Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1995, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1995, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1995 23 dv____________________________________________________________________________Fréttir Menningarverðlaun DV afhent 117. sinn: Langlíf ustu menningar- verðlaunin hér á landi Menningarverðlaun DV verða af- hent í 17. sinn fimmtudaginn 23. febr- úar næstkomandi. Fer aíhendingin fram yfir hádegisverði í veitingasaln- um Þingholti, Hótel Holti. Menningarverðlaun DV eru lang- lífustu menningarverðlaun sem stofnað hefur verið til hér á landi. Reyndar hétu þau Menningarverð- laun Dagblaðsins áður en Dagblaðið og Vísir sameinuðust og voru fyrst afhent árið 1979. í fyrstu voru veitt verðlaun í fimm Ustgreinum; bók- menntum, leikhst, byggingarlist, myndhst og tónlist. Verðlaun fyrir kvikmyndir komu síðan til sögunnar 1981 og verðlaun fyrir hsthönnun 1988. Alls eru því veitt verðlaun í sjö listgreinum. í hverri listgrein vinnur þriggja manna dómnefnd að vali verðlauna- hafa. Nefndirnar eru skipaðar gagn- rýnendum DV í hverri listgrein, full- trúum hstamanna og áhugafólki um hstir. Nefndirnar eru að hefja störf þessa dagana og verða kynntar á næstunni. Innan tíðar mun hver nefnd senda frá sér fimm tilnefning- ar til Menningarverðlauna DV. Verð- ur þá gerð ítarleg grein fyrir þeim í blaðinu. Verðlaunagripir verða úr tré Menningarverðlaunin sjálf eru í formi sérsmíðaðra skúlptúra eða list- muna. Hefur valinn listamaður séð um gerð gripanna hvert ár. Hefur blaöið fylgst með vinnslu gripanna og kynnt listamennina sem að grip- unum standa. í ár smíðar völundurinn Hlynur Halldórsson í Miðhúsum verðlauna- gripina í samvinnu við Sigrúnu Eld- járn. Hlynur hefur unnið viö smíöar í 20 ár og eru til smíðisgripir eftir hann um allt land. Hlynur tók þátt í sýningu á vegum Handverks í Gerð- arsafni í nóvember og desember. Þar voru sýndir minjagripir og nytja- hlutir úr íslensku hráefni sem unnu til verðlauna eða þóttu athyghsverð- astir í samkeppni Handverks. Nýstárlegir sjávarréttir Eins og ávallt við afhendingu Menningarverðlauna DV er gestum boðið upp á sjávarfang úr nýstárlegu eða framandi hráefni þar sem ný- stárlegum aðferðum er beitt við mat- reiðsluna. í fyrra lögðu gestir sér þannig til munns kryddlegin svh, hámeri og eldisþorsk sem alinn hafði verið á rækju í heht ár. Viö sama tækifæri fyrir þremur árum voru ígulker snædd í fyrsta skipti á veit- ingahúsi hérlendis og búri var htt sem ekkert þekktur þegar hann var á borð borinn á eftir ígulkerunum. Handhafar Menningarverðlauna DV eru orðnir fjölmargir. Yfirleitt hefur verið úthlutað th einstaklinga en hópar og stofnanir hafa einnig hlotið verðlaunin. Eru dæmi um að einstakir hstamenn hafi fengiö Menningarverðlaun DV tvisvar. Thor Vhhjálmsson fékk verðlaunin í bókmenntum 1984 og 1987. Ingi- mundur Sveinsson hlaut verðlaunin í byggingarlist 1990 og 1992. Helga Ingólfsdóttir fékk verðlaunin ásamt Manuelu Wiesler 1980 og síðan 1994. Friðrik Þór Friðriksson fékk Menn- ingarverðlaun DV í kvikmyndum 1988 en kvikmyndin Börn náttúrunn- ar var siðan verðlaunuð 1992, svo að dæmi séu tekin. Hér á síðunni er listi yfir þá sem hlotið hafa Menningar- verðlaun DV frá upphafi. Handhafar Menningarverðlauna DV 1994 með verðlaunagripi sina. I efstu röð eru Einar Már Guðmundsson, verðlaunhafi í bókmenntum, Anna Krist- in Arngrímsdóttir, sem tók við verðlaununum fyrir hönd Þjóðleikhússins, og Finnbogi Pétursson, verðlaunahafi í myndlist. í miðröð eru Helga Ing- ólfsdóttir, verðlaunahafi í tónlist, og Leifur Þorsteinsson sem hlaut verðlaun- in fyrir listhönnun. Fremst eru Andrea Oddsteinsdóttir, sem tók við verðlaun- unum fyrir hönd vinkonu sinnar, Högnu Sigurðardóttur arkitekts, og Þorfinn- ur Guðnason sem fékk Menningarverðlaun DV í kvikmyndum. DV-mynd GVA Menningar- verðlauna- hafar DV Leiklist 1979: Stefán Baldursson. 1980: Kjartan Ragnarsson. 1981: Oddur Björnsson. 