Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1995, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 7. APRlL 1995
Útlönd
Bæjar- og sveitarstjómarkosningar:
Breski Ihaldsflokkurinn
þurrkaður út í Skotlandi
íhaldsflokkurinn breski var auö-
mýktur í bæjar- og sveitarstjórnar-
kosningum í Skotlandi í gær. Flokk-
urinn var nánast þurrkaður út.
íhaldsmenn náöu ekíd meirihluta í
einu einasta af þeim 29 sveitarfélög-
um sem kosið var um. Þeir fengu
aðeins stuðning 1 afhverjum 10 kjós-
endum.. íhaldsflokkurinn hefur
reyndar aldrei verið mjög sterkur í
Skotlandi en þessi útkoma er miklu
verri en áður hefur sést.
Verkamannaflokkurinn breski,
sem var að fara út í fyrstu stóru
kosningarnar eftir að Tony Blair var
valinn leiðtogi, er ótvíræður sigur-
vegari kosninganna. Þeir sigra í 17
sveitarfélögum, þar af fjórum þeim
stærstu í Skotlandi, samkvæmt
bráðabirgðaniðurstöðum. Tainingu
lýkur í dag og er jafnvel talið að
Verkamannaflokkurinn geti náð
meirihluta í 20 sveitarfélögum. AJIt
útlit er fyrir að Verkamannaflokkur-
inn hafi náð 47% atkvæða í kosning-
unum, Skoski Þjóðernisflokkurinn
27% og íhaldsflokkurinn aðeins 11%.
Þessi ósigur er talinn setja mikla á
pressu á John Major forsætisráö-
herra um að segja af sér. Kjósendur
telja hann ekki mikinn leiðtoga og
virðast samkvæmt skoðanakönnun-
um hafa snúið baki við stjórn hans
sem hefur átt mjög undir högg að
sækja alveg frá upphafi. Major lýsti
þvi hins vegar yfir nýlega að hann
hygðist sitja út kjörtímabilið sem
lýkur 1997. í næsta mánuði fara fram
sveitarstjómarkosningar í Englandi
pg Wales þar sem allt bendir til að
íhaldsflokkurinn gjaldi einnig af-
hroð.
Tony Blair, leiðtogi Verkamanna-
flokksins, sagði í nótt að úrslitin
mætti þakka því að hann hefði náð
að sveigja Verkamannaflokkinn inn
að miðju breskra stjómmála. Kjós-
endur væru að yfirgefa íhaldsflokk-
inn í hjörðum vegna þess að hann
hefði svikið þá og væri úr tengslum
við raunveruleikann.
Sveitarstjórnarmenn úr röðum
íhaldsmanna í Skotlandi kenndu
óvinsælum aðgerðum ríkisstjórnar-
innar um tapið.
Dagblaðið Daily Telegraph birtir
skoðanakönnun fyrir landið allt í
dag. Þar er Verkamannaflokkurinn
með 35% forskot á íhaldsflokkinn.
Verkamannaflokkurinn er með 58%
fylgi, íhaldsflokkurinn 23% og
Frjálslyndir demókratar 14%.
Reuter
Vörubílstjóri dæmdur fyrir morð:
Lærði taugalíff ræði
og slapp úr f angelsi
Breskir dómstólar slepptu vöru-
bílstjóranum Kevin Callan lausum
úr fangelsi í gær. Callan haíði lært
taugalíffræði í fangelsinu og kenn-
ingar um heilaskurðlækningar til
að sanna sakleysi sitt. Sannfærði
hann dómara um að sakfelling
hans væri byggð á ónógum sönn-
unum.
Callan var dæmdur í lífstíðar-
fangelsi fyri þremur árum, sak-
felldur fyrir að hafa myrt fjögurra
ára dóttur kærustu sinnar. Sak-
sóknari hélt því fram að Callan
hefði hrist hana til dauða. En Call-
an hélt ávallt fram sakleysi sínu. í
fangelsinu kafaði hann í taugalíf-
fræði og hélt uppi bréfaskriftum
við sérfræðinga víöa um heim í
heilaskurðlækningum og höfuðá-
verkum. Þegar mál Callans var tek-
ið upp aftur var málflutningur
ákæruvaldsins hrakinn og hann
látinnlaUS. Reuter
ísbtlHnrf
Byrjum akstur á kosningadaginn og ökum
eftirfarandi leiðir:
Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, var einn aðalræðumanna
á ráðstefnu í Bandaríkjunum vegna Dags jarðar. Vel fór á með Al Gore,
varaforseti Bandaríkjanna, og Gróu en þau hafa fram að þessu ekki verið
alls kostar sammála um umhverfismál. Simamynd Reuter
Laugard. 8. apríl:
Hraungerðishreppur f. hádegi
Laugard. 8. apríl:
Skeiðahreppur e. hádegi
Sunnud. 9. apríl:
Gnúpverjahreppur
Þriðjud. 11. apríl:
Hrunamannahreppur
Miðvikud. 12. apríl:
Villingah. og Gaulverjabæjarhreppur
Uppl. í síma 985-43124 og 91-623676
er selt í Isbílnum
Filippseyjar:
Fimm gíslar létust
Her Filippseyja gerði í gær og í
nótt áhlaup á hryðjuverkahóp öfga-
sinnaðra múslíma í borginni Ipil í
suðurhluta Filippseyja. Múslímarnir
hafa haft í haldi 26 gísla sem þeir
tóku þegar þeir gerðu árás á borgina
fyrr í vikunni en þeir drápu 45 manns
í þeirri árás. Fimm gíslar létust í
áhlaupunum síðasta sólarhringinn
og sex öfgasinnar.
