Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1995, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1995, Blaðsíða 28
ÍZ oo 28 E—ptr bc Helga Sigurjónsdóttir Valdarán í Kvennalistanum ..Ég er ekki farin úr flokkn- um, en þaö eru margar konur íjúkandi reiöar vegna þessa. Okk- ur finnst ekki rétt aö láta fremja svona valdarán í Kvennalistan- um án þess að segja neitt viö því,“ segir Helga Sigurjónsdóttir bæjarfulltrúi í DV. Góð auglýsing „Guðný Halldórsdóttir hefur fengið góöa auglýsingu uppá síðkastið,“ segir alþýöubanda- lagsmaður í Aiþýðublaöinu. Ummæli Skíthæll og apaköttur . Hin „góða auglýsing" fleytir nú Guðnýju í framboð fyrir Al- þýðubandalagið í Reykjaneskjör- dæmi. Hin „góða auglýsing" Guðnýjar Halfdórsdóttur er án efa helsta ástæða þess að óvin- sældir Ólafs G. Einarssonar fimmfolduðust í einu vetfangi. Iíver er nú „skíthæll“ og „apa- köttur“?“ segir í leiðara Alþýðu- blaðsins. Hef engan áhuga á að verða bæjarverkfræðingur „Mér var á sínum tima boðið bæjarverkfræðingsembættið. Ég hef aldrei haft sérstakan áhuga á embættinu, en vildi að það yrði staðið við gerðan samning... Ég hef engan áhuga á að verða bæj- arverkfræðingur," segir Jóhann G. Bergþórsson í DV. Banna hunda í Reykjavík „Ég er fylgjandi því að banni við hundahaldi sé framfylgt vegna þess að borgarbúar voru spurð- ir... Þeir svöruðu afgerandi að þeir vildu viðhalda banni við hundahaldi. Af þeim sökum finnst mér að þaö eigi að vera í gifdi,“ segir Árni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi í DV. Góðbóker gulli betri Opinn fundur ITC Melkorku verður haldinn í kvöld í Gerðu- bergi í Breiðholti kl. 20.00. Stef fundanns er: Góð bók er gulli betri. Á dagskrá er meðal annars bókakynning, fræðsla um pall- og hringborðsumræður. Fundir Kynningardagar f Gjábakka Félagsstarfsemi eldri borgara i Kópavogí veröur kynnt í dag og á morgun í Gjábakka. í dag verö- ur starfsemin kynnt og utan- landsferöir á vegum landssam- bands aldraðra. A morgun kynn- ir frístundahópurinn Hana nú starfsemi sína. Báöar kynning- amar heíjast kl. 14.00. Fyrir foreldra bama með dyslexíu í Norræna húsinu í kvöld mun Lindsay Peer, fræðslufulltrúi Breska dyslexíufélagsins, halda fyrirlestur kl. 20.30 fyrir foreldra barna með dyslexíu. Mun fyrir- lesturinn fjalla um dyslexíu heima og í skóla og tekur bæði til umræðu um hæfileika og vandamál. Dregur úr frostinu í dag verður norðankaldi eða stinn- ingskaldi austanlands í fyrstu en annars hæg suðlæg eða breytileg átt Veðrið í dag og léttir til um allt land. Gengur síð- an í hægt vaxandi sunnanátt vestan- lands, kaldi og dálítil él á annesjum upp úr hádegi en stinningskaldi eða allhvasst og snjókoma í kvöld og nótt. Um landið austanvert verður fremur hæg sunnanátt og bjartviöri fram á kvöld en sunnan stinnings- kaldi og lítils háttar snjókoma í nótt. Síðdegis fer að draga úr frosti vestan- lands. Á höfuðborgarsvæðinu snýst í sunnangolu eða kalda með dálitlum éljum upp úr hádegi. Sunnan stinn- ingskaldi og