1982: Hjalti Rögnvaldsson. 1983: Bríet Héöinsdóttlr. 1984: Stúdentaleikhúsið. 1985: Alþýðuleikhúsiö. 1986: Guðrún Gísladóttir. 1987: íslenski dansflokkurinn. 1988: Arnar Jónsson. 1989: Róbert Arnfinnsson. 1990: Gretar Reynisson. 1991: Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir. 1992: Guðjón Pedersen/ Hafliði Arngrímsson/Gretar Reynisson. 1993: Ólafur Haukur Slmonarson. 1994: Þjóðleikhúsið. Tónlist 1979: Þorgerður Ingólfsdóttir. 1980: Helga Ingólfsdóttir/ Manuela Wiesler. 1981: Jón Ásgeirsson. 1982: Árni Kristjánsson. 1983: Guömundur Jónsson. 1984: Jón Nordal. 1985: Einar Jóhannesson. 1986: Hafliði Hallgrímsson. 1987: Sinfóntuhljómsveit æskunnar. 1988: Paul Zukofsky. 1989: Rut Ingólfsdóttir. 1990: Hörður Áskelsson. 1991: Guðný Guömundsdóttir. 1992: Blásarakvintett Reykjavlkur. 1993: Petri Sakari. 1994: Helga Ingólfsdóttir. Bókmenntir 1979: Ása Sólveig. 1980: Siguröur A. Magnússon. 1981: Þorsteinn frá Hamri. 1982: Vilborg Dagbjartsdóttir, 1983: Guðbergur Bergsson. 1984: Thor Vilhjálmsson. 1985: Álfrún Gunnlaugsdóttir. 1986: Einar Kárason. 1987: Thor Vilhjálmsson. 1988: Ingibjörg Haraldsdóttir. 1989: Björn Th. Björnsson. 1990: Vigdís Grímsdóttir. 1991: Fríða Á. Siguröardóttir. 1992: Guömundur Andri Thorsson. 1993: Linda Vilhjálmsdóttir. 1994: Einar Már Guðmundsson. Myndiist 1979: Gallerí Suðurgata 7. 1980: Ríkharður Valtingojer. 1981: Sigurjón Ólafsson. 1982: Ásgeröur Búadóttir. 1983: Helgi Þorgils Friöjónsson. 1984: Jóhann Brietp. 1985: Jón Gunnar Árnason. 1986: Magnús Kjartansson. 1987: Gunnar Örn Gunnarsson. 1988: Georg Guðni Hansson. 1989: Sigurður Örlygsson. 1990: Kristján Guðmundsson. 1991: Kristinn E. Hrafnsson. 1992: Kristinn G. Harðarson. 1993: Pétur Arason. 1994: Finnbogi Pétursson. Byggingarlist 1979: Gunnar Hansson. 1980: Manfreö Vilhjálmsson/ Þorvaldur S. Þorvaldsson. 1981: Gunnar Guðnason/Hákon Hertervig. 1982: Birna Björnsdóttir. 1983: Pétur Ingólfsson. 1984: Valdimar Haröarson. 1985: Stefán Örn Stefánsson/ Grétar Markússon/ Einar Sæmundsson. 1986: Finnur Birgisson/ Hjörleifur Stefánsson. 1987: Hróbjartur Hróbjartsson/ Sigurður Björgúlfsson. 1988: Manfreð Vilhjálmsson. 1989: Leifur Blumenstein/ Þorsteinn Gunnarsson. 1990: Ingimundur Sveinsson. 1991: Guðmundur Jónsson. 1992: Ingimundur Sveinsson. 1993: Margrét Haröardóttir/ Steve Christer. 1994: Högna Siguröardóttir. Kvikmyndir 1981: Siguröur Sverrir Pálsson. 1982: Útlaginn. 1983: Erlendur Sveinsson. 1984: Egill Eövarösson. 1985: Hrafn Gunnlaugsson. 1986: Karl Óskarsson. 1987: Óskar Gíslason. 1988: Friðrik Þór Friöriksson. 1989: Viöar Víkingsson. 1990: Þráinn Bertelsson. 1991: Lárus Ýmir Óskarsson. 1992: Börn náttúrunnar. 1993: Snorri Þórisson. 1994: Þorfinnur Guönason. ^ Listhönnun 1988: Sigrún Einarsdóttir/ Sören Larsen. 1989: Valgeröiir Torfadóttir. 1990: Kristín ísleifsdóttir. 1991: Guðrún Gunnarsdóttir. 1992: Þröstur Magnússon. 1993: Kolbrún Björgólfsdóttir. 1994: Leifur Þorsteinsson. ÖVl Söngleikir í Kaff ileikhúsinu Uppselt var á Söngleikjadagskrá í Listaklúbbi Leik- húskjallarans á mánudagskvöld og þurftu margir frá aö hverfa. Því hefur verið ákveðið að endurtaka dag- skrána í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum næstkom- andi fimmtudagskvöld. ÓlafurÁrnisyngur íLincolnCenter Ólafur Árni Bjarnason mun, ásamt Ólafi Vigni Al- bertssyni píanóleikara, flytja íslensk sönglög og fleiri lög í boði Marilyn Horne Foundation í Lincoln Center í New York 16. janúar. Auk þeirra koma fram margir heimsþekktir tónhst- armenn eins og barítonsöngvarinn Hákon Hagegárd og ísraelski fiöluleikarinn Pinchas Zuckerman ásamt Marilyn Horne sjálfri. Söngleikirvinsælir Söngleikir eiga greinilega upp á pallborðið hjá ís- lenskum leikhúsgestum enda má sjá aukinn áhuga á dagskrám leikhúsanna. A föstudag verður Kabarett frumsýndur í Borgar- leikhúsinu og í lok febrúar verður söngleikurinn West Side Story frumsýndur í Þjóðleikhúsinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.