Hörð átök eru enn milli hersins og
múslímanna en þeir eru taldir vera
um 75 talsins. Um tvö hundruð
manna lið tók hins vegar þátt í árás-
inni á Ipil fyrr í vikunni.
Mikill ótti er á Filippseyjum vegna
vaxandi árásargirni öfgasinnaðra
samtaka múslíma í landinu. Talið er
að þeir fái umtalsverðar íjárupphæð-
ir sendar frá múslímalöndum sem
þeir notað síðan til kaupa á vopnum.
I árásinni á Ipil voru þeir vopnaðir
sprengjuvörpum af fullkomnustu
gerð. Búist er við fleiri árásum á sak-
lausa borgara á næstunni.
Reuter
Stuttarfréttir dv
Fjöldamorða minnsf
Fjöldi íbúa í Rúanda safnaðist
saman þegar fyrrum forsætis-
ráðherra og 200 aörir voru jarð-
aðir á ný, einu ári eftir að blóðsut-
hellingar hófust í landínu en þær
kostuðu eina milljón manna líflð.
Funda um kjarnavopn
Egyptar og ísraelar ætla að
reyna að leysa deilu vegna neit-
miar Israelsmanna um aö sam-
þykkja samkomulag um bann við
útbreiðslu kjarnavopna.
Endalok ákveðin?
Christopher,
utanríkisráð-
herra Banda-
ríkjanna, beitir
auknum þrýst-
ingi á Tyrki í
von um að fast-
setja megi hve-
nær Tyrkir dragi 32 þúsund
mannahersveitir sínar i norður-
hluta íraks, sem beint er gegn
Kúrdura, til baka.
Chiracekkiöruggur
Jaques Chirac, borgarstjóri
Parísar, viöurkennir að hann er
ekki öruggur um sigur í frönsku
forsetakosningunum.
Hindrunum aflétt?
Benazir Bhutto, forsætisráö-
herra Pakistans, reynir að fá
Bandaríkjastjóm til aö aflétta
viðskiptabanni sem sett var á
vegna kjarnorkuvopnaáætlunar
landsins.
Engin sprengja
Samgönguráðherra Belga segir
ekkert benda til að sprengja hafi
verið um borð í farþegaþotunni
sem fórst í Rúmeníu fyrir viku.
Margir á dauðalista
Bandarísk heryfirvöld segja að
27 andstæðingar Jean-Bertrands
Aristides, forseta Haítí, séu á
dauðalista.
PólverjaríESB
Pólverjar
hafa lýst yfir
ítrekuðum vilja
sínum til að
verða fyrsta
fyrrum austan-
tjaldsríkið til að
verða aðili að
Evrópusam-
bandinu.
Pillafyrirkaria
Danskir visindamenn segja nið-
urstöður sínar auka vonir um
hormónalausa getnaðarvama-
pillu fyrir konur og karla og um
lækningu við ófrjósemi.
Rifu úrsilfurbiblíu
Óþekktir menn réðust á ómet-
anlega gotneskabiblíu á háskóla-
bókasafninu í Uppsölum í Svíþjóð
og rifu úr henni nokkrar síður.
Reuter
Æg ÁÝÆNGJUM
ALLAN HEIM !
WtVog INTERNET
Við kynnum OS/2 Warp stýrikerfið og Internet þjónustu Nýherja í verslun okkar í Skaftahlíð 24
laugardaginn 8. apríl á eftirfarandi tímum: OS/2 Warp 12:15 til 13:00, /nternet II: 15 til 12:00 og
13:15 til 14:00. Við minnum einnig á námskeið tölvuskólans okkar um OS/2 Warp
stýrikerfið og Internet. Símanúmer skólans er 569 7769.
NANARI UPPLYSINGAR ERU Á HEIMASIÐU NÝHERJA: http://www.ibm.is/
NÝHERJI
SKAFrTAHLÍÐ 24 - SÍMI 569 7700
Alltaf skrefi á undan