snjókoma í kvöld og nótt. Frost 5-8 stig í fyrstu en 1-5 stig síðar í dag. Sólarlag í Reykjavík: 16.08 Sólarupprás á morgun: 11.02 Síðdegisflóð í Reykjavík: 14.48 Árdegisflóð á morgun: 03.25 Heimild: Almanak Háskólans Veðrið kl. 6 i morgun: Akureyri léttskýjað -8 Akurnes léttskýjað -6 Bergstaðir léttskýjað -12 Bolungarvík skýjað -6 Kefla víkurílug\'öliur skýjað -8 Kirkjubæjarklaustur léttskýjað -8 Raufarhöfn alskýjað -4 Reykjavík léttskýjað -10 Stórhöfði léttskýjað -5 Bergen snjóél á síð. klst. 0 Helsinki snjókoma -3 Kaupmannahöfn srýókoma 0 Stokkhólmur snjókoma 0 Þórshöfn snjóél 0 Amsterdam snjóélásíð. klst. 2 Berlín skýjað 1 Feneyjar þokumóða -1 Frankfurt léttskýjað 3 Glasgow heiðskirt -1 Hamborg skúrásíð. klst. 1 London skýjað 5 LosAngeies súld 14 Luxemborg skýjað 2 Mallorca léttskýjað 11 Montreal heiðskírt -22 Eydís Konráðsdóttir, íþróttamaður Suðumesja: Langtímamarkmið er að komast á ó „Það verður nóg aö gera á þessu ári og enginn skortur á verkefnum. Ég stefrii á að ná lágmarki á Evr- ópumeistaramótið sem verður haldið í Austurriki síðar á árinu. Ég er bjartsýn á að þaö takist. Svo er að sjálfsögöu æðsti draumurinn aö komast á ólympíuleikana og er þaö langtímamarkmið,“ segir Ey- dís Konráðsdóttir, hin stórefhilega sundkona frá Keflavík, en hún var Maður dagsins nýlega kosin íþróttamaður Suður- nesja. Eydís segir að kjöriö hafi verið mikili heiður þar sem mikið sé af góðu íþróttafólki á Suðumesjum. Þá segir hún að þessí tilnefning sé raikill stuðningur og uppörvun fyr- ir næsta tímabil. Eydís er aðeins sextán ára og hefur þegar náð frá- bærum árangri og sett nokkur ís- landsmet. Hennar sterkustu grein- ar eru baksundið og flugsund. í janúar fer hún á tvö mót á Norður- löndum, eitt í Daiunörku og heims- Eydís Konráðsdóttir. bikarmótið í Finnlandi. Eydís æfir allt að fimm klukkustundir á dag. Byijar eldsnemma á morgnana og síðan á kvöldin: „Það venst ótrú- lega vel að mæta klukkan sex að morgrú. Ég fer snemma að sofa og er ekkert á neinu næturbrölti á kvöldin, enda líður mér best eftir erfiðar æfingar." Eydís byrjaði sjö ára að æfa sund en þaö getur hún þakkað bróður sinum, MagnúsL „Égapaði allt eft- ir honum á þessum árum.“ Eydís stundaði einnig fimleika en tók sundiö fram yfir: „Sundið er að inínu mati skemmtilegri íþrótt og hefur gefið mér ótrúlega mikið. Félagsskapurinn er góöur og ómissandi þáttur í þessu öllu. Þá á ég þjálfara mínum, Martin Rade- macher, árangur minn að þakka og ekki má gleyma því að fjölskylda mín hefur alla tíð staðið við bakið á mér.“ Sá mikli tími sem fer í æfingar hefur ekki haft áhrif á árangur Eydísar í skóla, en hún er góður námsmaður og er hún að byrja á náttúrufræðibraut í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. Áhugamál henn- ar fyrir utan sundið er tónlist. Hún byrjaöi fimm ára að læra á selló og er við nám í Tónlistarskóla Keflavíkur. Eydís er fædd í Svíþjóð , en faðir hennar, Konráð Lúðvíksson kven- sjúkdómalæknir, var viö nám þar. Móðir hennar