta verkefni, sem við ætlum að ráðast í, er að hvetja fólk til að sleppa aö taka lyftur á vinnustöðum og nota stigana í staðinn. Við höfum láið útbúa spjald til að setja við lyftudyr og í lyftur og á því stendur „stiginn styrkir". Þá erum við með heilsuátak fyrirtækja sem við höfum verið dálítið að kynna. Fyrsta átakið, sem við unnun að, var í Landsbankanum og nú eru ein fjögur eða fimm fyrirtæki að fara í gang. Þetta byggist á því að allir starfsmenn eru þolmældir, haldnir eru fyrirlestrar og ráðgjöf og eitthvert prógramm er í gangi fyrir fólkið. Eftir fyrri þolmælingu er gerð önnur eins þremur mánuð- um síðar,“ segir Gunnlaugur Grettisson hjá samtökunum íþróttir fyrir alla. Árgjaldið kostar 1.000 krónur Árgjald í samtökin kostar krónur 1.000 og allir félags- menn fá félagsskírteini þar sem er afsláttarskort í líkams- rækarstöðvar og allt sem viðkemur hreyfmgu og nær- ingu. Þá eru skokkhópar í gangi hjá samtökunum frá því snemma á vorin og fram á haust þar sem félagsmenn ÍFA koma og geta hlaupið án endurgjalds undir leiðsögn. Þá eru annað slagið haldnir fræðslufyrirlestrar fyrir þennan hóp. Aðalmarkmiðið að fá alla til að hreyfa sig „Megnið af okkar fólki kemur inn í gegnum fyrirtækin og félagsmenn telja nú um 12.000 og fer fjölgandi. Við erum samt að reyna að selja okkur meira inn á almenn- ingsmarkaðinn. Okkur hefur gengið svolítið illa að ná í almenninginn. Það er auðveldara að fara í fyrirtækin og ná í fólk þar heldur en að fá einstakling sem virkilega sem myndi njóta þess að vera hjá okkur. Viö höfum fund- iö fyrir mikilli vakningu hjá þjóðinni og fólk er farið að skynja hversu mikilvæg hreyfingin er. Það er mjög hringt í okkur og við spurð út í gönguhópa og fólk sem er að koma vill ekki endilega byrja á því að fjárfesta í korti á líkamsræktarstöðvum. Gangan er frábær leið fyrir þá sem eru að hugsa um að byrja að hreyfa sig og aðal- markmið er að fá alla til að hreyfa sig,“ segir Gunnlaugur. Heilsa KRIPALUJÓGA Útivist: Kjörganga Ferð til að kynna „kjörgönguna", nýjung sem Útivist er að taka upp, verður farin með rútu laugardaginn 14. janúar klukkan 10.30 frá Umferð- armistöðinni. Þátttakendum verður skipt í þrá hópa eftir óskum um gönguhraða og því farnir mislangir áfangar en á sömu gönguleið. Hverj- um hópi fylgir sérstakur fararstjóri. Að þessu sinni verða fyrir valinu hlutar Bláfjallaleiðarinnar og ná- grenni hennar. Hóparnir koma sam- tímis að Árbæjarlaug eftir þriggja til fjögurra tíma göngu. í lok göngunnar verður bryddað upp á þeirri nýjung að koma saman og ræða um og ákveða næstu kjörgöngu Útivistar. Göngufólkinu gefst kostur á að fara í laugina eða spjalla saman yfir kafíi- bolla. Að þvi loknu verður farið í rútu niður á Umferðarmiðstöð. Aðaltilgangur kjörgöngunnar er að fá sem flesta út að ganga sér til hreysti, heilsubótar og njóta gleði og samveru. Hugleiðslunámskeið hefstmánud. 16. jan. kl. 16.30. Leiðb. Helga Mogensen. Byijendanámskeið hefst þriðjud. 17. jan. kl. 16.30. Leiðb. Aslaug Höskuldsdóttir og þriðjud. 17.jan. kl. 20.00. Leiðb. Jenný Guðmundsdóttir. Jógastöðin Heimsljós Skeifan 19, 2. hæð Sími 889181 kl. 17-19 og mán. 10-12. Einnig símsvari Aktu eins og þú vilt aðaSr að aorir aki! FLUGÁHUGI? HefurSu prófaS „Tvo ó tvo?" PaS er sko körfubolti í lagi. <omdu og spilaSu sennan fróbæra leik íjó okkur. Stórhöfða 17 v. Gullinbrú Símar: 587 2111 & 587 2116 GERICOMPLEX - MEST SELDA BÆTIEFNI Á ÍSLANDI A nýju ári er rétt að hrista sér slenið og byggja sig upp með hreyfingu, hollum mat og góðum bætiefnum. Þúsundir íslendinga viðhalda heilbrigði sínu með Gericomplex Regluleg neysla þess bætir starfsþrekið og eykur viðnám gegn sleni og slappleika. Gericomplex inniheldur valin vítamín, steinefni og lesitín og það er eina fjölvítamínið sem inniheldur Ginsana G115. Éh< Eilsuhúsið Kringlunni simi 689266 Skólavöróustía simi 22966

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.