heitir Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir og á Eydís tvö systkin. MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1995 Heil urnferð í hand- bolta kvenna Eftir nokkurt hlé hefst keppni aftur í 1. deild kvenna í handbolt- anum og verður í kvöld leikin heil umferð í 1. deild kvenna. Þrjú lið þykja sterkust í deild- fþróttir inni, Stjaman, Fram og Vikingur. Ekki er um að ræða innbyrðis viöureign þessara liða í kvöld. Tveir leikir fara fram í Laugar- dalshöllinni. Kl. 18.30 leika KR- FH og kl. 20 Ármann-Stjarnan. í Framhúsi fer fram kl. 19 viður- eign Fram og Fylkis, í Hafnarfirðí leika Haukar og Víkingur kl. 20 og á sama tíma leika í Valsheimil- inu Valur-lBV. Einn leikur fer fram í 2. deild karla í handboltanum, í Vest- mannaeyjum leika ÍBV og BÍ. í kvöld fer einnig fram einn leikur í úrvalsdeíldinni í körfubolta, er um aö ræða frestaðan leik á milli Þórs á Akureyri og ÍA. Skák Helgi Áss Grétarsson varð að sættast á jafnteíli við Heikki Westerinen í lokaum- ferð alþjóðamótsins í Gausdal og hafnaði í þriðja sæti, hálfum vinningi á eftir sig- urvegurunum Rune Djurhuus og Einari Gausel, sem báðir eru norskir. Þeir fengu 7 v. úr 9 skákum en Helgi Áss 6,5 v. Dan- inn Peter Heine Nielsen varð tjórði með 5,5 v. í þessari stöðu frá mótinu hafði Djur- huus hvítt og átti leik gegn Svend Jo- hannessen: 23. Bf5! gxf5 Ef 23. - Rxdl gefur 24. Be6 vinningsstöðu. 24. Kxf2 He7 26. Dg3 + Kh8 27. Bf4 og svartur gafst upp. Jón L. Árnason Bridge Tvö landslið frá Kína fóru nýlega í keppn- isferð til Englands og kepptu gegn þar- lendum landsliðum. Kínversku landslið- in voru þar að endurgjalda heimsókn Englendinga á síðasta ári. í leik kvenna- landsliða Kínverja og Englendinga kom merkilegt spil fyrir. Norður hélt á þess- um spilum og heyrði félaga sinn í suöur opna á íjórum spöðum á hættunni gegn utan: 4 A3 V Á76 ♦ Á10762 + KD10 Norður valdi, ekki óeðlilega, að segja pass, enda getur opnun suðurs verið mjög hindrunarkennd á veik spil. Hitt kom á óvart að sagnhafi fór einn niður á samn- ingnum!?. Oll spilin voru þannig: ♦ Á3 V Á76 ♦ Á10762 + KD10 ♦ 5 ¥ K83 ♦ KG9543 + 762 Suður ♦ 84 V DG952 ♦ -- + ÁG9854 ♦ KDG109762 V 104 ♦ D8 + 3 Vestur Norður Austur 4* Pass Pass Pass Vestur spilaöi út tígulfjarkanum í upp- hafi og sagnhafi þurfti að meta hvort möguleiki var á því að vestur væri að spila frá einspili, eða hugsanlega 6 spilum í litnum. Ef vestur átti einspil var rétt að fara upp með ás en ef vestur átti sex- lit, var rétt að láta lítið spil úr blindum. Sagnhafi ákvað að stinga upp ás og aust- ur trompaöi og spilaði næst hjartadrottn- ingu. Sagnhafi drap á ás, tók trompslag og spilaði síðan laufi að kóngnum en austur drap á ás og spilaði þjarta og vest- ur gat tekið slag á tígulkónginn. Sagn- hafi gerði mistök því hann átti að sjálf- sögðu að setja lítið spil í upphafi. Ef vest- ur átti einspil gat hann fengið sína stungu í litnum en gat ómögulega fengiö aðra stungu. isak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.